Ný hagspá Greiningardeildar Landsbankans til ársins 2029 ber titilinn Hægur vöxtur en batnandi horfur. Verðbólga er enn há, vextir sömuleiðis og hagvöxtur hóflegur, en ýmislegt bendir til þess að bjartari tímar séu fram undan.
Í þættinum er rætt um samspil verðbólgu, hárra vaxta, gengis krónunnar, þróunar á vinnumarkaði og stöðu á húsnæðismarkaði. Eru vaxtalækkanir handan við hornið? Og hvað getur helst breytt horfunum næstu misserin?
Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, og Hjalti Óskarsson, hagfræðingur í Greiningardeild bankans, ræða nýju hagspána við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.
Hlusta og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á streymisveitu
Um hlaðvarpið
Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem sérfræðingar í Landsbankanum ræða um efnahagsmál og annað sem tengist starfsemi bankans frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um efnahagsmál og bankastarfsemi.










