Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Gagna­ver og einka­neysla skýra hag­vöxt

Landsframleiðsla jókst um 2,7% á milli ára að raunvirði á fyrsta fjórðungi ársins. Mest var framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar sem skýrist að mestu af auknum umsvifum gagnavera. Einkaneysla jókst einnig á fjórðungnum þó hægt hafi á vexti hennar.
29. maí 2026

Samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar mældist 2,7% hagvöxtur á fyrsta fjórðungi ársins. Hagvöxturinn var að stórum hluta drifinn af jákvæðu framlagi utanríkisviðskipta. Miklar fjárfestingar í gagnaverum á síðasta ári skiluðu neikvæðu framlagi utanríkisviðskipta til hagvaxtar í fyrra vegna töluverðs innflutnings á tölvubúnaði. Viðsnúningurinn í framlagi utanríkisviðskipta nú skýrist því bæði af miklu minni innflutningi á tölvubúnaði, en einnig af því að gagnaverin eru farin að skila umtalsverðum vexti í þjónustuútflutningi. Samdráttur í fjárfestingu skýrist einnig að miklu leyti af minni fjárfestingu gagnavera á fjórðungnum borið saman við fyrsta fjórðung í fyrra.

Sjöundi ársfjórðungurinn í röð sem einkaneysla eykst á milli ára

Einkaneysla jókst um 2,2% á fjórðungnum og er því um nokkuð hægari vöxt að ræða en á síðasta ári þegar einkaneysla jókst í heild um 4,3%. Samkvæmt frétt Hagstofunnar var aukning í kaupum heimilanna á bifreiðum á fjórðungnum, þótt nýskráningar fólksbíla til einstaklinga hafi dregist saman um 14% á fjórðungnum, samkvæmt tölum Bílgreinasambandsins fyrir fyrsta fjórðung. Í frétt Hagstofunnar er einnig tekið fram að vöxtur hafi verið í einkaneyslu vegna útgjalda Íslendinga á ferðalögum erlendis. Það kemur líka á óvart í ljósi þess að utanlandsferðir Íslendinga drógust saman um 7% á milli ára á fjórðungnum, samkvæmt talningu Ferðamálstofu. Hluti af skýringunni gæti verið að Íslendingar nýta sér erlenda netverslun í auknum mæli, en kortavelta Íslendinga í heild jókst í takt við vöxt einkaneyslunnar. Í nýlegri hagspá gerðum við ráð fyrir að vöxtur einkaneyslu yrði nokkuð hægari á árinu, eða 0,4% í heild yfir árið.

Fjárfestingar í gagnaverum skila auknum útflutningi

Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var jákvætt um 5,3% sem er algjör viðsnúningur frá síðasta ári. Jákvætt framlag skýrist að stærstum hluta af samdrætti í vöruinnflutningi, en töluvert minna var flutt inn af tölvubúnaði í tengslum við gagnaver en á sama tíma í fyrra sem skýrir samdráttinn að stórum hluta.

Útflutningur í heild jókst um 1% þar sem vöruútflutningur dróst saman um tæp 4% en þjónustuútflutningur jókst um tæp 7%. Vöxtur þjónustuútflutnings skýrist að mestu af auknum umsvifum gagnavera hér á landi. Mikil fjárfesting í gagnaverum í fyrra er því að skila sér nokkuð hratt í vexti útflutnings. Samdrátt vöruútflutnings má meðal annars rekja til minni álframleiðslu vegna bilunar í álverinu á Grundartanga.

Er hagkerfið að kólna?

Líkt og við höfum fjallað um áður eru ýmsar vísbendingar um kólnandi hagkerfi, t.a.m. mikill samdráttur í kortaveltutölum í apríl, en hér koma gögn um nokkuð mikinn hagvöxt á fyrsta ársfjórðungi sem kann að skjóta skökku við. Þegar betur er að gáð sést að rekja má þennan hagvöxt að mestu til jákvæðs framlags utanríkisviðskipta. Á sama tíma dregst fjármunamyndun saman, þ. á m. íbúðafjárfesting og hægt hefur á vexti einkaneyslu. Þetta eru vísbendingar um að hagkerfið sé að kólna þrátt fyrir nokkuð mikinn vöxt landsframleiðslu í heild á fjórðungnum.

Við gáfum nýverið út spá þar sem við gerum ráð fyrir 1,7% hagvexti á árinu. Miðað við þessar bráðabirgðatölur má hagvöxtur aukast lítið það sem eftir lifir árs til þess að sú spá gangi eftir. Við teljum líklegt að vöxturinn verði minni á komandi fjórðungum, sér í lagi ef nýjustu kortaveltutölur gefa vísbendingu um það sem koma skal.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.
Vikubyrjun
28. sept. 2026
Vikubyrjun 28. september 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.
21. sept. 2026
Nær jafnmargir ferðamenn þrátt fyrir minna flug
Þrátt fyrir minna flugframboð til og frá landinu hefur ferðamönnum aðeins fækkað um 1%, það sem af er ári. Tengifarþegum hefur aftur á móti fækkað og Íslendingar hafa farið í færri utanlandsferðir í ár en í fyrra. Nýlegar kortaveltutölur benda til þess að neysla ferðamanna hafi tekið við sér yfir sumarið og að áhrif sólmyrkvans hafi fremur birst í aukinni neyslu en fjölgun gesta.
Vikubyrjun
21. sept. 2026
Vikubyrjun 21. september 2026
Greiðslukortavelta heimilanna dróst saman um 1,2% á milli ára í ágúst, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Íbúðaverð hækkaði lítillega í ágúst, en leiguverð lækkaði eftir að hafa hækkað sex mánuði í röð.