Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Bláa Lón­ið hef­ur lok­ið hluta­fjárút­boði

13. nóvember 2026

Almennu hlutafjárútboði Bláa Lónsins hf. lauk kl. 16:00 þann 13. nóvember. Alls bárust tæplega 4 þúsund áskriftir að andvirði um 15,3 ma. kr.

  • Heildarfjöldi seldra hluta í útboðinu nam alls 150 milljónum hluta, heildarsöluandvirði útboðsins nam tæpum 14,3 milljörðum króna og endanlegt gengi 95 kr. á hlut.
  • Skerðing áskrifta var í samræmi við skilmála útboðsins.
  • Upplýsingar um úthlutun er hægt að nálgast á útboðsvef.

Fjárfestum verður tilkynnt um úthlutun í útboðinu eigi síðar en 16. nóvember. Gjalddagi áskriftarloforða er 18. nóvember og er ráðgert að afhending hinna nýju hluta til fjárfesta fari fram eigi síðar en 20. nóvember.

Stefnt er að því að viðskipti með hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hefjist þann 20. nóvember, en Nasdaq Iceland hefur samþykkt umsókn félagsins um töku hlutabréfanna til viðskipta með fyrirvara um dreifingu hlutafjár fyrir fyrsta viðskiptadag. Útistandandi hlutir Bláa Lónsins í kjölfar útboðs nema 1.024.763.489 hlutum.

Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki höfðu umsjón með almenna útboðinu og Landsbankinn með töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Grímur Sæmundsen, stjórnarformaður Bláa Lónsins:

„Þetta eru stór tímamót fyrir Bláa Lónið, íslenska ferðaþjónustu og fyrir Kauphöllina. Félagið hefur verið byggt upp skref fyrir skref frá árinu 1992 og ég hef mikla trú á framtíð þess og tækifærunum framundan fyrir Ísland.  Með nýjum hluthöfum höldum við áfram að byggja upp íslenska upplifunar- og vellíðunarferðaþjónustu, með virðingu fyrir náttúrunni og í samvinnu við nærsamfélög. Það er sérstaklega ánægjulegt hversu margir Íslendingar vilja eiga hlut í Bláa Lóninu, það skiptir okkur miklu máli í þeirri vegferð sem er fram undan.” segir Grímur Sæmundsen, stofnandi og stjórnarformaður Bláa Lónsins.“

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins:

„Við þökkum fjárfestum traustið og bjóðum fjögur þúsund nýja hluthafa velkomna. Við höfum skýra sýn á uppbygginguna fram undan: að þróa upplifanir um land allt og leiða áfram þá uppbyggingu sem staðsetur Ísland sem einn fremsta upplifunar- og vellíðunaráfangastað heims. Með breiðari hópi hluthafa erum við vel í stakk búin til að fylgja þeirri sýn eftir. Við erum í raun bara rétt að byrja,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins.“

Nánar um útboðið

Þú gætir einnig haft áhuga á
10. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið. Þann 5. nóvember 2026 birti Bláa Lónið lýsingu sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsinu. Tekið verður við áskriftum á vef bankans frá kl. 10:00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 til kl. 16:00 föstudaginn 13. nóvember 2026.
10. nóv. 2026
Nýr og endurbættur netbanki einstaklinga
Við höfum gefið út nýjan og endurbættan netbanka einstaklinga. Þar er enn einfaldara og þægilegra fyrir viðskiptavini að fylgjast með fjármálum sínum og sinna bankaerindum.
9. nóv. 2026
Landsbankinn og Brutto einfalda fjármál fyrirtækja
Fyrirtækjaeigendur geta nú sinnt fjármálum og haldið utan um daglegan rekstur á einum stað með Brutto, nýju rekstrarkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
6. nóv. 2026
Opinn kynningarfundur um hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Bláa Lónið hf. og Landsbankinn hf. boða til opins kynningarfundar, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 10, í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins og umsókn um töku allra hluta félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
6. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. („félagið“) og umsókn um töku allra hluta þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, hefur félagið birt lýsingu sem dagsett er 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu.
Austurbakki
29. okt. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna. Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
28. okt. 2026
Fjölmenni og líflegar umræður á hagspárfundi
Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.