Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Hvað verð­ur (eig­in­lega) um sum­ar­laun­in?

Fyrsta sumarvinnan er stórt skref. Skyndilega færðu laun inn á reikninginn, kannski heilan helling og þá vakna spurningarnar: Hvað fæ ég mikið útborgað? Hvert fara peningarnir? Og hvað er skynsamlegt að gera við þá?
1. júní 2026 - Landsbankinn

Það er mjög misjafnt hvað ungmenni geta haft í laun fyrir sumarstarf en ef þú ert með sumarstarf í matvöruverslun getur þú jafnvel búist við að fá 1,5 milljónir í útborguð laun fyrir sumarið. Samkvæmt upplýsingum frá VR er raunhæft að miða við að ungmenni sem gengur vaktir í fullu starfi hjá matvöruverslun, sem er meira en eingöngu dagvinna, geti verið með um 550.000 kr. í laun á mánuði.

Af launum er tekinn skattur, greiðslur í lífeyrissjóð, aðildargjald til stéttarfélags og fleira. Ef þú ert 16 ára eða eldri áttu rétt á persónuafslætti sem er hægt að nota til að lækka tekjuskattinn. Persónuafslátturinn safnast upp og ef þú ert með lægri tekjur en um 240.000 kr. á mánuði að meðaltali sleppur þú við að greiða skatta.

Þú færð samt ekki allt útborgað og líklega er hægt að miða við að þú fáir um 500.000 krónur í vasann á mánuði. Þú getur þess vegna verið með allt að 1,5 milljónir í útborguð laun fyrir þriggja mánaða sumarvinnu. Það er slatti!

Fjögur góð ráð til að spara

Hér eru nokkur atriði sem við mælum með að þú gerir til að draga úr útgjöldum og  til að auka tekjurnar (án þess að vinna meira).

  1. Reyndu að standast freistingar. Ferðir í ísbúð og kaup á skyndibita eru dýrar. Hugsaðu þig vandlega um áður en þú kaupir ný föt, hvað þá nýjan síma eða önnur dýr tæki. Hugsaðu þig líka vel um áður en þú kaupir bíl því reksturinn á bíl kostar mörg hundruð þúsund krónur á ári og þá er sparnaðurinn fljótur að hverfa.
  2. Skráðu þig í viðbótarlífeyrissparnað. Ef þú greiðir 2-4% af launum í viðbótarlífeyrissparnað færðu aukalega 2% frá vinnuveitanda (11.000 kr. á mánuði m.v. dæmið hér að ofan). Þessi 2% frá vinnuveitanda eru í raun launahækkun sem þú færð bara ef þú ert með viðbótarlífeyrissparnað. Seinna getur þú nýtt viðbótarlífeyrissparnaðinn, skattfrjálst, til þess að kaupa þína fyrstu íbúð.
  3. Geymdu peninginn á góðum vöxtum. Laun eru vanalega lögð inn á veltureikninga en þeir bera lága vexti. Færðu peninginn inn á sparireikning og geymdu hann þar en taktu út eftir þörfum. Ef þú ert með 1.000.000 kr. inni á t.d. Markmiðsreikningi í Landsbankaappinu færðu rúmar 71.000 kr. í vaxtatekjur á ári.* Af vaxtatekjum þarf síðan að greiða fjármagnstekjuskatt. Frítekjumark vegna fjármagnstekna er 150.000 krónur á ári. Ef þetta eru þínar einu fjármagnstekjur á árinu þá færðu skattinn endurgreiddan.
  4. Ekki taka neyslulán. Þegar þú verður 18 ára verður þú fjárráða sem þýðir m.a. að þú getur tekið neyslulán. Neyslulán eru t.d. skammtímalán en líka bílalán og greiðsludreifing á kreditkortareikningum. Svona lán á bara að taka ef ekki verður hjá því komist. Þau eru dýr, þú borgar oft háa vexti og gjöld og þau draga mikið úr möguleikum þínum á að spara.

