Vikubyrjun 13. apríl 2026

Vikan framundan
- Á fimmtudag birta Íslandsbanki og Ölgerðin uppgjör.
- Á föstudag birtir Seðlabankinn greiðslumiðlun í mars.
Mynd vikunnar
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruviðskipti í mars nam halli á vöruviðskiptum á fyrstu þremur mánuðum ársins aðeins um 47 mö. kr. Til samanburðar var hallinn um 109 ma. kr. á sama tíma í fyrra. Útflutningsverðmæti stóðu í stað á milli ára en innflutningsverðmæti drógust saman um 27% á fyrsta fjórðungi ársins. Minni innflutningsverðmæti má að mestu rekja til minni innflutnings á fólksbílum í byrjun árs en einnig til minni innflutnings á fjárfestingarvörum í janúar og febrúar. Heildar útflutningsverðmæti stóðu í stað á milli ára, nokkur vöxtur mældist í útflutningi sjávarafurða og fiskeldis en á móti var mikill samdráttur í útflutningsverðmætum af áli, lyfjum og lækningavörum.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Um 155 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í mars, 1,6% fleiri en í mars í fyrra. Á sama tíma fóru tæplega 56 þúsund Íslendingar til útlanda sem er 3,6% fækkun á milli ára. Utanlandsferðum Íslendinga hafa farið fækkandi alla mánuði ársins. Minna flugframboð um Keflavíkurflugvöll virðist hafa lítil áhrif á komu ferðamanna til landsins, en kemur frekar fram sem samdráttur í tengifarþegum og færri utanlandsferðum Íslendinga.
- Skráð atvinnuleysi var 4,8% í mars og minnkar um 0,1 prósentustig á milli mánaða. Skráð atvinnuleysi mælist nú 0,6 prósentustigum hærra en í mars í fyrra. Þrjár hópuppsagnir voru tilkynntar í mars þar sem 90 manns var sagt upp.
- Ríkisstjórnin samþykkti tímabundnar efnahagsaðgerðir til að hemja verðbólgu og bregðast við verðhækkunum á olíu. Þær fela m.a. í sér lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti á dælu úr 24% í 11%. Aðgerðirnar taka gildi 1. maí og lýkur 31. ágúst.
- Seðlabanki Íslands hélt ársfund samhliða birtingu ársskýrslu. Seðlabankastjóri, forsætisráðherra og formaður bankaráðs héldu ræðu.
- Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,4% í 3,3% í mars, eða um 0,9 prósentustig. Hækkunin var að miklu leyti orkudrifin (olía/bensín). Mælingin var í takt við væntingar.
- Arion banki lagði inn beiðni um lækkun á hlutafé. Icelandair birti flutningstölur. Íslandsbanki og Reitir tilkynntu um endurkaupaáætlanir. Útgerðarfélag Reykjavíkur birti samstæðureikning fyrir 2025.
- Arion banki lauk sölu á sértryggðum skuldabréfum ásamt skiptiútboði. Lánasjóður sveitarfélaga, Útgerðarfélag Reykjavíkur og Lánamál ríkisins luku sölu á skuldabréfum.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).









