Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 23. fe­brú­ar 2026

Greiðslukortavelta heimilanna jókst alls um 5,4% á milli ára í janúar. Mánaðarbreyting vísitölu íbúðaverðs hefur ekki verið jafn mikil síðan í febrúar 2024, en hækkunin í janúar var drifin áfram af verðhækkunum á sérbýli. Vísitala leiguverðs lækkaði annan mánuðinn í röð.
Vikubyrjun
23. febrúar 2026

Vikan framundan

  • Í dag birtir Hagstofan vísitölu launa í janúar.
  • Á morgun birtir Hagstofan veltu skv. VSK- skýrslum fyrir nóvember-desember. Sama dag birtir Iceland Seafood uppgjör.
  • Á fimmtudag birtir Hagstofan vísitölu neysluverðs í febrúar og gistinætur í janúar. Þá birta einnig Brim, Nova og Sýn uppgjör.
  • Á föstudag birtir Hagstofan þjóðhagsreikninga fyrir fjórða ársfjórðung, ásamt vöru- og þjónustuviðskipti fyrir sama fjórðung.

Mynd vikunnar

Á evrusvæðinu hafa verðbólguvæntingar til 5 ára verið tiltölulega stöðugar í kringum 2% markmiðið síðustu ár, þrátt fyrir veruleg áföll á borð við heimsfaraldur og stríðið í Úkraínu. Á Íslandi voru verðbólguvæntingar markaðsaðila nokkuð stöðugar í kringum 2,5% frá miðju ári 2017 og fram að faraldrinum, en tóku að hækka samhliða aukinni verðbólgu eftir 2021. Þótt langtímavæntingar hafi lækkað og nálgast markmið virðist sem nýleg aukning í verðbólgu hafi haft áhrif til hækkunar. Þegar skammtímasveiflur í verðbólgu hafa áhrif á langtímavæntingar bendir það til þess að kjölfesta þeirra sé veik.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 23. febrúar 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
22. apríl 2026
Vísbendingar um kólnandi hagkerfi
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 5% að raunvirði í janúar og febrúar, samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þá sýna nýleg gögn um fjölda starfandi að verulega hefur dregið úr fjölgun starfa sem stóð í stað á milli ára í febrúar.
20. apríl 2026
Merki um að innlend neysla sé að minnka
Kortavelta jókst um 0,8% á milli ára í mars að raunvirði. Eins og síðustu mánuði jókst kortavelta erlendis talsvert en þetta var annar mánuðurinn í röð þar sem kortavelta innanlands dregst saman. Við spáum hægari vexti í einkaneyslu ásamt hóflegum launahækkunum á næstu árum.
Vikubyrjun
20. apríl 2026
Vikubyrjun 20. apríl 2026
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt hagspá sem við birtum fyrir helgi. Við eigum von á hægfara hjöðnun verðbólgu og að stýrivextir haldi áfram að hækka á árinu.
17. apríl 2026
Hagspá til 2028: Hagkerfi í hægum vexti
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Við sjáum merki um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki. Hærri stýrivextir munu valda því að sú staða vari lengur en ella.
Verðbólga
16. apríl 2026
Spáum 5,5% verðbólgu í apríl
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 1,05% á milli mánaða í apríl. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,4% í 5,5%. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafa mest áhrif á hækkun á milli mánaða samkvæmt spánni. Lægri virðisaukaskattur á eldsneyti mun skila tímabundinni lækkun á eldsneytisverði, en áfram er töluverð óvissa um þróun olíuverðs og heildaráhrifa á verðbólgu hér á landi.
Vikubyrjun
13. apríl 2026
Vikubyrjun 13. apríl 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 1,6% á milli ára í mars. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fækkað á milli ára alla mánuði ársins. Skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,1 prósentustig á milli mánaða og mælist nú 4,8% í mars. Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,4% í 3,3% í mars.
Mánaðamót 2
1. apríl 2026
Mánaðamót 1. apríl 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
30. mars 2026
Vikubyrjun 30. mars 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,4% í mars, svo há hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Vísitala launa lækkaði um 0,1% á milli mánaða í febrúar. Í síðustu viku birti Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleiki og fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun.
Mánaðamót 4
26. mars 2026
Verðbólga eykst í 5,4% - hærra eldsneytisverð skýrir hækkunina
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% eins og við spáðum og mælist nú 5,4%. Svo mikil hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Hækkun á verðbólgu á milli mánaða skýrist að langmestu leyti af hækkun á eldsneytisverði sem rekja má til átakanna við Persaflóa.
Vikubyrjun
23. mars 2026
Vikubyrjun 23. mars 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Mun harðari tónn var í yfirlýsingu nefndarinnar en við síðustu ákvörðun í febrúar. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 1,5% á milli ára, en kortavelta innanlands dróst saman. Vísitala íbúðaverðs hækkaði lítillega eftir mikla hækkun í janúar.