Það kostar ekkert að stofna Markmiðsreikning í appinu og þú getur átt marga í einu. Ef þú ert að spara fyrir íbúð getur þú stofnað sérstakan reikning fyrir íbúðasparnaðinn.

Hvað munt þú eiga í lok sumars?

Það kostar að lifa og peningurinn er fljótur að hverfa ef maður passar sig ekki. Hér er miðað við að mánaðarleg útgjöld að sumarlagi séu 90.000 kr. En ef við miðum við að þú hafir skráð þig í viðbótarlífeyrissparnað, hafir lagt inn á sparireikning og staðist flestar freistingar þá gæti dæmið litið svona út:

  • Inneign á sparireikningi í lok sumars: 1.230.000 kr.
  • Framlag vinnuveitanda í viðbótarlífeyrissparnaði: 33.000 kr.
  • Framlag þitt í viðbótarlífeyrissparnað: 66.000 kr.
  • Samtals eign eftir sumarið: 1.359.000 kr.

Þetta dæmi miðast við ungmenni sem býr hjá foreldrum/forráðamönnum og þarf ekki að sjá um uppihald, námskostnað og þess háttar. Slíkt á auðvitað alls ekki við um öll ungmenni en það er líka ljóst að mörg eru í þeirri stöðu.

Hvernig ætlar þú að lifa veturinn af?

Ef þú hefur fengið vinnu í matvöruverslun getur þú kannski samið um að vinna um helgar, hálfan dag eða eitt kvöld í viku yfir vetrarmánuðina, þ.e. ef þú getur vegna náms, íþrótta og tómstunda. Launin þín gætu dugað fyrir útgjöldum yfir veturinn og þá getur þú látið sumarlaunin – eða stærstan hluta þeirra – halda áfram að safna vöxtum.

Það munar um sumarsparnaðinn

Það er mikilvægt að hugsa vel um peningana sína. Ef þú nærð að spara sumarlaunin þín getur þú safnað þér töluvert hárri fjárhæð sem kemur sér vel síðar meir, t.d. þegar þú vilt kaupa þér íbúð eða borga fyrir eitthvað annað gagnlegt.

Þú gætir einnig haft áhuga á
30. jan. 2026
Kaup í sjóðum getur verið einfaldasta leiðin til að dreifa áhættunni
Sjóðir eru í stuttu máli safn margra fjárfestinga og er ætlað að einfalda fólki dreifingu eigna til að draga úr áhættu og sveiflum. Margar tegundir sjóða eru í boði og fylgja þeir ólíkum markmiðum. Sumir sjóðir stefna til dæmis að því að lágmarka áhættu eða sérhæfa sig í tilteknum atvinnugreinum eða hugmyndafræði, s.s. sjálfbærni.
24. mars 2021
Aldrei of snemmt að byrja að spara
Sparnaður er góð leið til þess að láta drauma sína rætast. Það er gaman að sjá fjárhæðina hækka og því fylgir öryggistilfinning að eiga fyrir óvæntum útgjöldum. Svo er mikið frelsi fólgið í því að geta keypt sér það sem mann vantar eða bara langar í, þegar maður vill.
Maður við tölvu
30. jan. 2026
Fyrstu skrefin í verðbréfafjárfestingum
Áður en byrjað er að fjárfesta í verðbréfum er mikilvægt að hafa ákveðin lykilatriði á hreinu og vera meðvituð um áhættuna.
2. jan. 2026
Byrjum árið með góða yfirsýn og setjum okkur sparnaðarmarkmið
Við þekkjum það örugglega mörg að skilja ekkert í því í hvað peningarnir fara og hvers vegna okkur gengur svona hægt að spara. Einföld leið til að breyta þessu er að skapa sér betri yfirsýn yfir fjármálin.
26. sept. 2025
Þetta er gott að vita áður en þú kaupir í sjóði
Fjárfesting í verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum er vinsæl leið til að ávaxta sparifé. Ef þú ert að velta fyrir þér að setja sparnaðinn þinn, eða hluta af honum, í sjóð er gott að þekkja nokkur lykilhugtök.