Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 4,9% verð­bólgu í fe­brú­ar

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,64% á milli mánaða í febrúar. Gangi spáin eftir mun verðbólga hjaðna úr 5,2% í 4,9%. Útsölulok munu hafa mest áhrif til hækkunar í febrúar, gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að verðbólga hjaðni smám saman næstu mánuði og mælist 4,4% í maí.
Verðbólga
12. febrúar 2026

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,64% á milli mánaða í febrúar og að ársverðbólga lækki úr 5,2% í 4,9%. Janúarútsölur ganga alla jafna til baka í febrúar og mars sem skýrir stærstan hluta þeirrar hækkunar sem við gerum ráð fyrir á milli mánaða í febrúar. Við búumst við því að húsnæðisliðurinn hækki svipað og í fyrra og muni því ekki ýta undir verðbólgu. Samkvæmt spánni hækka flestir aðrir liðir minna en í febrúar í fyrra og hjöðnun á milli mánaða því á nokkuð breiðum grunni, þó hún sé ekki mikil.

Útsölur ganga til baka

Janúarútsölurnar voru svipaðar og í fyrra. Verð á fötum og skóm lækkaði um 7,4% í janúar og við gerum ráð fyrir að verðlækkunin gangi til baka á tveimur mánuðum eins og venjulega. Útsölutakturinn á fötum og skóm í fyrra var þó óvenjulegur að því leyti að útsölurnar gengu mjög hægt til baka, ef frá eru taldar nóvemberútsölurnar sem gengu til baka í einum rykk í desember. Við gerum ekki ráð fyrir sambærilegri þróun og í fyrra og búumst við því að verð á fötum og skóm hækki um 4% nú í febrúar og um 3% í mars. Útsölutakturinn á húsgögnum og heimilisbúnaði var þó hefðbundinn í fyrra og við spáum því að útsölur í þeim lið gangi til baka að fullu nú í febrúar og að verð hækki um 5%.

Matarkarfan hækkar minna

Við gerum ráð fyrir að verð á mat og drykkjarvörum hækki um 0,34%. Síðustu mánuði hefur hægt nokkuð á verðhækkunum á mat og drykkjarvörum, að janúar undanskildum. Hækkunin nú er töluvert minni en í febrúar í fyrra og mun því hafa áhrif til lækkunar á ársverðbólgu.

Húsnæðisliðurinn stendur í stað

Það eru ekki allar gjaldskrárhækkanir komnar fram ennþá. Gjaldskrárbreytingar fyrir sorphirðu, kalt vatn og holræsagjöld koma inn í mælingar í febrúar hvers árs, nú þriðja árið í röð. Við gerum ráð fyrir að það hafi nokkur áhrif til hækkunar á milli mánaða í febrúar, en að breytingin verði þó svipuð og í fyrra og hafi því ekki áhrif á ársverðbólgu. Við gerum áfram ráð fyrir að reiknuð húsaleiga hækki um 0,5% eins og síðustu mánuði.

Spá um þróun VNV í febrúar 2026

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,5% 0,3% 0,05%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,0% 0,00%
Föt og skór 3,5% 4,0% 0,14%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,4% 0,5% 0,05%
Reiknuð húsaleiga 20,9% 0,5% 0,10%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,1% 5,0% 0,20%
Heilsa 4,0% 0,0% 0,00%
Ferðir og flutningar (annað) 5,8% 0,6% 0,03%
- Kaup ökutækja 4,7% 0,1% 0,00%
- Bensín og díselolía 2,6% 0,1% 0,00%
- Flugfargjöld til útlanda 2,1% -1,4% -0,03%
Upplýsingar og fjarskipti 4,3% 1,0% 0,04%
Afþreying, íþróttir og menning 9,2% 0,1% 0,01%
Menntun 1,1% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,6% 0,3% 0,02%
Fjármálaþjónusta 1,2% 0,1% 0,00%
Umhirða og félagsþjónusta 3,4% 0,3% 0,01%
Alls 100,0%   0,64%

Gerum ráð fyrir því að verðbólga mjakist niður næstu mánuði

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,64% í febrúar, 0,32% í mars, 0,71% í apríl og verði óbreytt í maí. Gangi spáin eftir verður verðbólga 4,9% í febrúar, 4,8% í mars, 4,6% í apríl og 4,4% í maí. Þessi spá er aðeins lægri en síðasta spá okkar, en það skýrist að mestu af því að við endurskoðuðum spána um verð flugfargjalda til útlanda næstu mánuði niður á við.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar.