17. maí 2021 - Greiningardeild
Vikan framundan
- Í dag birtir Iceland Seafood uppgjör.
- Á þriðjudag birtum við nýja verðbólgu- og þjóðhagsspá, Þjóðskrá vísitölu íbúðaverðs og Reitir uppgjör.
- Á miðvikudag er vaxtaákvörðun hjá SÍ og við spáum óbreyttum vöxtum. Samfara vaxtaákvörðuninni koma út Peningamál með nýrri verðbólgu- og þjóðhagsspá.
- Á fimmtudag birtir Brim uppgjör.
- Á föstudag birtir Hagstofan vísitölu launa.
Mynd vikunnar
Í nýjustu væntingakönnun markaðsaðila, sem fór fram fyrir tveimur vikum, töldu 44% svarenda taumhald peningastefnunnar vera of laust en enginn taldi það vera of þétt. Þetta er nokkur breyting frá næstu könnun þar á undan, en þá töldu 15% svarenda taumhaldið væri of laust eða alltof laust en 39% að það væri of þétt. Þessi breyting þarf líklega ekki að koma á óvart, en verðbólgan hefur hækkað verulega síðustu mánuði.
Það helsta frá síðustu viku
- Almennu hlutafjárútboði Síldarvinnslunnar lauk í vikunni.
- Seðlabankinn birti niðurstöður úr væntingakönnun markaðsaðila.
- Eimskip (leiðrétt fjárfestakynning), Hagar (fjárfestakynning), Sjóvá (fjárfestakynning) og Sýn birtu uppgjör.
- Skráð atvinnuleysi var 10,4% í apríl.
- S&P staðfesti A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs.
- Ferðamálastofa birti fjölda brottfara um Leifsstöð og bókunarstöðu hótela á höfuðborgarsvæðinu.
- Úttekt séreignar og fleiri úrræði voru samþykkt á Alþingi.
- Seðlabankinn birti eftirfarandi hagtölur: gjaldeyrismarkaðinn, efnahagur SÍ, raungengi og krónumarkaðurinn.
- Hagstofan birti: tilraunatölfræði um gistinætur í apríl, vöru- og þjónustujöfnuð í febrúar og afli í apríl.
- Lánamál ríkisins birtu markaðsupplýsingar í maí.
- Landsbankinn lauk útboði sértryggðra skuldabréfa.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á

15. des. 2025
Færri erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í nóvember í ár en í nóvember í fyrra en utanlandsferðum Íslendinga hélt áfram að fjölga. Skráð atvinnuleysi hefur aukist þó nokkuð á síðustu mánuðum og var 4,3% í nóvember.

11. des. 2025
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,56% á milli mánaða í desember. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 3,7% í 3,9% í desember. Flugfargjöld til útlanda, reiknuð húsaleiga og lok tilboðsdaga í nóvember verða til hækkunar en bensínverð til lækkunar. Við gerum ráð fyrir að verðbólga verði á bilinu 3,9% til 4,0% næstu mánuði.

8. des. 2025
Talsvert minni afgangur mældist af viðskiptum við útlönd á þriðja ársfjórðungi þessa árs en þess síðasta. Í síðustu viku gaf Seðlabankinn út yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og fundargerð peningastefnunefndar. Í þessari viku verða birtar ferðamannatölur og skráð atvinnuleysi fyrir nóvembermánuð.

1. des. 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

1. des. 2025
Óhætt er að segja að verðbólgumælingin í síðustu viku hafi komið á óvart. Verðbólga mældist 3,7% í nóvember og hefur ekki mælst minni í fimm ár. Hagstofan áætlar að landsframleiðsla hafi aukist um 1,2% á þriðja ársfjórðungi. Gistinóttum fjölgaði alls um 1,8% á milli ára í október.

28. nóv. 2025
Landsframleiðsla jókst um 1,2% á þriðja ársfjórðungi og um 1,5% á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi var drifinn áfram af innlendri eftirspurn og þjóðarútgjöld jukust um heil 4,7%. Áfram er kraftur í einkaneyslu og fjárfestingu, en auknar birgðir hafa einnig sitt að segja. Innflutningur vegur þungt á móti og framlag utanríkisviðskipta er neikvætt, líkt og á síðustu fjórðungum.

27. nóv. 2025
Verðbólga hjaðnaði úr 4,3% í 3,7% í nóvember og hefur ekki verið minni frá því í desember 2020. Áhrif af afsláttardögum í nóvember komu mun skýrar fram í mælingu Hagstofunnar nú en síðustu ár og flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun meira en við bjuggumst við.

24. nóv. 2025
Seðlabankinn lækkaði vexti í síðustu viku með það fyrir augum að stemma stigu við því aukna peningalega aðhaldi sem hefur hlotist af breyttu lánaframboði í kjölfar vaxtadómsins. Auk þess spáir Seðlabankinn nú auknum slaka í hagkerfinu, minni hagvexti og minni verðbólgu en í síðustu spá. Hagstofan birtir verðbólgumælingu nóvembermánaðar á fimmtudaginn og þjóðhagsreikninga fyrir þriðja ársfjórðung á föstudaginn.

21. nóv. 2025
Brottfarir erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli voru 6,2% færri í október en í sama mánuði í fyrra og erlend kortavelta dróst þó nokkuð saman. Líklega hefur fall Play sett mark sitt á mánuðinn. Ef horft er yfir árið í heild hefur gangurinn í ferðaþjónustu verið mun meiri á þessu ári en því síðasta.

17. nóv. 2025
Skráð atvinnuleysi var 3,9% í október, 0,5 prósentustigum meira en í sama mánuði í fyrra. Brottförum erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 6,2% í október en utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði um 3%. Peningastefnunefnd kemur saman á miðvikudaginn og við búumst við að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum.
