Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Ál­verð hef­ur ekki ver­ið hærra í ára­tug

Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað mikið á síðustu fjórðungum og er nú komið í 10 ára hámark en verðið hefur ekki verið jafn hátt síðan á sumarmánuðum 2011.
Álver í Reyðarfirði
11. júní 2021 - Greiningardeild

Álverð lækkaði töluvert á síðasta ári þegar faraldurinn braust út, líkt og flestar aðrar hrávörur. Meðalverð í janúar á síðasta ári var 1.773 Bandaríkjadalir og lækkaði það niður í 1.460 dali í maí á síðasta ári. Svo lágt hafði verðið ekki farið síðan í alþjóðlegu fjármálakreppunni 2008/2009 en þá fór það niður í 1.330 dali í febrúar 2009.

Síðan í maí á síðasta ári hefur álverð leitað upp á við og er yfir 2.400 dalir þessa dagana. Það er vel að merkja ríflega þriðjungi hærra verð en í janúar á síðasta ári, þ.e. áður en faraldurinn braust út.

Þú gætir einnig haft áhuga á
23. júlí 2026
Verðbólga jókst lítillega í júlí
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36% á milli mánaða og verðbólga hækkar því úr 5,2% í 5,3%. Við spáðum því að verðbólga myndi standa í stað. Að þessu sinni kom enginn undirliður mikið á óvart. Við búumst við að verðbólgan verði áfram yfir 5% næstu þrjá mánuði.
Vikubyrjun
20. júlí 2026
Vikubyrjun 20. júlí 2026
Greiðslukortavelta íslenskra heimila jókst á milli ára, bæði innanlands og erlendis. Verðbólga í Bandaríkjunum lækkaði á milli mánaða, aðallega vegna lægra bensínsverðs. 
Vikubyrjun
13. júlí 2026
Vikubyrjun 13. júlí 2026
Ferðamannafjöldinn í júní dróst saman um 4,8% á milli ára og atvinnuleysi mældist 0,6 prósentustigum meira en fyrir ári síðan. Við spáum því að verðbólga í júlí muni mælast óbreytt á milli mánaða og standa í 5,2%.  
8. júlí 2026
Spáum óbreyttri verðbólgu í júlí
Við spáum því að verðbólga mælist 5,2% í júlí. Sumarútsölur og lægra bensínverð hafa áhrif til lækkunar í mánuðinum. Flugfargjöld til útlanda munu aftur á móti hafa mest áhrif til hækkunar gangi spá okkar eftir. Við teljum líklegt að verðbólga mælist yfir forsenduákvæði kjarasamninga í næsta mánuði.
Vikubyrjun
6. júlí 2026
Vikubyrjun 6. júlí 2026
Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði milli ára í maí, en gistinóttum Íslendinga fækkaði. Færri ný störf urðu til í Bandaríkjunum í júní en búist var við og verðbólga á evrusvæðinu í júní var lægri en búist var við.
Mánaðamót 2
1. júlí 2026
Mánaðamót 1. júlí 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
29. júní 2026
Vikubyrjun 29. júní 2026
Verðbólga jókst úr 5,1% í 5,2% í júní. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu töluvert meira en við gerðum ráð fyrir, en þau eru nú 28% hærri en á sama tíma í fyrra.
26. júní 2026
Verðbólgumælingin bendir til kólnunar þrátt fyrir hækkun ársverðbólgu
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94% á milli mánaða og verðbólga hækkar því úr 5,1% í 5,2%. Við spáðum því að verðbólga myndi standa í stað. Hækkun á flugfargjöldum hafði mest áhrif til hækkunar á milli mánaða og skýrir sífellt stærri hluta ársverðbólgunnar. Vísbendingar um kólnun í hagkerfinu og minni eftirspurn verða sífellt skýrari.
Vikubyrjun
22. júní 2026
Vikubyrjun 22. júní 2026
Í vikunni fáum við verðbólgutölur fyrir júnímánuð, en við spáum því að verðbólga mælist 5,1% og standi í stað á milli mánaða. Í liðinni viku komu nýjar kortaveltutölur frá Seðlabankanum sem sýna að það hægir á vexti neyslunnar, en þó eru ekki merki um snöggkólnun líkt og fyrri gögn, sem nú hafa verið leiðrétt, höfðu bent til.
18. júní 2026
Áfram rólegt á íbúðamarkaði 
Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,4% á milli mánaða í maí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 2,2% og er talsvert lægri en hækkanir á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur því lækkað um 2,4% á milli ára og maí er sjötti mánuðurinn í röð þar sem raunverð lækkar á þann mælikvarða. Velta á íbúðamarkaði hefur jafnframt verið talsvert minni það sem af er ári en á sama tímabili í fyrra.