22. janúar 2018
Vikan framundan
- Á morgun birtir Þjóðskrá upplýsingar um viðskipti með atvinnuhúsnæði í desember á seinasta ári.
- Á miðvikudag birtir Hagstofan launavísitölu fyrir desember 2017.
- Á fimmtudag birtir Hagstofan niðurstöðu úr mánaðarlegri vinnumarkaðsrannsókn sinni.
Mynd vikunnar
Alls fóru 2,2 milljónir erlendra ferðamanna um Leifsstöð 2017. Aukningin milli ára var 24%, sem er nokkuð minna en 2016 þegar erlendum ferðamönnum um Leifsstöð fjölgaði um 40% milli ára. Hlutfallslega er fjölgunin milli ára í fyrra svipuð og árið 2014 en það ár fjölgaði ferðamönnum um 188 þúsund en í fyrra um 428 þúsund.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,2% milli mánaða í desember.
- Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi í september og október jókst nokkuð milli ára.
- Skráð atvinnuleysi var 2,2% í desember.
- Seðlabankinn birti upplýsingar um greiðslumiðlun í desember.
- Arion banki hélt víxlaútboð, Landsbankinn hélt útboð sértryggðra skuldabréfa og Lánasjóður sveitafélaga hélt skuldabréfaútboð.
- Reykjavíkurborg ákvað að fara ekki í skuldabréfaútboð á fyrri hluta ársins.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á
25. sept. 2023
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% milli mánaða í ágúst, samkvæmt gögnum sem HMS birti í síðustu viku. Vísitalan lækkaði þó nokkuð í júní og júlí og hækkunin kom því nokkuð á óvart. Í næstu viku ber hæst birting Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs á fimmtudag.
20. sept. 2023
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,7% milli mánaða í ágúst. Árshækkun vísitölunnar fór úr 0,8% í 2,0%. Undirritaðir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu voru 9,6% færri í júlí en í sama mánuði í fyrra. Vísitalan er hærri en við gerðum ráð fyrir við gerð verðbólguspár fyrir septembermánuð og því færum við hana upp og spáum 7,8% ársverðbólgu í stað 7,7%.
18. sept. 2023
Um 282 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í ágúst. Ef sumarmánuðirnir eru teknir saman hafa aðeins einu sinni komið fleiri ferðamenn að sumri, árið 2018. Samkvæmt nýjustu þjóðhagsreikningum Hagstofunnar jókst þjónustuútflutningur á fyrstu tveimur fjórðungum ársins um 21%, og má rekja allan þann vöxt til ferðaþjónustunnar.
18. sept. 2023
Í síðustu viku komu tölur um brottfarir frá Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og veltu greiðslukorta. Í þessari viku ber hæst vísitala íbúðaverðs, sem kemur á þriðjudag, og yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands, sem gefin verður út á miðvikudaginn.
15. sept. 2023
Nýjar kortaveltutölur bera með sér frekari vísbendingar um að verulega sé að hægja á innlendri eftirspurn. Heildarkortavelta íslenskra heimila dróst saman um 3,4% milli ára í ágúst. Kortavelta Íslendinga innanlands var 4,3% minni en í ágúst í fyrra á föstu verðlagi og hefur nú dregist saman sex mánuði í röð. Erlendis jókst kortavelta Íslendinga um 0,7% á milli ára og kortaveltujöfnuður er jákvæður um 19,2 milljarða.
14. sept. 2023
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,07% milli mánaða í september og að ársverðbólga standi í stað og verði áfram 7,7%. Útsölulok hafa aftur mest áhrif til hækkunar milli mánaða í september samkvæmt spánni. Það sem helst dregur spána niður er árstíðabundin lækkun á flugfargjöldum til útlanda. Við gerum ráð fyrir að verðbólga lækki áfram næstu mánuði og verði 6,6% í desember.
11. sept. 2023
Í síðustu viku birti Seðlabankinn fundargerð peningastefnunefndar. Samkvæmt henni greiddi einn nefndarmaður atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um að hækka vexti um 0,50 prósentustig á síðasta fundi nefndarinnar og hefði heldur kosið að hækka þá um 0,25 prósentustig. Í þessari viku berast gögn yfir fjölda brottfara um Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og kortaveltu.
4. sept. 2023
Meðfylgjandi er mánaðarlegt yfirlit um sértryggð skuldabréf.
4. sept. 2023
Verðbólga jókst úr 7,6% í 7,7% samkvæmt ágústmælingu Hagstofunnar. Hagvöxtur mældist 4,5% á öðrum ársfjórðungi samkvæmt nýjum þjóðhagsreikningum sem Hagstofan birti í vikunni, en hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi mældist 7,1%. Minni vöxtur einkaneyslu skýrir að stórum hluta minni hagvöxt á öðrum ársfjórðungi.
31. ágúst 2023
Hagvöxtur mældist 4,5% á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar. Eins og við var að búast benda tölurnar til þess að hægt hafi á hagkerfinu, en hagvöxtur mældist 7,1% á fyrsta ársfjórðungi. Vaxtahækkanir hafa tekið að tempra innlenda eftirspurn á sama tíma og hægt hefur á vexti kaupmáttar á síðustu misserum. Einkaneysla jókst örlítið en vegna hraðrar fólksfjölgunar dróst hún saman á mann.