Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Íbúða­verð tók stökk í janú­ar en raun­verð íbúða lækk­ar áfram

Hækkun vísitölu íbúðaverðs á milli mánaða í janúar hefur ekki verið meiri síðan í byrjun árs 2024. Á síðustu mánuðum hefur þó dregið talsvert úr verðhækkunum á íbúðamarkaði og raunverð hefur lækkað á milli ára þrjá mánuði í röð. Við gerum ráð fyrir raunverðslækkunum á milli ára á allra næstu mánuðum, þó nafnverðslækkanir séu ólíklegri.
Fasteignir
24. febrúar 2026

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,7% á milli mánaða í janúar. Þetta er mesta hækkun vísitölunnar síðan í febrúar 2024. Árshækkunin mælist nú 2,4%, en í desember mældist árshækkunin 2,1% og hafði ekki mælst jafn lítil frá því í september 2023. Íbúðaverðshækkanir síðustu þrjá mánuði hafa verið minni en hækkanir á almennu verðlagi og mælist því raunverðslækkun á milli ára.

Hækkunin í janúar drifin áfram af sérbýli

Hækkunin í janúar var drifin áfram af verðhækkunum á sérbýli á höfuðborgarsvæðinu, sem hækkaði um 3,2%. Einnig hækkaði sérbýli á landsbyggðinni um 1,9%. Verð á sérbýli sveiflast mun meira en verð á fjölbýli þar sem sérbýli eru færri og fjölbreytilegri, því segja skammtímaverðbreytingar á þeim minna um undirliggjandi verðþrýsting en þróun á verði fjölbýlis. Verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hefur sveiflast mun minna síðustu mánuði og hefur raun verið nokkuð stöðugt frá miðju síðasta ári. Árshækkun íbúðaverðs mælist 2,4% í janúar og hefur haldist á bilinu 2-4% á síðustu misserum, en í janúar 2025 mældist árshækkunin 10,4%.

Raunverð 2% lægra en í janúar í fyrra

Síðustu þrjá mánuði hafa íbúðaverðshækkanir á ársgrundvelli verið lægri en hækkanir á almennu verðlagi. Raunverð fæst með því að taka tillit til verðbólgu, til þess notum við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Raunverð lækkar þannig á milli ára ef árshækkun íbúðaverðs er minni en árshækkun vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Vísitala íbúðaverðs hefur því lækkað um rétt rúmlega 2%, leiðrétt fyrir verðlagi. Ársbreyting raunverðs hefur ekki lækkað eins mikið síðan í nóvember 2023.

Rólegri taktur á íbúðamarkaði

Velta á íbúðamarkaði var töluvert minni nú í janúar en í fyrra en þá var fjöldi samninga óvenju mikill. Alls voru 611 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði undirritaðir í janúar en í janúar 2025 var fjöldi kaupsamninga 731. Þannig fækkaði kaupsamningum um 16% á milli ára. Töluverðar sveiflur hafa verið í fjölda kaupsamninga síðustu mánuði, en óvissa í kjölfar dóms hæstaréttar í Vaxtamálinu í október hefur þar eflaust haft mikið að segja. Heilt á litið hefur dregið úr veltu allra síðustu mánuði.

