Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Verð­bólga hjaðn­ar áfram

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,27% á milli mánaða í janúar, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar því úr 4,8% í 4,6%. Við eigum enn von á að verðbólga hjaðni næstu mánuði og verði 3,9% í apríl.
Fasteignir
30. janúar 2025

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,27% á milli mánaða í janúar og verðbólga lækkar því úr 4,8% í 4,6%, eins og við höfðum spáð. Það sem kom helst á óvart í mælingunni var að janúarútsölur voru ekki eins góðar og við höfðum spáð. Á móti kom að reiknuð húsaleiga lækkaði á milli mánaða í janúar, en við spáðum hækkun. Ársverðbólga án húsnæðis hækkaði á milli mánaða í janúar og mælist nú 3%.   

Reiknuð leiga skýrir hjöðnun verðbólgunnar

Framlag reiknaðrar húsaleigu til ársverðbólgu hefur lækkað síðustu mánuði, sem skýrist af minni hækkunum en á sama tíma fyrir ári. Nú í janúar mælist aftur á móti í fyrsta skipti lækkun á reiknaðri húsaleigu síðan Hagstofan tók upp nýja aðferð við mat á þeim lið. Við spáðum því að liðurinn myndi hækka um 0,6% en hann lækkaði um 0,2%. Hækkanir á rafmagnsverði og hitaveitu nú í janúar voru samanlagt minni en síðustu ár. Rafmagnsverð hækkaði meira en í fyrra en á móti var hækkun á kostnaði vegna hitaveitu minni. Liðurinn hækkaði um 3,5% í ár en um 3,7% í fyrra og hefur því áhrif til lækkunar á ársverðbólgu. 

Samsetning ársverðbólgu hefur nú tekið breytingum. Framlag vöruverðs jókst á milli mánaða sem skýrist að stórum hluta af verri janúarútsölum nú en í fyrra. Verðbólga án húsnæðis hækkar því úr 2,8% í 3% og hefur ekki verið meiri síðan í ágúst síðastliðnum. Það er þó of snemmt að tala um aukinn undirliggjandi verðþrýsting, en það mun skýrast betur þegar útsölurnar ganga til baka næstu tvo mánuði.  

Helstu liðir vísitölunnar:

  • Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,6% á milli mánaða (0,09% áhrif), aðeins umfram okkar spá um 0,4%.  
  • Húsnæði án reiknaðrar leigu hækkaði um tæplega 1% á milli mánaða (0,1% áhrif) en við spáðum 1,35% hækkun. Þar vógust á lækkun á greiddri leigu og hækkun á rafmagnsverði og hitaveitukostnaði. 
  • Reiknuð húsaleiga lækkaði um 0,2% á milli mánaða (-0,04% áhrif), en við spáðum 0,6% hækkun.   
  • Föt og skór lækkuðu um 6,9% á milli mánaða (-0,26% áhrif). Við höfðum spáð 10,7% lækkun. 
  • Flugfargjöld til útlanda höfðu mest áhrif á vísitöluna til lækkunar, en liðurinn lækkaði um 16,2% á milli mánaða (-0,30% áhrif). Þetta var nokkuð meiri lækkun en við gerðum ráð fyrir, en við spáðum 11,8% lækkun milli mánaða. 
  • Verð á bensíni hækkaði um 3,6% (+0,13% áhrif) og hafði mest áhrif til hækkunar í mánuðinum. Hækkunin var eins og við spáðum og skýrist af hækkun á kolefnisgjaldi í mánuðinum.  

Horfur á 3,9% verðbólgu í mars og apríl 

Við gerum nú ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,88% í febrúar, um 0,5% í mars og 0,56% í apríl. Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 4,2% í febrúar og 3,9% í mars og aftur í apríl. Spáin er aðeins hærri en sú síðasta sem við gáfum út, sem skýrist meðal annars af nýjum vogum sem Hagstofan uppfærði við janúarbirtingu VNV.  

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
26. ágúst 2026
Velta eykst í útflutningsgreinum en innlend eftirspurn kólnar
Velta í flestum útflutningsreinum jókst í maí og júní að ferðaþjónustu undanskilinni, samkvæmt nýjum VSK-skýrslum. Aukna veltu útflutningsgreina má að miklu leyti rekja til hagfelldrar þróunar á heimsmarkaðsverði frekar en meiri framleiðslu. Á sama tíma sjást merki um kólnun í innlenda hagkerfinu, einkum í greinum sem reiða sig meira á innlenda eftirspurn.
Vikubyrjun
24. ágúst 2026
Vikubyrjun 24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.
21. ágúst 2026
Íbúðaverð stendur nánast í stað
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.
Stýrivextir
19. ágúst 2026
Vextir hækkaðir en mildari tónn
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.
18. ágúst 2026
Sífellt stærri hluti neyslu Íslendinga fer fram erlendis
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.
Vikubyrjun
17. ágúst 2026
Vikubyrjun 17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.
Stýrivextir
13. ágúst 2026
Spáum vaxtahækkun í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.
13. ágúst 2026
Verðbólguspá fyrir ágúst: óvissa og mikið í húfi
Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.
Vikubyrjun
10. ágúst 2026
Vikubyrjun 10. ágúst 2026
Störfum í Bandaríkjunum fækkaði á milli mánaða í júlí. Í þessari viku verða meðal annars birtar tölur um brottfarir um Keflavíkurflugvöll og skráð atvinnuleysi í júlí. Þá munu nokkur félög einnig birta uppgjör.
Mánaðamót 2
4. ágúst 2026
Mánaðamót 4. ágúst 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.