Vikubyrjun 16. júlí 2018
Hagstofa Íslands gaf út vísitölu heildarlauna í fyrsta sinn í síðustu viku. Vísitala heildarlauna byggir á öllum greiddum launum deilt með heildarfjölda greiddra stunda eftir atvinnugreinum og sýnir því launaþróun sem endurspeglar verðbreytingu vinnustundar, breytt hlutfall vinnuafls með há og lág laun, breytt hlutfall yfirvinnustunda eða samspil þessara þátta.
16. júlí 2018
Vikan framundan
- Í dag birtir Hagstofan tölur um fiskafla í júní.
- Á morgun birtir Þjóðskrá vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir júní.
- Á miðvikudag birtir Þjóðskrá vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir júní.
- Á fimmtudag birtir Hagstofan vísitölu neysluverðs í júní.
- Á föstudag birtir Hagstofan vísitölu byggingakostnaðar í ágúst.
Mynd vikunnar
Vísitala heildarlauna er sveiflukenndari en almenna launavísitalan þar sem hún tekur tillit til margra árstíðabundinna þátta líkt og yfirvinnu, kaupauka, árlegra eingreiðslna og annarra óreglulegra þátta. Vísitölurnar tvær segja svipaða sögu þó ekki sé verið að mæla sama hlutinn. Milli áranna 2008 og 2017 hækkuðu heildarlaun samkvæmt vísitölu heildarlauna um tæp 72% meðan að á sama tíma hækkaði launavísitalan um tæp 79%.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Ferðamálastofa birti tölur um fjölda erlendra farþega í júní.
- Seðlabankinn birti á vef bankans skýrslu peningastefnunefndar til Alþingis.
- Lánamál ríkisins birtu mánaðarlega markaðsupplýsingaskýrslu.
- Hagstofan gaf í fyrsta sinn út vísitölu heildarlauna.
- Seðlabankinn birti tölur um greiðslumiðlun.
- Íbúðalánasjóður gaf út mánaðarskýslu fyrir júlí.
- Vinnumálastofnun birti tölur um skráð atvinnuleysi í júní.
- Icelandair lækkaði afkomuspá sína fyrir árið 2018.
- VÍS og TM sendu frá sér afkomuviðvörun fyrir 2. ársfjórðung.
- Landsbankinn hélt útboð sértryggða skuldabréfa, Arion banki hélt víxlaútboð og Lykill fjármögnun hélt víxlaútboð.
- Við birtum hagsjá um þróun fasteignaviðskipta í stærri bæjum.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á

15. des. 2025
Færri erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í nóvember í ár en í nóvember í fyrra en utanlandsferðum Íslendinga hélt áfram að fjölga. Skráð atvinnuleysi hefur aukist þó nokkuð á síðustu mánuðum og var 4,3% í nóvember.

11. des. 2025
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,56% á milli mánaða í desember. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 3,7% í 3,9% í desember. Flugfargjöld til útlanda, reiknuð húsaleiga og lok tilboðsdaga í nóvember verða til hækkunar en bensínverð til lækkunar. Við gerum ráð fyrir að verðbólga verði á bilinu 3,9% til 4,0% næstu mánuði.

8. des. 2025
Talsvert minni afgangur mældist af viðskiptum við útlönd á þriðja ársfjórðungi þessa árs en þess síðasta. Í síðustu viku gaf Seðlabankinn út yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og fundargerð peningastefnunefndar. Í þessari viku verða birtar ferðamannatölur og skráð atvinnuleysi fyrir nóvembermánuð.

1. des. 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

1. des. 2025
Óhætt er að segja að verðbólgumælingin í síðustu viku hafi komið á óvart. Verðbólga mældist 3,7% í nóvember og hefur ekki mælst minni í fimm ár. Hagstofan áætlar að landsframleiðsla hafi aukist um 1,2% á þriðja ársfjórðungi. Gistinóttum fjölgaði alls um 1,8% á milli ára í október.

28. nóv. 2025
Landsframleiðsla jókst um 1,2% á þriðja ársfjórðungi og um 1,5% á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi var drifinn áfram af innlendri eftirspurn og þjóðarútgjöld jukust um heil 4,7%. Áfram er kraftur í einkaneyslu og fjárfestingu, en auknar birgðir hafa einnig sitt að segja. Innflutningur vegur þungt á móti og framlag utanríkisviðskipta er neikvætt, líkt og á síðustu fjórðungum.

27. nóv. 2025
Verðbólga hjaðnaði úr 4,3% í 3,7% í nóvember og hefur ekki verið minni frá því í desember 2020. Áhrif af afsláttardögum í nóvember komu mun skýrar fram í mælingu Hagstofunnar nú en síðustu ár og flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun meira en við bjuggumst við.

24. nóv. 2025
Seðlabankinn lækkaði vexti í síðustu viku með það fyrir augum að stemma stigu við því aukna peningalega aðhaldi sem hefur hlotist af breyttu lánaframboði í kjölfar vaxtadómsins. Auk þess spáir Seðlabankinn nú auknum slaka í hagkerfinu, minni hagvexti og minni verðbólgu en í síðustu spá. Hagstofan birtir verðbólgumælingu nóvembermánaðar á fimmtudaginn og þjóðhagsreikninga fyrir þriðja ársfjórðung á föstudaginn.

21. nóv. 2025
Brottfarir erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli voru 6,2% færri í október en í sama mánuði í fyrra og erlend kortavelta dróst þó nokkuð saman. Líklega hefur fall Play sett mark sitt á mánuðinn. Ef horft er yfir árið í heild hefur gangurinn í ferðaþjónustu verið mun meiri á þessu ári en því síðasta.

17. nóv. 2025
Skráð atvinnuleysi var 3,9% í október, 0,5 prósentustigum meira en í sama mánuði í fyrra. Brottförum erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 6,2% í október en utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði um 3%. Peningastefnunefnd kemur saman á miðvikudaginn og við búumst við að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum.