Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Ertu að missa af 2% launa­hækk­un?

Viðbótarlífeyrissparnaður er hagkvæm leið til að byggja upp sparnað. Við útskýrum hvernig hann virkar, hvað hann kostar þig í raun og hvers vegna það borgar sig að byrja sem fyrst.
13. október 2026

Oft vakna sömu spurningarnar um viðbótarlífeyrissparnað: Hvað er hann eiginlega, hvers vegna ætti ég að vera með hann og hvað kostar hann? Svarið er einfalt, hann er valfrjáls sparnaður sem dreginn er mánaðarlega af laununum þínum. Ef þú leggur 4% fyrir bætir launagreiðandinn almennt 2% við samkvæmt kjarasamningi eða ráðningarsamningi. Samtals fara því 6% af laununum í þinn sparnað, en útborguð laun lækka um minna en 4% þar sem framlagið er dregið frá fyrir skatt.

Hvað þýðir þetta í krónum?

Segjum að þú sért með 700.000 kr. í mánaðarlaun. Þú leggur 4% í viðbótarlífeyrissparnað og færð 2% mótframlag frá launagreiðanda. Þú sparar samtals 42.000 kr. á mánuði en það sem er skemmtilegt við þetta er að útborguð laun lækka bara um 17.363 kr. á mánuði – vegna þess að 4% framlagið þitt dregst af laununum fyrir skatt. Eftir því sem árin líða verður ávöxtunin sífellt stærri hluti sparnaðarins vegna vaxtavaxta.

Miðað við forsendur dæmisins gæti sparnaðurinn þinn orðið 46,6 milljónir króna við 60 ára aldur, þótt samanlögð framlög þín og launagreiðandans væru aðeins 17,6 milljónir. Við 65 ára aldur gæti sparnaðurinn orðið 62,3 milljónir, en þá hefðu samtals 20,2 milljónir verið lagðar inn. Þar af hefðir þú sjálfur greitt 13,4 milljónir og launagreiðandinn 6,7 milljónir.*

Tíminn getur skipt sköpum

Eins og dæmið hér að ofan sýnir geta reglulegar greiðslur, mótframlag launagreiðanda og ávöxtun byggt upp töluverða eign með tímanum. Því fyrr sem þú byrjar, því lengur fær sparnaðurinn að vaxa. Það þýðir þó ekki að það sé of seint að byrja síðar á starfsævinni. Jafnvel nokkur ár í viðbótarlífeyrissparnaði geta aukið fjárhagslegt svigrúm við starfslok.

Ávöxtun er breytileg og fer eftir valinni ávöxtunarleið. Þau sem eiga langt í útgreiðslu geta oft þolað meiri sveiflur, en valið fer eftir aðstæðum og áhættuþoli hvers og eins.

Sparnaðurinn sér að miklu leyti um sig sjálfur

Þegar þú hefur sótt um eru greiðslurnar dregnar sjálfkrafa af laununum og lagðar inn í þá ávöxtunarleið sem þú velur. Þú þarft því ekki að muna eftir að millifæra í hverjum mánuði eða ákveða aftur og aftur hvort þú ætlir að leggja fyrir. Þetta getur verið sérstaklega þægilegt fyrir þau sem eru að taka fyrstu skrefin á vinnumarkaði. Launin berast, sparnaðurinn fer sjálfkrafa til hliðar og þú venst því frá upphafi að ráðstafa hluta teknanna til framtíðar, sama hvar þú ert á starfsævinni.   

Þó þetta sé að mestu sjálfvirkt ferli er samt mikilvægt að hafa í huga að viðbótarlífeyrissparnaður færist ekki alltaf sjálfkrafa milli launagreiðenda. Þegar þú byrjar í nýju starfi skaltu því skrá nýjan launagreiðanda svo greiðslurnar og mótframlagið haldi áfram. 

Sparnaður sem nýtist á ólíkum æviskeiðum

Viðbótarlífeyrissparnaður er fyrst og fremst ætlaður til að styrkja fjárhag þinn eftir starfslok. Hann er almennt laus til útgreiðslu frá 60 ára aldri og getur til dæmis skapað svigrúm til að draga úr vinnu eða hætta fyrr. Útgreiðslur vegna aldurs eru skattlagðar eins og laun en vert er að hafa í huga að ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af ávöxtun eins og á hefðbundnum sparnaði.  

Hvernig getur sparnaðurinn nýst?

  • Aldur - Frá 60 ára aldri
    Til að auka ráðstöfunartekjur, draga úr vinnu eða hætta fyrr. Útgreiðslan er tekjuskattskyld.
  • Fyrsta íbúðin - Skattfrjáls nýting
    Sem útborgun eða greiðsla inn á íbúðalán, að uppfylltum skilyrðum.
  • Örorka - Laus til útgreiðslu
    Ef starfsgeta skerðist vegna örorku. Greiðslur dreifast almennt yfir nokkur ár.
  • Fráfall - Erfist að fullu
    Sparnaðurinn er séreign og erfist samkvæmt reglum erfðalaga.

Sparnaðurinn getur einnig nýst fyrr, meðal annars við fyrstu íbúðarkaup eða vegna örorku. Hann er séreign og erfist að fullu.

