Vikubyrjun 24. september 2018
Árin 2016 og 2017 hækkaði verð á fjölbýli verulega meira en laun. Sú þróun stöðvaðist um mitt síðasta ár þegar verulega dró úr verðhækkunum fjölbýlis. Einnig dró nokkuð úr hækkunum launa á seinni hluta ársins 2017 þannig að þessar stærðir hafa haldist nokkuð vel í hendur allt frá því á miðju ári 2017.
21. september 2018
Vikan framundan
- Á fimmtudag birtir Hagstofan vísitölu neysluverðs. Við búumst við 0,3% hækkun milli mánaða.
- Á föstudag birtir Seðlabankinn Hagvísa.
Mynd vikunnar
Árin 2016 og 2017 hækkaði verð á fjölbýli verulega meira en laun. Sú þróun stöðvaðist um mitt síðasta ár þegar verulega dró úr verðhækkunum fjölbýlis. Einnig dró nokkuð úr hækkunum launa á seinni hluta ársins 2017 þannig að þessar stærðir hafa haldist nokkuð vel í hendur allt frá því á miðju ári 2017.

Það helsta frá vikunni sem leið
- Fulltrúar í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands voru á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis.
- Hagstofan birti tölur um veltu í virðisaukaskattskyldri starfsemi.
- Hagstofan birti einnig vísitölu byggingarkostnaðar.
- Kvika banki lauk víxlaútboð, Landsbankinn útboði sértryggðra skuldabréfa, Lánasjóður sveitarfélaga skuldabréfaútboði og Lánamál ríkisins útboði óverðtryggðra ríkisbréfa.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Hagtölur 24. september 2018 (PDF)
Þú gætir einnig haft áhuga á
15. sept. 2023
Nýjar kortaveltutölur bera með sér frekari vísbendingar um að verulega sé að hægja á innlendri eftirspurn. Heildarkortavelta íslenskra heimila dróst saman um 3,4% milli ára í ágúst. Kortavelta Íslendinga innanlands var 4,3% minni en í ágúst í fyrra á föstu verðlagi og hefur nú dregist saman sex mánuði í röð. Erlendis jókst kortavelta Íslendinga um 0,7% á milli ára og kortaveltujöfnuður er jákvæður um 19,2 milljarða.
14. sept. 2023
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,07% milli mánaða í september og að ársverðbólga standi í stað og verði áfram 7,7%. Útsölulok hafa aftur mest áhrif til hækkunar milli mánaða í september samkvæmt spánni. Það sem helst dregur spána niður er árstíðabundin lækkun á flugfargjöldum til útlanda. Við gerum ráð fyrir að verðbólga lækki áfram næstu mánuði og verði 6,6% í desember.
11. sept. 2023
Í síðustu viku birti Seðlabankinn fundargerð peningastefnunefndar. Samkvæmt henni greiddi einn nefndarmaður atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um að hækka vexti um 0,50 prósentustig á síðasta fundi nefndarinnar og hefði heldur kosið að hækka þá um 0,25 prósentustig. Í þessari viku berast gögn yfir fjölda brottfara um Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og kortaveltu.
4. sept. 2023
Meðfylgjandi er mánaðarlegt yfirlit um sértryggð skuldabréf.
4. sept. 2023
Verðbólga jókst úr 7,6% í 7,7% samkvæmt ágústmælingu Hagstofunnar. Hagvöxtur mældist 4,5% á öðrum ársfjórðungi samkvæmt nýjum þjóðhagsreikningum sem Hagstofan birti í vikunni, en hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi mældist 7,1%. Minni vöxtur einkaneyslu skýrir að stórum hluta minni hagvöxt á öðrum ársfjórðungi.
31. ágúst 2023
Hagvöxtur mældist 4,5% á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar. Eins og við var að búast benda tölurnar til þess að hægt hafi á hagkerfinu, en hagvöxtur mældist 7,1% á fyrsta ársfjórðungi. Vaxtahækkanir hafa tekið að tempra innlenda eftirspurn á sama tíma og hægt hefur á vexti kaupmáttar á síðustu misserum. Einkaneysla jókst örlítið en vegna hraðrar fólksfjölgunar dróst hún saman á mann.
30. ágúst 2023
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,34% milli mánaða í ágúst og við það jókst ársverðbólga úr 7,6% í 7,7%. Við eigum þó enn von á að verðbólga hjaðni næstu mánuði og gerum nú ráð fyrir að verðbólgan verði komin niður í 6,4% í nóvember. Þetta er fyrsti mánuðurinn síðan í apríl 2021 þar sem húsnæði ber ekki ábyrgð á stærstum hluta verðbólgunnar. Nú bera bæði innfluttar vörur og þjónusta ábyrgð á stærri hluta verðbólgunnar en húsnæði.
28. ágúst 2023
Í síðustu viku hækkaði Peningastefnunefnd vexti um 0,5 prósentustig. Auk þess birti SÍ Peningamál, HMS birti mánaðarskýrslu, Hagstofan birti veltu skv. VSK-skýrslum og vöru- og þjónustujöfnuð, auk þess sem nokkur uppgjör voru birt. Í þessari viku fáum við verðbólgutölur fyrir ágúst og þjóðhagsreikninga fyrir 2. ársfjórðung.
21. ágúst 2023
Óleiðréttur launamunur karla og kvenna dróst saman árið 2022 frá fyrra ári úr 10,2% í 9,1%. Við útreikning á óleiðréttum mun er reiknað meðaltímakaup karla og kvenna fyrir októbermánuð hvers árs. Bæði grunnlaun og allar aukagreiðslur, eins og vegna álags eða bónusa, eru teknar með.
17. ágúst 2023
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,18% milli mánaða í ágúst og að ársverðbólga lækki úr 7,6% í 7,5%. Útsölulok hafa mest áhrif til hækkunar milli mánaða samkvæmt spánni. Það sem helst dregur spána niður er húsnæðisverð og árstíðabundin lækkun á flugfargjöldum til útlanda.