Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 5,4% verð­bólgu í mars

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,55% á milli mánaða í mars. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,2% í 5,4%. Hærra eldsneytisverð, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum, skýrir að stærstum hluta þá hækkun verðbólgu á milli mánaða sem við spáum. Óljóst er hversu lengi átökin munu standa yfir og hversu langvinn áhrifin á verðbólgu hér á landi verða. Mikið er undir verðbólgumælingum næstu mánaða en forsendur í kjarasamingum á almennum vinnumarkaði byggja á að verðbólga mælist undir 4,7% í ágúst, eða að hún mælist að meðaltali undir 4,4% sex mánuði þar á undan. Auknar líkur eru á því að þær forsendur haldi ekki.
Mánaðamót 4
12. mars 2026

Verðbólga hefur hækkað síðustu mánuði og hafa gjaldskrárhækkanir og hækkun vörugjalda verið fyrirferðamikil. Það er þó ekki eina ástæðan, heldur hefur verðbólga mælst á breiðum grunni þar sem hækkanir mælast almennt á bæði vörum og þjónustu.

Hækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu hefur leitt til þess að bensínverð á dælu hér á landi hefur nú þegar hækkað og mun því hafa bein áhrif á verðmælingar í mars. Hærra eldsneytisverð hefur áhrif á kostnað við nær alla framleiðslu og þjónustu. Dragist átökin á langinn má gera ráð fyrir að þessar kostnaðarhækkanir hafi aukin áhrif á verðlag. Útlitið hefur því versnað frá því að við birtum síðast verðbólguspá.

Mikið undir næstu mánuði

Mikið veltur á verðbólgumælingunni á allra næstu mánuðum. Í ágúst nk. skapast heimild til þess að segja upp kjarasamingum á stórum hluta vinnumarkaðarins ef verðbólga mælist yfir 4,7% og ekki tekst að semja um önnur viðbrögð. Það er þó ekki einungis horft til ágústmánaðar í forsenduákvæðinu heldur teljast forsendur hafa staðist ef verðbólga mælist að jafnaði 4,4% eða lægri sex mánuðina þar á undan. Líkurnar á því að sú forsenda standist hafa þó einnig minnkað.

Gera má ráð fyrir því að sjálfur ágústmánuður líti ekki vel út í verðbólgumælingum. Í fyrsta lagi verður almyrkvi á sólu í ágúst sem mun sjást frá Íslandi og mikil eftirspurn er eftir því að berja hann augum. Það má gera ráð fyrir áhrifum þess á verðlag í ágúst, meðal annars á flugfargjöld og verð á gistiþjónustu. Áhrifin af sólmyrkvanum ættu þó aðeins að vara í ágúst og verð á flugfargjöldum og gistingu ætti að mælast eðlilega næstu mánuði á eftir. Í ágúst kemur hækkun skráningagjalda í opinberum háskólum einnig inn í mælingar, úr 75 þúsund í 100 þúsund krónur, og mun því hafa áhrif til hækkunar þann mánuð.

Eldsneytisverð tekur stökk í mars

Samkvæmt verðmælingu okkar hefur verð á bensíni og dísilolíu hækkað um 5,1% frá því í síðasta mánuði. Hækkun á bensíni og dísilolíu má sem fyrr segir rekja til hækkandi heimsmarkaðsverðs. Þó ómögulegt sé að segja til um þróun stríðsins í Mið-Austurlöndum gerir spáin okkar ráð fyrir að því að olíuverð lækki aftur á næstu mánuðum.

Matarkarfan hækkar minna

Við gerum ráð fyrir að verð á mat og drykkjarvöru hækki um 0,36% í mánuðinum. Síðustu tvo mánuði hefur matarkarfan hækkað um 0,9% svo spáin gerir ráð fyrir að það hægi aðeins á hækkunum. Auknar áhyggjur eru af framboðsskorti af áburði eftir að skipaumferð lokaðist um Hormússund vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Skortur á áburði hefur áhrif á matvælaframleiðslu og því gæti verð á matvöru hækkað ef átökin verða langvinn.

Útsölur klárast

Útsölur á fötum og skóm gengu að stærstum hluta til baka í febrúar. Eftir 7,4% lækkun í janúarútsölum hækkaði liðurinn um 5,1% í febrúar og við gerum ráð fyrir að hann hækki um 2,1% nú í mars. Útsölur á húsgögnum og heimilisbúnaði gengu alveg til baka í síðasta mánuði svo við gerum ekki ráð fyrir sérstökum hækkunum þar.

Flugfargjöld hafa hækkað töluvert

Flugfargjöld hafa hækkað töluvert síðustu þrjá mánuði, en í febrúar mældust þau um 22% dýrari en á sama tíma í fyrra. Páskar eru snemma í apríl í ár og því líklegt að þau hafi einhver áhrif til hækkunar á flugfargjöldum nú í mars. Spáin okkar gerir ráð fyrir að flugfargjöld hækki um 3% á milli mánaða og verði áfram 22% hærri en á sama tíma í fyrra. Næstu mánuði gæti hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu einnig haft áhrif á flugfargjöld en þau hafa nú þegar þrýst upp verði á flugvélaeldsneyti.

Húsnæðisliðurinn til friðs í mars

Við gerum áfram ráð fyrir að að reiknuð húsaleiga hækki um 0,5% næstu mánuði. Það er þó margt sem bendir til þess að hækkunin verði minni frekar en meiri. Síðustu þrjá mánuði hefur hækkunin verið undir spá okkar en síðustu mánuði hefur auk þess hægt á hækkunum á bæði íbúða- og leiguverði. Þá eru engar gjaldskrárhækkanir framundan sem gætu haft áhrif á annan húsnæðiskostnað.

Spá um þróun VNV í mars 2026

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,5% 0,4% 0,06%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,0% 0,00%
Föt og skór 3,6% 2,1% 0,07%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,4% 0,3% 0,03%
Reiknuð húsaleiga 20,7% 0,5% 0,10%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,1% 0,0% 0,00%
Heilsa 4,0% 0,2% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 5,8% 0,0% 0,00%
- Kaup ökutækja 4,7% 0,4% 0,02%
- Bensín og díselolía 2,6% 5,1% 0,13%
- Flugfargjöld til útlanda 2,4% 3,0% 0,07%
Upplýsingar og fjarskipti 4,3% 0,2% 0,01%
Afþreying, íþróttir og menning 9,2% 0,2% 0,01%
Menntun 1,0% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,6% 0,5% 0,03%
Fjármálaþjónusta 1,2% 0,8% 0,01%
Umhirða og félagsþjónusta 3,4% 0,0% 0,00%
Alls 100,0%   0,55%

Verðbólguhorfur hafa versnað

Verðbólguspáin okkar er nokkuð hærri en spáin sem við birtum 26. febrúar, eftir birtingu síðustu verðbólgumælingar. Hærri spá fyrir mars má að stærstum hluta rekja til hærra verðs á eldsneyti. Við höfum einnig uppfært spá okkar fyrir þróun flugfargjalda, en við gerum ráð fyrir að flugfargjöld verði áfram töluvert hærri en í fyrra. Þar má bæði nefna áhrif af minni samkeppni og hækkandi eldsneytiskostnaði. Við gerum ráð fyrir að vísitalan hækki um 0,55% í mars, 0,77% í apríl, lækki síðan um -0,05% í maí og hækki síðan 0,49% í júní. Gangi það eftir mun verðbólga mælast 5,4% í mars, 5,2% í apríl, 4,9% í maí og 4,6% í júní.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.