Vikubyrjun 4. febrúar
Verðbólgan mældist 3,4% í janúar og hefur aukist nokkuð frá síðasta sumri. Auk þess að hækka þá er verðbólgan orðin mun almennari. Ef við lítum á mestu sundurliðun vísitölunnar sem Hagstofan birtir (169 undirliðir) sést að um 80% undirliða hafa hækkað síðustu tólf mánuði en síðasta sumar voru álíka margir sem höfðu hækkað og lækkað.
4. febrúar 2019
Vikan framundan
- Á miðvikudaginn er stýrivaxtaákvörðun og við spáum óbreyttum vöxtum. Samhliða ákvörðuninni veða Peningamál 2019/1, með nýrri verðbólgu- og þjóðhagsspá, birt. Marel birtir ársuppgjör sama dag.
- Á fimmtudag birta Landsbankinn og Icelandair ársuppgjör. Seðlabankinn birtir útreikninga á raungengi í janúar og upplýsingar um millibankamarkað með gjaldeyri og krónur.
- Á föstudag er fyrirhugað útboð ríkisbréfa.
Mynd vikunnar
Verðbólgan í janúar mældist 3,4% og hefur aukist nokkuð frá síðasta sumri. Auk þess að hækka þá er verðbólgan orðin mun almennari. Ef við lítum á mestu sundurliðun vísitölunnar sem Hagstofan birtir (169 undirliðir) sést að um 80% undirliða hafa hækkað síðustu tólf mánuði en síðasta sumar voru álíka margir sem höfðu hækkað og lækkað. Fara þarf aftur til 2013 til að sjá jafn almennar verðhækkanir hér á landi.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Verðbólga mældist 3,4% í janúar.
- Seðlabankinn birti niðurstöður úr síðustu könnun á væntingum markaðsaðila.
- Ferðamálastofa birti í fyrsta sinn ritið Ferðaþjónusta í tölum.
- Landsmönnum fjölgaði um 1.420 á 4. ársf. 2018.
- Kortavelta ferðamanna jókst um 9,4% milli ára í fyrra.
- Hagstofan birti uppfærðar tölur um vöruskipti við útlönd í fyrra.
- Gistinóttum fjölgaði um 4% milli ára í desember.
- Þjóðskrá birti yfirlit yfir hverjir eiga í viðskiptum með íbúðarhúsnæði.
- Íslandsbanki ákvað að endurnýja ekki samning um lánshæfi við Fitch Ratings.
- Vinnumálastofnun tók saman tölfræði um atvinnuástandið á síðasta ári.
- Hagar og Origo birtu uppgjör.
- VÍS birti afkomuspá fyrir 2019.
- Íslandsbanki lauk útboði sértryggðra skuldabréfa og Lánamál ríkisins luku útboði ríkisvíxla.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Hagtölur 4. febrúar 2019 (PDF)
Þú gætir einnig haft áhuga á

28. maí 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,07% á milli mánaða og verðbólga lækkar því úr 5,2% í 5,1%. Við höfðum spáð því að verðbólga myndi lækka í 4,9%. Hækkun á flugfargjöldum hafði mest áhrif til hækkunar á ársverðbólgu í mánuðinum en lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti hafði mest áhrif til lækkunar. Án lækkunarinnar á virðisaukaskatti hefði verðbólga mælst 5,5%. Athygli vekur að verð á mat og drykk lækkaði á milli mánaða, annan mánuðinn í röð.

27. maí 2026
Þrátt fyrir minna flugframboð um Keflavíkurflugvöll hafa jafn margir erlendir ferðamenn farið um flugvöllinn fyrstu fjóra mánuði ársins í ár og í fyrra. Á móti fara færri tengifarþegar um flugvöllinn og utanlandsferðir Íslendinga hafa dregist verulega saman. Þó sumarið líti ágætlega út er meiri óvissa um haustið.

26. maí 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti bankans um 0,25 prósentustig í síðustu viku, líkt og við höfðum spáð. Nú í vikunni koma verðbólgutölur og þjóðhagsreikningar.

20. maí 2026
Peningastefnunefnd hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig annað skiptið í röð og segist tilbúin til að hækka vexti enn frekar. Efnahagshorfur hafa þó versnað verulega að mati bankans, en verðbólguspá var hækkuð í nýútgefnum Peningamálum og hagvaxtaspá lækkuð auk þess sem gert er ráð fyrir auknu atvinnuleysi. Kólnunin í hagkerfinu mun þó gera það að verkum að hættan á aukinni verðbólgu fram á við er minni.

19. maí 2026
Kortavelta íslenskra heimila dróst verulega saman á milli ára í apríl, eða um alls 5,8% að teknu tilliti til verðlags og gengis. Svo mikill samdráttur hefur ekki mælst síðan í febrúar 2021. Peningastefnunefnd fundar í dag vegna vaxtaákvörðunar á morgun, en við gerum áfram ráð fyrir 0,25 prósentustiga hækkun vaxta.

18. maí 2026
Í vikunni fram undan er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands og við spáum 0,25 prósentustiga hækkun. Fjöldi ferðamanna á fyrstu fjórum mánuðum ársins var svipaður og á sama tímabil í fyrra samkvæmt tölum sem birtust í síðustu viku. Utanlandsferðum Íslendinga hefur aftur á móti fækkað töluvert. Atvinnuleysi heldur áfram að aukast á milli ára.

13. maí 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga er enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar hafa reynst þrálátar. Að okkar mati mun það ráða mestu um að nefndin haldi áfram vaxtahækkunarferlinu sem hófst í mars.

12. maí 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13% á milli mánaða í maí. Gangi spáin eftir mun verðbólga lækka úr 5,2% í 4,9%. Lægra eldsneytisverð vegna lækkunar á virðisaukaskatti og lækkun flugfargjalda hafa mest áhrif til lækkunar á milli mánaða samkvæmt spánni. Við spáum að verðbólga mælist 4,9% í ágúst og kjarasamningar því mögulega í húfi.

11. maí 2026
Starfandi samkvæmt skrám fækkaði á milli ára. Frjósemi á Íslandi síðastliðin tvö ár hefur ekki mælst minni síðan mælingar hófust. Í þessari viku fáum við m.a. ferðamannatölur og atvinnuleysi ásamt uppgjörum frá félögum.

8. maí 2026
Það sem af er ári hefur krónan styrkst og evran stendur núna í 144 krónum. Nokkuð gott jafnvægi hefur verið á milli innflæðis og útflæðis á gjaldeyrismarkaði. Raungengi er mjög hátt og við eigum von á að krónan veikist næstu ár.