16. febrúar 2026
Vikan framundan
- Í dag birta Reitir uppgjör.
- Á morgun birtir Seðlabankinn greiðslumiðlun í janúar. Sama dag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs í janúar og Síminn birtir uppgjör.
- Á miðvikudag birtir Seðlabankinn fundargerð peningastefnunefndar. HMS birtir vísitölu leiguverðs í janúar og Skagi birtir uppgjör. Einnig verða verðbólgutölur birtar í Bretlandi.
- Á fimmtudag birtir HMS mánaðarskýrslu Hagdeildar.
Mynd vikunnar
Fólksfjölgun hefur farið minnkandi frá árinu 2022, þegar hún náði hámarki. Síðustu ár hefur náttúruleg fólksfjölgun haldist nokkuð stöðug, að undanskildu árinu eftir heimsfaraldurinn þegar hún jókst aðeins. Fólksflutningar til landsins hafa farið minnkandi frá 2022, samhliða auknum slaka á vinnumarkaði.
Það helsta frá vikunni sem leið
- 119 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í janúar en það eru 1,8% færri en í sama mánuði í fyrra. Brottfarir Íslendinga voru 43 þúsund, 7,6% færri en í janúar 2025.
- Samkvæmt Vinnumálastofnun mældist skráð atvinnuleysi 4,9% í janúar og hækkaði um 0,5 prósentustig á milli mánaða. Í janúar 2025 var skráð atvinnuleysi 4,2%. Atvinnuleysi er því talsvert meira núna en fyrir ári, eða 0,7 prósentustigum hærra.
- 130 þúsund ný störf urðu til í Bandaríkjunum í janúar, sem var umfram væntingar. Atvinnuleysi lækkaði lítillega og mælist nú 4,3%. Verðbólga í Bandaríkjunum lækkaði úr 2,7% niður í 2,4% í janúar, sem var meiri lækkun en búist var við.
- Arion banki, Heimar, Íslandsbanki, Kvika banki og Sjóvá birtu uppgjör. Kaldalón birti stjórnendauppgjör (fjárfestakynning).
- Landsbankinn lauk sölu á verðbréfum sem telja til viðbótar eiginfjárþáttar 1.
- Lánamál ríkisins luku sölu á ríkisvíxlum, tilkynntu um niðurstöðu úr viðbótarútgáfu og birtu Markaðsupplýsingar. Lánasjóður sveitarfélaga lauk sölu á skuldabréfum. Festi lauk sölu á bréfum í nýjum skuldabréfaflokki til 5 ára.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á

20. apríl 2026
Kortavelta jókst um 0,8% á milli ára í mars að raunvirði. Eins og síðustu mánuði jókst kortavelta erlendis talsvert en þetta var annar mánuðurinn í röð þar sem kortavelta innanlands dregst saman. Við spáum hægari vexti í einkaneyslu ásamt hóflegum launahækkunum á næstu árum.

20. apríl 2026
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt hagspá sem við birtum fyrir helgi. Við eigum von á hægfara hjöðnun verðbólgu og að stýrivextir haldi áfram að hækka á árinu.

17. apríl 2026
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Við sjáum merki um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki. Hærri stýrivextir munu valda því að sú staða vari lengur en ella.

16. apríl 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 1,05% á milli mánaða í apríl. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,4% í 5,5%. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafa mest áhrif á hækkun á milli mánaða samkvæmt spánni. Lægri virðisaukaskattur á eldsneyti mun skila tímabundinni lækkun á eldsneytisverði, en áfram er töluverð óvissa um þróun olíuverðs og heildaráhrifa á verðbólgu hér á landi.

13. apríl 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 1,6% á milli ára í mars. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fækkað á milli ára alla mánuði ársins. Skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,1 prósentustig á milli mánaða og mælist nú 4,8% í mars. Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,4% í 3,3% í mars.

1. apríl 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

30. mars 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,4% í mars, svo há hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Vísitala launa lækkaði um 0,1% á milli mánaða í febrúar. Í síðustu viku birti Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleiki og fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun.

26. mars 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% eins og við spáðum og mælist nú 5,4%. Svo mikil hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Hækkun á verðbólgu á milli mánaða skýrist að langmestu leyti af hækkun á eldsneytisverði sem rekja má til átakanna við Persaflóa.

23. mars 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Mun harðari tónn var í yfirlýsingu nefndarinnar en við síðustu ákvörðun í febrúar. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 1,5% á milli ára, en kortavelta innanlands dróst saman. Vísitala íbúðaverðs hækkaði lítillega eftir mikla hækkun í janúar.

16. mars 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd hækki vexti á miðvikudaginn. Verðbólguhorfur hafa versnað upp á síðkastið sem sést meðal annars í niðurstöðum úr könnun á verðbólguvæntingum heimila og fyrirtækja sem Seðlabankinn birti í síðustu viku. Við hækkuðum einnig verðbólguspá okkar í síðustu viku.
