2. nóvember 2018
Vikan framundan
- Á þriðjudag birtir Reginn árshlutauppgjör.
- Á miðvikudag verður vaxtaákvörðun peningastefnunefndar birt ásamt útgáfu Peningamála 2018/4. Sýn birtir níu mánaða uppgjör.
- Á fimmtudag birtir Arion banki níu mánaða uppgjör.
- Á föstudag birta Lánamál ríkisins mánaðarlegt markaðsupplýsingarit sitt.
Mynd vikunnar
Á miðvikudag verður vaxtaákvörðun peningastefnunefndar kynnt. Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hefur hækkað hratt síðustu vikur og verðbólguvæntingar mælast nú yfir verðbólgumarkmiðinu á alla helstu mælikvarða. Að okkar mati eykur þetta líkurnar á því að peningastefnunefndin finni sig knúna að grípa til aðgerða.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Við birtum nýja þjóðhags- og verðbólguspá.
- Upptökur frá morgunfundi sem haldinn var í því tilefni eru aðgengilegar á vef bankans.
- Seðlabankinn tilkynnti um breytingu á bindiskyldu vegna nýs innstreymis erlends gjaldeyris
- Verðbólgan mældist 2,8% í október.
- Hagar, Síminn, Icelandair, Eik, Arion banki, Origo, Marel og Sjóvá birtu níu mánaða uppgjör.
- Sýn birti afkomuviðvörun.
- Hagstofan birti þjóðhagsspá.
- Hagstofan birti yfirlit um rekstur helstu greina sjávarútvegs.
- Samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar var rúmlega fjórðungur heimila á leigumarkaði 2016.
- Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar var atvinnuleysi 2,2% á 3. árfjórðungi.
- Gistinóttum fjölgaði um 11% á milli ára í september.
- Lykill fjármögnun seldi skuldabréf.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Hagtölur 5. nóvember 2018 (PDF)
Þú gætir einnig haft áhuga á

12. júní 2026
Fjölgun sumarhúsa hér á landi hefur haldist nokkuð stöðug síðasta áratug, en rúmlega helmingur sumarhúsa landsins er staðsettur á Suðurlandi. Kaupsamningum hefur fækkað lítillega frá því í fyrra og verðhækkanir hafa verið hóflegar.

11. júní 2026
Við spáum því að verðbólga standi í stað í júní og mælist aftur 5,1%. Ferðaþjónustutengdir liðir hækka alla jafna í júní og mun verð á flugfargjöldum til útlanda hafa mest áhrif til hækkunar, gangi spáin eftir. Við gerum einnig ráð fyrir hækkun á hótelum og veitingastöðum í júnímælingunni. Við gerum ráð fyrir að verðbólga aukist næstu mánuði og teljum nánast öruggt að forsendur kjarasamninga bresti í ágúst.

8. júní 2026
Á fyrsta ársfjórðungi mældist minni halli á viðskiptum við útlönd en á sama tíma í fyrra. Í síðustu viku birti HMS fasteignamat fyrir 2027, en fasteignamat lækkaði að raunvirði á milli ára.

1. júní 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

1. júní 2026
Samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar mældist 2,7% hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,07% á milli mánaða og verðbólga lækkaði því úr 5,2% í 5,1%.

29. maí 2026
Landsframleiðsla jókst um 2,7% á milli ára að raunvirði á fyrsta fjórðungi ársins. Mest var framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar sem skýrist að mestu af auknum umsvifum gagnavera. Einkaneysla jókst einnig á fjórðungnum þó hægt hafi á vexti hennar.

28. maí 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,07% á milli mánaða og verðbólga lækkar því úr 5,2% í 5,1%. Við höfðum spáð því að verðbólga myndi lækka í 4,9%. Hækkun á flugfargjöldum hafði mest áhrif til hækkunar á ársverðbólgu í mánuðinum en lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti hafði mest áhrif til lækkunar. Án lækkunarinnar á virðisaukaskatti hefði verðbólga mælst 5,5%. Athygli vekur að verð á mat og drykk lækkaði á milli mánaða, annan mánuðinn í röð.

27. maí 2026
Þrátt fyrir minna flugframboð um Keflavíkurflugvöll hafa jafn margir erlendir ferðamenn farið um flugvöllinn fyrstu fjóra mánuði ársins í ár og í fyrra. Á móti fara færri tengifarþegar um flugvöllinn og utanlandsferðir Íslendinga hafa dregist verulega saman. Þó sumarið líti ágætlega út er meiri óvissa um haustið.

26. maí 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti bankans um 0,25 prósentustig í síðustu viku, líkt og við höfðum spáð. Nú í vikunni koma verðbólgutölur og þjóðhagsreikningar.

20. maí 2026
Peningastefnunefnd hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig annað skiptið í röð og segist tilbúin til að hækka vexti enn frekar. Efnahagshorfur hafa þó versnað verulega að mati bankans, en verðbólguspá var hækkuð í nýútgefnum Peningamálum og hagvaxtaspá lækkuð auk þess sem gert er ráð fyrir auknu atvinnuleysi. Kólnunin í hagkerfinu mun þó gera það að verkum að hættan á aukinni verðbólgu fram á við er minni.