Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Vísi­tala íbúða­verðs á hraðri upp­leið

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Nafnverð íbúða er 8,4% hærra en á sama tíma í fyrra og raunverð íbúða er 4% hærra. Undirritaðir kaupsamningar um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu voru 150% fleiri í maí á þessu ári en í maí í fyrra.  
Fjölbýlishús
19. júní 2024

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Hækkunin er sú fjórða í röð, en vísitalan hækkaði um 0,8% í mars og apríl og um 1,9% í febrúar. Nýrri vísitölu íbúðaverðs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er skipt bæði eftir tegundum húsnæðis, þ.e. fjölbýli eða sérbýli og staðsetningu, þ.e. á höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni. Í maí hækkaði íbúðaverð um 1,8% á landsbyggðinni en um 1,2% á höfuðborgarsvæðinu.

Íbúðaverð hækkað um 8,4% á tólf mánuðum

Á síðustu 12 mánuðum hefur íbúðaverð hækkað þó nokkuð meira en verðlag í landinu almennt. Í maí hafði verðlag hækkað um 6,2% á síðustu 12 mánuðum en íbúðaverð um 8,4%. Árshækkun vísitölunnar hefur aukist statt og stöðugt frá lægsta punkti í 0,8% í júlí í fyrra.

Raunverð 4% hærra en á sama tíma í fyrra

Árshækkun raunverðs mælist nú 4,0% og hefur ekki verið meiri síðan í janúar 2023. Í mars í fyrra tók raunverð að lækka og lækkunin varð mest 6% á ársgrundvelli í júlí í fyrra.  Raunverð tók svo aftur við sér þegar verðbólga fór að hjaðna á sama tíma og líf færðist yfir íbúðamarkað. Raunverð fæst með því að taka tillit til verðbólgu, en til þess notum við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Raunverð lækkar þannig á milli ára ef árshækkun íbúðaverðs er minni en árshækkun vísitölu neysluverðs án húsnæðis.

Kaupsamningum snarfjölgar

Undirrituðum kaupsamningum fjölgar verulega í maí miðað við sama tíma í fyrra. Eftir samfellda fækkun á milli ára frá miðju ári 2021 tók kaupsamningum að fjölga aftur síðastliðið haust. Fjölgunin á milli ára hefur verið sífellt meiri með hverjum mánuðinum sem líður og í maí voru 150% fleiri kaupsamningar undirritaðir á höfuðborgarsvæðinu en í sama mánuði í fyrra.

Verðtryggð lántaka áberandi

Vaxtastigið hefur haft áþreifanleg áhrif á eftirspurn eftir ólíkum tegundum íbúðalána. Vinsældir verðtryggðra lána tóku að aukast við upphaf síðasta árs, þegar vaxtastig var farið að hafa veruleg áhrif á afborganir af óverðtryggðum lánum. Lántakar með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum hófu að greiða upp lánin og í rúmt ár hafa mun hærri upphæðir farið í uppgreiðslu á slíkum lánum en í töku nýrra lána. Á sama tíma hafa verðtryggð lán á breytilegum vöxtum verið langvinsælust, þótt einhverjir virðist enn festa vexti á nýjum verðtryggðum lánum.  

Nýjustu gögn af íbúðamarkaði bera þess merki að eftirspurn eftir húsnæði sé mikil, þrátt fyrir hátt vaxtastig. Ýmsar skýringar kunna að liggja að baki hækkandi verði og aukinni veltu. Líklega spila Grindavíkuráhrifin stórt hlutverk, auk þess sem þættir eins og væntingar um vaxtalækkanir og þörf á húsnæði hljóta að hafa áhrif. Haldi þessi þróun áfram er ekki ólíklegt að íbúðaverð hækki þó nokkuð á þessu ári og það umfram almennt verðlag.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Hagfræðideildar Landsbankans hf. (hagfraedideild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Hagfræðideild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
1. sept. 2026
Mánaðamót 1. september 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
31. ágúst 2026
Ál og fiskur skýra samdrátt á öðrum fjórðungi
Landsframleiðsla dróst saman um 1,1% á milli ára á öðrum ársfjórðungi. Samdráttur í vöruútflutningi, sér í lagi áli og sjávarafurðum skýrir samdráttinn að mestu. Minni vöxtur var í einkaneyslu. Fjárfesting, önnur en atvinnuvega, dróst saman.
Vikubyrjun
31. ágúst 2026
Vikubyrjun 31. ágúst 2026
Verðbólga mældist 5,6% í ágúst. Samkvæmt VSK-skýrslum jókst velta í helstu útflutningsgreinum í maí og júní, að ferðaþjónustu undanskilinni. Mörg félög í kauphöllinni birtu uppgjör í síðustu viku. Í dag birtir Hagstofan þjóðhagsreikninga fyrir annan ársfjórðung.
27. ágúst 2026
Verðbólga eykst í 5,6% - hækkanir á breiðum grunni
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli mánaða í ágúst og verðbólga hækkar því úr 5,3% í 5,6%. Við spáðum 5,5% verðbólgu í ágúst. Áhrif sólmyrkvans á verðmælingar í mánuðinum voru hóflegri en við höfðum spáð. Verðhækkanir í mánuðinum voru því á breiðari grunni en við gerðum ráð fyrir í spánni. Það er óheppileg þróun, haldi hún áfram.
26. ágúst 2026
Velta eykst í útflutningsgreinum en innlend eftirspurn kólnar
Velta í flestum útflutningsreinum jókst í maí og júní að ferðaþjónustu undanskilinni, samkvæmt nýjum VSK-skýrslum. Aukna veltu útflutningsgreina má að miklu leyti rekja til hagfelldrar þróunar á heimsmarkaðsverði frekar en meiri framleiðslu. Á sama tíma sjást merki um kólnun í innlenda hagkerfinu, einkum í greinum sem reiða sig meira á innlenda eftirspurn.
Vikubyrjun
24. ágúst 2026
Vikubyrjun 24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.
21. ágúst 2026
Íbúðaverð stendur nánast í stað
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.
Stýrivextir
19. ágúst 2026
Vextir hækkaðir en mildari tónn
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.
18. ágúst 2026
Sífellt stærri hluti neyslu Íslendinga fer fram erlendis
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.
Vikubyrjun
17. ágúst 2026
Vikubyrjun 17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.