19. febrúar 2018
Vikan framundan
- Í dag birtir Síminn ársuppgjör.
- Á þriðjudag birtir Þjóðskrá vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu.
- Á miðvikudag birtir Seðlabankinn fundargerð Peningastefnunefndar vegna síðustu vaxtaákvörðunar. N1 og Skeljungur birta ársuppgjör.
- Á fimmtudag birtir Eimskip ársuppgjör.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn birtu ársuppgjör 2017.
- Landsvirkjun birti ársreikning.
- Fjögur félög í kauphöllinni, Reitir, Reginn, Sjóvá og TM, birtu einnig ársuppgjör.
- Auk þess birtu Kvika, Lykill fjármögnun og Heimavellir ársuppgjör.
- Arion banki samþykkti að kaupa 9,5% hlut í bankanum af Kaupþingi.
- Launþegum fjölgaði um 3,9% milli ára 2017.
- Skráð atvinnuleysi var 2,4% í janúar.
- Seðlabankinn birti tölur um greiðslumiðlun í janúar.
- Garðabær og Lánasjóður sveitarfélaga luku skuldabréfaútboðum, Landsbankinn lauk útboði sértryggðra skuldabréfa og Arion banki lauk víxlaútboði.
- Í vikunni birtum við Hagsjá um umfang Airbnb-gistingar hér á landi.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Hagtölur 19. febrúar 2018 (PDF)
Þú gætir einnig haft áhuga á

16. apríl 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 1,05% á milli mánaða í apríl. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,4% í 5,5%. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafa mest áhrif á hækkun á milli mánaða samkvæmt spánni. Lægri virðisaukaskattur á eldsneyti mun skila tímabundinni lækkun á eldsneytisverði, en áfram er töluverð óvissa um þróun olíuverðs og heildaráhrifa á verðbólgu hér á landi.

13. apríl 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 1,6% á milli ára í mars. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fækkað á milli ára alla mánuði ársins. Skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,1 prósentustig á milli mánaða og mælist nú 4,8% í mars. Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,4% í 3,3% í mars.

1. apríl 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

30. mars 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,4% í mars, svo há hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Vísitala launa lækkaði um 0,1% á milli mánaða í febrúar. Í síðustu viku birti Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleiki og fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun.

26. mars 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% eins og við spáðum og mælist nú 5,4%. Svo mikil hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Hækkun á verðbólgu á milli mánaða skýrist að langmestu leyti af hækkun á eldsneytisverði sem rekja má til átakanna við Persaflóa.

23. mars 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Mun harðari tónn var í yfirlýsingu nefndarinnar en við síðustu ákvörðun í febrúar. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 1,5% á milli ára, en kortavelta innanlands dróst saman. Vísitala íbúðaverðs hækkaði lítillega eftir mikla hækkun í janúar.

16. mars 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd hækki vexti á miðvikudaginn. Verðbólguhorfur hafa versnað upp á síðkastið sem sést meðal annars í niðurstöðum úr könnun á verðbólguvæntingum heimila og fyrirtækja sem Seðlabankinn birti í síðustu viku. Við hækkuðum einnig verðbólguspá okkar í síðustu viku.

12. mars 2026
Við spáum því að í næstu viku muni peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækka vexti um 0,25 prósentustig. Verðbólga hefur aukist meira en spár gerðu ráð fyrir og verðbólguvæntingar hafa einnig aukist. Ólga hefur aukist á alþjóðlegum mörkuðum vegnastríðsátaka í Mið-Austurlöndum sem eykur verðbólguþrýsting.

12. mars 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,55% á milli mánaða í mars. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,2% í 5,4%. Hærra eldsneytisverð, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum, skýrir að stærstum hluta þá hækkun verðbólgu á milli mánaða sem við spáum. Óljóst er hversu lengi átökin munu standa yfir og hversu langvinn áhrifin á verðbólgu hér á landi verða. Mikið er undir verðbólgumælingum næstu mánaða en forsendur í kjarasamingum á almennum vinnumarkaði byggja á að verðbólga mælist undir 4,7% í ágúst, eða að hún mælist að meðaltali undir 4,4% sex mánuði þar á undan. Auknar líkur eru á því að þær forsendur haldi ekki.

9. mars 2026
Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra. Erlend staða þjóðarbúsins versnaði á síðasta ári, en er engu að síðar mjög sterk. Krónan veiktist á móti evru í fyrra, en styrktist á móti bandaríkjadal. Sterk staða útflutningsgreina gæti stutt við krónuna á þessu ári þó órói á alþjóðasviðinu auki óvissuna.