9. október 2017
Vikan framundan
- Eftir lokun markaða í dag birta Lánamál ríkisins markaðsupplýsingar.
- Á morgun birtir Hagstofan efnahagslegar skammtímatölur.
- Á miðvikudag birtir Hagstofan fjármálareikninga.
- Á föstudag birtir Vinnumálastofnun tölur um skráð atvinnuleysi.
Mynd vikunnar
Á fyrstu 8 mánuðum ársins jókst fjöldi gistinátta á Suðurnesjum um 79% miðað við sama tímabil í fyrra en þeim fækkaði hins vegar um 0,8% á Austurlandi. Næstmesta aukningin í fjölda gistinátta var á Suðurlandi þar sem þeim fjölgaði um 27%.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lækkaði óvænt vexti bankans um 0,25 prósentustig.
- Hagstofan birti samantektir um eigna- og skuldastöðu einstaklinga byggt á skattframtölum, tekjur einstaklinga byggt á skattframtölum og laun byggt á launarannsókn Hagstofunnar.
- Hagstofan birti bráðabirgða ferðaþjónustureikninga fyrir 2016.
- Samkvæmt bráðabirgðatölum voru vöruskipti í september óhagstæð um 19,2 ma.kr.
- Landsbankinn og Íslandsbanki héldu víxlaútboð.
- Reginn, Lánasjóður sveitafélaga, Arion banki, Lýsing og Lánamál ríkisins héldu skuldabréfaútboð.
- Við birtum Hagsjár um vinnumarkaðinn og hótelmarkaðinn.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á

7. maí 2025
Ætla má að um þriðjungur íslenskra vara sem fluttar eru frá Íslandi til Bandaríkjanna sé undanþeginn þeim tollum sem nú eru í gildi, til dæmis lyf og flestar lækningavörur. Óvissa um framvindu mála í alþjóðaviðskiptum getur samt ein og sér leitt til þess að fyrirtæki halda að sér höndum og ráðast síður í nýjar fjárfestingar. Á síðasta ári fór um 12% af vöruútflutningi Íslands til Bandaríkjanna.

5. maí 2025
Í apríl jókst verðbólga úr 3,8% í 4,2%, nokkuð umfram okkar spá um 4,0% verðbólgu. Velta samkvæmt VSK-skýrslum jókst á milli ára í flestum atvinnugreinum á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Á fyrsta ársfjórðungi mældist hagvöxtur á evrusvæðinu en samdráttur í Bandaríkjunum. Í þessari viku er vaxtaákvörðun í Bandaríkjunum og einnig í Bretlandi.

2. maí 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

2. maí 2025
Ör fólksfjölgun og hækkun húsnæðisverðs hefur aukið eftirspurn eftir leiguíbúðum. Stærstur hluti Airbnb-íbúða er nú leigður út af leigusölum með fleiri en tvær íbúðir í útleigu. Frumvarp um hert skilyrði um skammtímaleigu hefur verið sett í samráðsgátt. Hömlur á skammtímaleigu gætu aukið framboð leiguíbúða og jafnvel söluframboð.

29. apríl 2025
Verðbólga mældist 4,2% í apríl og hækkaði úr 3,8% frá því í mars. Verðbólga var umfram okkar spá, einkum vegna þess að reiknuð húsaleiga og verð á matvörum hækkaði meira en við bjuggumst við.

28. apríl 2025
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) birti nýja efnahagsspá um páskana. Hagvaxtarhorfur í heiminum hafa verið færðar niður og AGS telur að spenna í alþjóðaviðskiptum og veruleg óvissa komi til með að draga úr umsvifum í heimshagkerfinu.

28. apríl 2025
Hagstofan birtir verðbólgutölur fyrir aprílmánuð á morgun og við búumst við að verðbólga hækki tímabundið upp í 4%. Í vikunni fáum við fyrstu uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung og fyrsta mat á hagvexti í Bandaríkjunum og á evrusvæðinu á fyrsta ársfjórðungi.

23. apríl 2025
Við teljum horfur á tiltölulega hófstilltum verðhækkunum á íbúðamarkaði næstu árin, 5,9% hækkun á þessu ári, 4,8% hækkun á næsta ári og 6,4% hækkun árið 2027. Til samanburðar hefur íbúðaverð hækkað um 9% á ári að jafnaði frá aldamótum, og að meðaltali um 13% á ári frá árinu 2021.

22. apríl 2025
Leiguverð hefur hækkað um 11,3% á síðustu tólf mánuðum, þó nokkuð meira en íbúðaverð sem hefur hækkað um 8% á sama tímabili. Hækkanir á íbúða- og leigumarkaði eru þó nokkuð umfram almennar verðhækkanir í landinu, en verðbólga mældist 3,8% í mars. Áfram er kraftur í innlendri neyslu, greiðslukortavelta heimila hefur aukist statt og stöðugt síðustu mánuði og var 1,8% meiri í mars síðastliðnum en í mars í fyrra.

16. apríl 2025
Sviptingar í alþjóðaviðskiptum gætu haft margvísleg áhrif á ferðaþjónustu hér á landi. Tollar gætu rýrt kaupmátt Bandaríkjamanna og haft áhrif á komur þeirra hingað til lands. Auk þess eru merki um að áhugi Evrópubúa á að heimsækja Bandaríkin fari dvínandi, sem gæti haft áhrif hingað heim, enda hafa Evrópubúar gjarnan komið við á Íslandi á leið sinni vestur um haf. Í nýrri hagspá gerum við ráð fyrir samdrætti í ferðaþjónustu á þessu ári, en að hún taki aftur við sér á næstu tveimur árum.