Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Vís­bend­ing­ar um að einka­neysla gefi eft­ir

Kortavelta íslenskra heimila dróst verulega saman á milli ára í apríl, eða um alls 5,8% að teknu tilliti til verðlags og gengis. Svo mikill samdráttur hefur ekki mælst síðan í febrúar 2021. Peningastefnunefnd fundar í dag vegna vaxtaákvörðunar á morgun, en við gerum áfram ráð fyrir 0,25 prósentustiga hækkun vaxta.
19. maí 2026

Greiðslukortavelta Íslendinga dróst verulega saman á milli ára í apríl, eða um 5,8% að teknu tilliti til verðlags og gengis. Leita þarf aftur til Covid-áranna til að finna álíka samdrátt. Á heildina litið hægði verulega á vexti kortaveltu á fyrsta ársfjórðungi og eru fleiri vísbendingar um að Íslendingar séu að draga úr einkaneyslu. Utanlandsferðir hafa til að mynda dregist verulega saman það sem af er ári, sem og sala á nýjum bílum, en það skýrist einnig af aukinni sölu fyrir áramót vegna breytinga á gjaldtöku.

Vísbendingar um samdrátt í einkaneyslu

Kortavelta Íslendinga innanlands dróst saman um 8,2% í apríl, leiðrétt fyrir verðlag. Svo mikið hefur hún ekki dregist saman síðan í október 2020. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem kortavelta Íslendinga innanlands dregst saman, en samdrátturinn var mun minni í febrúar og mars. Breyting á fyrirkomulagi gjaldtöku hins opinbera á eldsneyti gæti einnig skýrt samdrátt í kortaveltu að hluta.

Kortavelta Íslendinga erlendis jókst aftur á móti lítillega á milli ára í apríl, eða um 2%, og er þetta þó nokkuð hægari vöxtur en síðustu mánuði. Íslendingar fóru í 30% færri utanlandsferðir í apríl í ár en í fyrra, en það skýrist að einhverju leyti af tímasetningu páskanna sem voru alveg í byrjun apríl í ár. Það var engu að síður töluverður samdráttur í utanlandsferðum Íslendinga þótt mars og apríl séu teknir saman, eða tæplega 20%.

Flest bendir því til þess að það sé að hægja á einkaneyslu og Íslendingar eru farnir að halda að sér höndum. Mikill kraftur var í einkaneyslu í fyrra, þar sem Íslendingar slógu met í utanlandsferðum og sala nýrra bíla stórjókst á milli ára. Sú þróun hefur nú alveg snúist við. Í síðustu hagspá sem við gáfum út um miðjan apríl gerðum við ráð fyrir mjög hægum vexti einkaneyslu í ár, en haldi nýleg þróun áfram út árið mætti jafnvel gera ráð fyrir lítils háttar samdrætti í einkaneyslu á árinu.

Gerum áfram ráð fyrir vaxtahækkun á morgun

Það verður sífellt skýrara að hátt vaxtastig er að kæla hagkerfið og peningastefnunefnd er eflaust fegin að sjá mjög skýr merki þess. Minni kortavelta og minni neysla almennt dregur úr verðbólguþrýstingi sem er það sem Seðlabankinn vill sjá. Við teljum þó að þessar kortaveltutölur einar og sér hafi ekki mjög mikil áhrif á ákvörðun peningastefnunefndar, þó hún hjálpi eflaust við að taka minna skref en ella. Seðlabankinn vill bæði sjá verðbólgu lækka og ná tökum á verðbólguvæntingum. Við spáum því áfram að vextir verði lækkaðir um 0,25 prósentustig á morgun.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
18. maí 2026
Vikubyrjun 18. maí 2026
Í vikunni fram undan er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands og við spáum 0,25 prósentustiga hækkun. Fjöldi ferðamanna á fyrstu fjórum mánuðum ársins var svipaður og á sama tímabil í fyrra samkvæmt tölum sem birtust í síðustu viku. Utanlandsferðum Íslendinga hefur aftur á móti fækkað töluvert. Atvinnuleysi heldur áfram að aukast á milli ára.
Stýrivextir
13. maí 2026
Spáum 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga er enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar hafa reynst þrálátar. Að okkar mati mun það ráða mestu um að nefndin haldi áfram vaxtahækkunarferlinu sem hófst í mars.
12. maí 2026
Spáum 4,9% verðbólgu í maí
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13% á milli mánaða í maí. Gangi spáin eftir mun verðbólga lækka úr 5,2% í 4,9%. Lægra eldsneytisverð vegna lækkunar á virðisaukaskatti og lækkun flugfargjalda hafa mest áhrif til lækkunar á milli mánaða samkvæmt spánni. Við spáum að verðbólga mælist 4,9% í ágúst og kjarasamningar því mögulega í húfi.
Vikubyrjun
11. maí 2026
Vikubyrjun 11. maí 2026
Starfandi samkvæmt skrám fækkaði á milli ára. Frjósemi á Íslandi síðastliðin tvö ár hefur ekki mælst minni síðan mælingar hófust. Í þessari viku fáum við m.a. ferðamannatölur og atvinnuleysi ásamt uppgjörum frá félögum.
8. maí 2026
Stöðugleiki á gjaldeyrismarkaði - spáum þó lítils háttar veikingu
Það sem af er ári hefur krónan styrkst og evran stendur núna í 144 krónum. Nokkuð gott jafnvægi hefur verið á milli innflæðis og útflæðis á gjaldeyrismarkaði. Raungengi er mjög hátt og við eigum von á að krónan veikist næstu ár.
4. maí 2026
Sólmyrkvinn gæti skapað verðbólguskot á versta tíma
Almyrkvi á sólu verður sýnilegur á vesturhluta landsins þann 12. ágúst næstkomandi. Gríðarleg eftirspurn er eftir flugi til landsins, gistingu, veitingaþjónustu og bílaleigubílum á þeim tíma og mikið er uppbókað nú þegar. Aukin velta og verðþrýstingur á ýmissi þjónustu verður líklega töluverð á þeim svæðum sem sólmyrkvinn sést.
Mánaðamót 2
4. maí 2026
Mánaðamót 4. maí 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
4. maí 2026
Vikubyrjun 4. maí 2026
Verðbólga lækkaði úr 5,4% í 5,2% í apríl og gistinóttum á hótelum fjölgaði á milli ára. Seðlabanki Bandaríkjanna, Seðlabanki Evrópu og Englandsbanki héldu vöxtum óbreyttum.
29. apríl 2026
Verðbólga hjaðnar í 5,2%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,81% og lækkar verðbólga við það úr 5,4% í 5,2%. Við höfðum spáð því að verðbólga myndi hækka í 5,5%. Mestu munaði að flugfargjöld hækkuðu nokkuð minna í apríl en við höfðum spáð. Eldsneytisverð hefur áfram mest áhrif til hækkunar á milli mánaða. Mælingin eykur líkur á því að Seðlabankinn taki minna hækkunarskref í maí.
27. apríl 2026
Hægari verðhækkanir á íbúðamarkaði og raunverðslækkanir í kortunum
Hátt vaxtastig, ströng lánþegaskilyrði og breytt lánaframboð hafa dregið úr verðhækkunum á íbúðamarkaði. Raunverð íbúða hefur nú lækkað nokkra mánuði í röð og við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram. Framboð íbúða til sölu hefur aukist hratt og birgðatími hefur lengst, sérstaklega á nýjum íbúðum.