Þinn sparnaður, þitt val

Þegar þú byrjar í viðbótarlífeyrissparnaði velur þú ávöxtunarleið sem hentar þínum aldri, markmiðum og áhættuþoli. Hjá Landsbankanum og Íslenska lífeyrissjóðnum er boðið upp á fjölbreytt úrval ávöxtunarleiða, allt frá innlánsleiðum með litlar sveiflur til fjárfestingarleiða sem geta sveiflast meira.  

Gott er að fara reglulega yfir valið, enda ekki gefið að sama leið henti þér alla starfsævina.

Skoðaðu ávöxtunarleiðirnar og finndu leið sem hentar þér

Í Landsbankaappinu getur þú sótt um viðbótarlífeyrissparnað, skráð launagreiðanda, breytt framlagi, valið ávöxtunarleið og fylgst með sparnaðinum. Það getur líka verið gott að taka spjallið og fá ráðgjöf. Við tökum vel á móti þér.  

Þú gætir einnig haft áhuga á
Fólk að ganga í náttúru
8. okt. 2026
Lífið eftir vinnu
Við höfum ólíkar hugmyndir um starfslokin. Sumir vilja hætta snemma, aðrir draga smám saman úr vinnu og enn aðrir vilja vinna eins lengi og þeir geta. Hvernig sem þú sérð lífið eftir vinnu fyrir þér er mikilvægt að huga tímanlega að lífeyrismálum. Góð yfirsýn yfir sparnað og réttindi getur aukið svigrúmið til að velja hvenær og hvernig þú hættir störfum.
Hjón úti í náttúru
8. sept. 2026
Lífeyrisgreiðslur TR á mannamáli
Sjálfsagt höfum við mjög ólíkar hugmyndir um hvernig við viljum eyða efri árunum. Öll eigum við samt sameiginlegt að þurfa að huga vel og tímanlega að því hvernig við fjármögnum þessi ár.
1. júní 2026
Hvað verður (eiginlega) um sumarlaunin?
Fyrsta sumarvinnan er stórt skref. Skyndilega færðu laun inn á reikninginn, kannski heilan helling og þá vakna spurningarnar: Hvað fæ ég mikið útborgað? Hvert fara peningarnir? Og hvað er skynsamlegt að gera við þá?
18. mars 2026
Að velja íbúðalán - Fimm þættir til umhugsunar
Við hvetjum viðskiptavini til að skoða íbúðalánin sín reglulega með kjör, greiðslubyrði og fjárhagslega stöðu heimilisins í huga. Þegar kemur að stórum fjárhagslegum skuldbindingum er að mörgu að huga og mikilvægt að skoða hina ýmsu þætti út frá eigin aðstæðum, til að mynda fasta eða breytilega vexti, verðbólgu, stýrivexti, lánstíma og afborgunarleiðir.
30. jan. 2026
Kaup í sjóðum getur verið einfaldasta leiðin til að dreifa áhættunni
Sjóðir eru í stuttu máli safn margra fjárfestinga og er ætlað að einfalda fólki dreifingu eigna til að draga úr áhættu og sveiflum. Margar tegundir sjóða eru í boði og fylgja þeir ólíkum markmiðum. Sumir sjóðir stefna til dæmis að því að lágmarka áhættu eða sérhæfa sig í tilteknum atvinnugreinum eða hugmyndafræði, s.s. sjálfbærni.
Maður við tölvu
30. jan. 2026
Fyrstu skrefin í verðbréfafjárfestingum
Áður en byrjað er að fjárfesta í verðbréfum er mikilvægt að hafa ákveðin lykilatriði á hreinu og vera meðvituð um áhættuna.
2. jan. 2026
Byrjum árið með góða yfirsýn og setjum okkur sparnaðarmarkmið
Við þekkjum það örugglega mörg að skilja ekkert í því í hvað peningarnir fara og hvers vegna okkur gengur svona hægt að spara. Einföld leið til að breyta þessu er að skapa sér betri yfirsýn yfir fjármálin.
Guðrún H. Bjarnadóttir
28. nóv. 2025
Aukakrónur koma sér vel um jólin
Þegar jólin nálgast eru það oft litlu hlutirnir sem gleðja mest – ljósin, ilmurinn af jólabakstrinum og litlu samverustundirnar með fjölskyldunni. Margt smátt gerir eitt stórt og það vita Aukakrónusafnarar, sem margir hverjir safna Aukakrónum í myndarlegan jólasjóð sem hægt er að nýta í jólagjafir, jólamatinn eða til að gera sér dagamun um jólin.
21. nóv. 2025
Hvernig virkar greiðslubyrðarhlutfall þegar ég sæki um íbúðalán?
Greiðslubyrðarhlutfall er nýlegt hugtak þegar kemur að umsóknum um íbúða- og fasteignalán. Útreikningurinn á hlutfallinu vefst líka fyrir mörgum en hann er misjafn eftir lánaflokkum.
26. sept. 2025
Þetta er gott að vita áður en þú kaupir í sjóði
Fjárfesting í verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum er vinsæl leið til að ávaxta sparifé. Ef þú ert að velta fyrir þér að setja sparnaðinn þinn, eða hluta af honum, í sjóð er gott að þekkja nokkur lykilhugtök.