23. apríl 2018
Vikan framundan
- Í vikunni birta eftirtalin fyrirtæki árshlutauppgjör: Marel (mánudag), Síminn, (þriðjudag), N1 (miðvikudag), Nýherji (miðvikudag) og Eik (miðvikudag).
- Við búumst við því að verðbólga fari aftur undir markmið þegar Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs á föstudag.
Mynd vikunnar
Veruleg hækkun fasteignaverðs á síðustu misserum hefur orðið samhliða mjög lítilli verðbólgu. Raunhækkun húsnæðisverðs mæld á föstu verðlagi án húsnæðis hefur því verið veruleg, en töluvert hefur þó hægt á árshækkuninni síðustu mánuði. Þannig var raunverð fasteigna nú í mars um 8,4% hærra en það var í mars 2017. Raunverð fjölbýlis var óbreytt milli febrúar og mars og raunverð sérbýlis lækkaði eilítið.
Það helsta frá liðinni viku
- Samkvæmt tölum Þjóðskrár lækkaði fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu um 0,1% í mars.
- Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um 0,3% milli mánaða í apríl.
- Innflytjendur voru að jafnaði 16,5% starfandi fólks árið 2017.
- Arion banki hélt víxlaútboð, Landsbankinn hélt útboð sértryggðra skuldabréfa, Félagsbústaðir héldu skuldabréfaútboð og Almenna leigufélagið hélt skuldabréfaútboð.
- Lánasjóður sveitarfélaga birti endurskoðaða útgáfuáætlun.
- Íslandsbanki gaf út skuldabréf í sænskum krónum.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á

21. ágúst 2026
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.

19. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.

18. ágúst 2026
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.

17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.

13. ágúst 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.

13. ágúst 2026
Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.

10. ágúst 2026
Störfum í Bandaríkjunum fækkaði á milli mánaða í júlí. Í þessari viku verða meðal annars birtar tölur um brottfarir um Keflavíkurflugvöll og skráð atvinnuleysi í júlí. Þá munu nokkur félög einnig birta uppgjör.

4. ágúst 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

4. ágúst 2026
Gistinóttum á hótelum fækkaði um 0,4% á milli ára í júní. Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki héldu báðir vöxtum óbreyttum í síðustu viku.

27. júlí 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,3% í júlí. Áfram sjást merki um hægagang á fasteignamarkaði en fjölda kaupsamninga um íbúðarhúsnæði hefur fækkað á milli ára á sama tíma og fjöldi íbúða til sölu hefur aukist.