Vísitala leiguverðs lækkaði annan mánuðinn í röð

Vísitala leiguverðs lækkaði um 0,3% á milli mánaða í janúar og árshækkun hennar mældist 5%. Svo lítil hefur árshækkun leiguvísitölunnar ekki mælst síðan í lok árs 2021. Þetta er í fyrsta skipti síðan í maí 2023 þar sem árshækkun vísitölunnar er minni en verðbólga, en árshækkun leiguverðs er enn nokkuð meiri en árshækkun íbúðaverðs.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
27. maí 2026
Seigla í ferðaþjónustunni þrátt fyrir mikla óvissu
Þrátt fyrir minna flugframboð um Keflavíkurflugvöll hafa jafn margir erlendir ferðamenn farið um flugvöllinn fyrstu fjóra mánuði ársins í ár og í fyrra. Á móti fara færri tengifarþegar um flugvöllinn og utanlandsferðir Íslendinga hafa dregist verulega saman. Þó sumarið líti ágætlega út er meiri óvissa um haustið.
Vikubyrjun
26. maí 2026
Vikubyrjun 26. maí 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti bankans um 0,25 prósentustig í síðustu viku, líkt og við höfðum spáð. Nú í vikunni koma verðbólgutölur og þjóðhagsreikningar.
Stýrivextir
20. maí 2026
Vextir hækkaðir og horfur versnandi
Peningastefnunefnd hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig annað skiptið í röð og segist tilbúin til að hækka vexti enn frekar. Efnahagshorfur hafa þó versnað verulega að mati bankans, en verðbólguspá var hækkuð í nýútgefnum Peningamálum og hagvaxtaspá lækkuð auk þess sem gert er ráð fyrir auknu atvinnuleysi. Kólnunin í hagkerfinu mun þó gera það að verkum að hættan á aukinni verðbólgu fram á við er minni.
19. maí 2026
Vísbendingar um að einkaneysla gefi eftir
Kortavelta íslenskra heimila dróst verulega saman á milli ára í apríl, eða um alls 5,8% að teknu tilliti til verðlags og gengis. Svo mikill samdráttur hefur ekki mælst síðan í febrúar 2021. Peningastefnunefnd fundar í dag vegna vaxtaákvörðunar á morgun, en við gerum áfram ráð fyrir 0,25 prósentustiga hækkun vaxta.
Vikubyrjun
18. maí 2026
Vikubyrjun 18. maí 2026
Í vikunni fram undan er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands og við spáum 0,25 prósentustiga hækkun. Fjöldi ferðamanna á fyrstu fjórum mánuðum ársins var svipaður og á sama tímabil í fyrra samkvæmt tölum sem birtust í síðustu viku. Utanlandsferðum Íslendinga hefur aftur á móti fækkað töluvert. Atvinnuleysi heldur áfram að aukast á milli ára.
Stýrivextir
13. maí 2026
Spáum 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga er enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar hafa reynst þrálátar. Að okkar mati mun það ráða mestu um að nefndin haldi áfram vaxtahækkunarferlinu sem hófst í mars.
12. maí 2026
Spáum 4,9% verðbólgu í maí
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13% á milli mánaða í maí. Gangi spáin eftir mun verðbólga lækka úr 5,2% í 4,9%. Lægra eldsneytisverð vegna lækkunar á virðisaukaskatti og lækkun flugfargjalda hafa mest áhrif til lækkunar á milli mánaða samkvæmt spánni. Við spáum að verðbólga mælist 4,9% í ágúst og kjarasamningar því mögulega í húfi.
Vikubyrjun
11. maí 2026
Vikubyrjun 11. maí 2026
Starfandi samkvæmt skrám fækkaði á milli ára. Frjósemi á Íslandi síðastliðin tvö ár hefur ekki mælst minni síðan mælingar hófust. Í þessari viku fáum við m.a. ferðamannatölur og atvinnuleysi ásamt uppgjörum frá félögum.
8. maí 2026
Stöðugleiki á gjaldeyrismarkaði - spáum þó lítils háttar veikingu
Það sem af er ári hefur krónan styrkst og evran stendur núna í 144 krónum. Nokkuð gott jafnvægi hefur verið á milli innflæðis og útflæðis á gjaldeyrismarkaði. Raungengi er mjög hátt og við eigum von á að krónan veikist næstu ár.
4. maí 2026
Sólmyrkvinn gæti skapað verðbólguskot á versta tíma
Almyrkvi á sólu verður sýnilegur á vesturhluta landsins þann 12. ágúst næstkomandi. Gríðarleg eftirspurn er eftir flugi til landsins, gistingu, veitingaþjónustu og bílaleigubílum á þeim tíma og mikið er uppbókað nú þegar. Aukin velta og verðþrýstingur á ýmissi þjónustu verður líklega töluverð á þeim svæðum sem sólmyrkvinn sést.