20. nóvember 2017
Vikan framundan
- Á þriðjudag birta Eimskip árshlutauppgjör.
- Á miðvikudag birtum við nýja þjóðhags- og verðbólguspá sem verður kynnt á opnum morgunfundi í Hörpu.
- Á fimmtudag birtir Hagstofan niðurstöður úr vinnumarkaðsrannsókn sinni.
Mynd vikunnar
Meðal efnis í Peningamálum, sem Seðlabankinn birtir ársfjórðungslega, er spá um viðskiptajöfnuð til næstu ára. Nokkra athygli vakti að Seðlabankinn lækkaði spá sína um viðskiptaafgang þó nokkuð fyrir árið í ár og næstu tvö ár í nýjustu Peningamálum sem komu út á miðvikudaginn í síðustu viku. Engin breyting varð á markaðsgengi krónunnar þrátt fyrir þessar fréttir.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Seðlabankinn hélt vöxtum óbreyttum í samræmi við spár greinenda.
- Samhliða vaxtaákvörðuninni birti Seðlabankinn nóvemberhefti Peningamála.
- Reitir birtu árshlutareikning fyrir fyrstu níu mánuði ársins.
- Þjóðskrá birti tölur um fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu í október.
- Seðlabankinn birti upplýsingar um greiðslumiðlun í október.
- Hagstofan birti tölur um fiskafla í október.
- Íslandsbanki, Arion banki og Lánamál ríkisins héldu víxlaútboð.
- Landsbankinn hélt útboð á sértryggðum skuldabréfum.
- Kópavogur birti fjárhagsáætlun.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á

19. maí 2025
Kortavelta Íslendinga jókst verulega í apríl, sérstaklega erlendis þar sem hún var 32,8% meiri en í apríl í fyrra að raunvirði. Íslendingar hafa aldrei farið í jafnmargar utanlandsferðir í einum mánuði og í apríl síðastliðnum. Nýlegar vísbendingar um aukinn eftirspurnarþrýsting draga enn frekar úr líkum á vaxtalækkun á miðvikudaginn, en við spáum því að vöxtum verði haldið óbreyttum fram í ágúst.

16. maí 2025
Kortavelta jókst um 9,4% á milli ára í apríl að raunvirði og erlendis jókst hún um 32,8%. Íslendingar hafa aldrei farið í fleiri utanlandsferðir í einum mánuði en í apríl síðastliðnum, samkvæmt gögnum Ferðamálastofu. Nýbirtar kortaveltutölur renna enn frekari stoðum undir spá um að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum í næstu viku. Neysla landsmanna hefur haldið dampi þrátt fyrir hátt vaxtastig og við teljum horfur á að einkaneysla aukist smám saman á næstu árum.

15. maí 2025
Við spáum því að verðbólga lækki úr 4,2% í 3,9% í maí. Horfur eru á að verðbólga hjaðni lítillega í sumar en aukist aftur með haustinu þegar einskiptisliðir vegna skólagjalda og skólamáltíða detta úr 12 mánaða taktinum. Við gerum ráð fyrir 4,0% verðbólgu í árslok.

15. maí 2025
Við spáum því að peningastefnunefnd geri hlé á vaxtalækkunarferlinu og haldi stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga jókst umfram væntingar í apríl og verðbólguvæntingar hafa haldist tiltölulega stöðugar. Þá virðist hagkerfið þola vaxtastigið vel, kortavelta hefur aukist sífellt síðustu mánuði og enn er þó nokkur velta á íbúðamarkaði. Peningalegt taumhald losnaði með aukinni verðbólgu í apríl og við teljum ólíklegt að peningastefnunefnd þyki tímabært að lækka raunstýrivexti enn frekar.

12. maí 2025
Brottfarir um Keflavíkurflugvöll hafa aldrei verið jafnmargar í aprílmánuði eins og í apríl síðastliðnum og erlendir ferðamenn voru 6,5% fleiri en í apríl í fyrra. Skráð atvinnuleysi var 3,9% í apríl og minnkaði um 0,3 prósentustig frá því í mars. Seðlabanki Bandaríkjanna hélt stýrivöxtum óbreyttum en Englandsbanki lækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig. Báðar ákvarðanir voru í takt við væntingar.

7. maí 2025
Ætla má að um þriðjungur íslenskra vara sem fluttar eru frá Íslandi til Bandaríkjanna sé undanþeginn þeim tollum sem nú eru í gildi, til dæmis lyf og flestar lækningavörur. Óvissa um framvindu mála í alþjóðaviðskiptum getur samt ein og sér leitt til þess að fyrirtæki halda að sér höndum og ráðast síður í nýjar fjárfestingar. Á síðasta ári fór um 12% af vöruútflutningi Íslands til Bandaríkjanna.

5. maí 2025
Í apríl jókst verðbólga úr 3,8% í 4,2%, nokkuð umfram okkar spá um 4,0% verðbólgu. Velta samkvæmt VSK-skýrslum jókst á milli ára í flestum atvinnugreinum á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Á fyrsta ársfjórðungi mældist hagvöxtur á evrusvæðinu en samdráttur í Bandaríkjunum. Í þessari viku er vaxtaákvörðun í Bandaríkjunum og einnig í Bretlandi.

2. maí 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

2. maí 2025
Ör fólksfjölgun og hækkun húsnæðisverðs hefur aukið eftirspurn eftir leiguíbúðum. Stærstur hluti Airbnb-íbúða er nú leigður út af leigusölum með fleiri en tvær íbúðir í útleigu. Frumvarp um hert skilyrði um skammtímaleigu hefur verið sett í samráðsgátt. Hömlur á skammtímaleigu gætu aukið framboð leiguíbúða og jafnvel söluframboð.

29. apríl 2025
Verðbólga mældist 4,2% í apríl og hækkaði úr 3,8% frá því í mars. Verðbólga var umfram okkar spá, einkum vegna þess að reiknuð húsaleiga og verð á matvörum hækkaði meira en við bjuggumst við.