Veru­leg minnk­un at­vinnu­leys­is í júní og mun lík­lega minnka áfram

Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar var almennt skráð atvinnuleysi í júní 7,4% af áætluðum fjölda fólks á vinnumarkaði og hafði minnkað úr 9,1% frá því í maí. Um 14.300 manns voru á atvinnuleysisskrá í júní. Ekki er lengur um að ræða atvinnuleysi sem tengist hlutabótaleið þar sem henni lauk í maí. Því var heildaratvinnuleysi í júní einnig 7,4% samanborið við 10,0% í maí og minnkaði þannig um 2,6 prósentustig milli mánaða. Í júní 2020 var almennt atvinnuleysi 7,5% og það hefur því minnkað um 0,1 prósentustig á einu ári.
Ferðamenn á Íslandi
13. júlí 2021 - Hagfræðideild

Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar var almennt skráð atvinnuleysi í júní 7,4% af áætluðum fjölda fólks á vinnumarkaði og hafði minnkað úr 9,1% frá því í maí. Um 14.300 manns voru á atvinnuleysisskrá í júní.

Ekki er lengur um að ræða atvinnuleysi sem tengist hlutabótaleið þar sem henni lauk í maí. Því var heildaratvinnuleysi í júní einnig 7,4% samanborið við 10,0% í maí og minnkaði þannig um 2,6 prósentustig milli mánaða. Í júní 2020 var almennt atvinnuleysi 7,5% og það hefur því minnkað um 0,1 prósentustig á einu ári.

Almennt atvinnuleysi minnkaði alls staðar á landinu milli maí og júní. Mest dró úr atvinnuleysi á Suðurnesjum, um 5,0 prósentustig og svo um 2,6 prósentustig á Suðurlandi. Atvinnuleysi er eftir sem áður mest á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu, en það er ekki lengur tvöfalt meira á Suðurnesjum en á höfuðborgarsvæðinu eins og hefur verið marga síðustu mánuði.

Vinnumálastofnun spáir því að áfram dragi úr almennu atvinnuleysi og að það verði í kringum 6,5% í júlí, m.a. vegna árstíðarsveiflu og sérstaks atvinnuátaks stjórnvalda

Almennt atvinnuleysi á Suðurnesjum var 13,7% í júní og minnkaði um 5 prósentustig frá maí. Almennt atvinnuleysi þar var 24,5% í janúar og hefur nú minnkað fimm mánuði í röð, alls um 10,8 prósentustig. Almennt atvinnuleysi á því svæði er ekki lengur tvöfalt meira en á höfuðborgarsvæðinu, þar sem það var næst mest, eða 7,9%. Þriðja mesta atvinnuleysið var á Suðurlandi, 5,4%. Minnsta atvinnuleysið var á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra eins og verið hefur.

Alls voru 1.854 ný störf auglýst í júní, en þau voru 1.972 í apríl. Um fjölbreytt störf var að ræða, flest störfin voru stjórnunar-, sérfræði- eða skrifstofustörf eða 510 störf. Þann 6. júlí voru um 11.259 störf í boði hjá Vinnumálastofnun og hafði þeim fjölgað um 7% frá því í júní.

Flest starfanna eða 54%, eru á höfuðborgarsvæðinu, 14% á Suðurlandi og 10% á Suðurnesjum. Lausum störfum fjölgaði á öllum svæðum, hlutfallslega lang mest milli mánaða á Suðurlandi, um 24%, og þar næst á Austurlandi, um 13%.

Um 45% lausra starfa er í greinum sem tengjast ferðaþjónustu. Lausum störfum fjölgaði í öllum greinum milli mánaða nema í opinberri þjónustu og farþegaflutningum með flugi.

Lesa Hagsjána í heild:

Hagsjá: Veruleg minnkun atvinnuleysis í júní og mun líklega minnka áfram

Þú gætir einnig haft áhuga á
Epli
24. júlí 2024
Verðbólga hækkar í 6,3%, meira en spár gerðu ráð fyrir
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,46% milli mánaða í júlí, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólgan hækkar því úr 5,8% í 6,3%, um 0,5 prósentustig. Það sem kom mest á óvart í tölunum var að sumarútsölurnar voru lakari en við bjuggumst við og verð á matarkörfunni hækkaði meira en við héldum. Við gerum nú ráð fyrir að ársverðbólgan verði 6,2% í ágúst, 6,1% í september og 5,6% í október. Spáin er um 0,2-0,3 prósentustigum hærri en síðasta verðbólguspá sem við birtum í verðkönnunarvikunni.
Evrópsk verslunargata
22. júlí 2024
Vikubyrjun 22. júlí 2024
Í síðustu viku birtust gögn sem gáfu til kynna talsverðan kraft á íbúðamarkaði um þessar mundir. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% milli mánaða í júní og vísitala leiguverðs um 2,5%.
Hús í Reykjavík
18. júlí 2024
Spenna á íbúðamarkaði
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í júní. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs jókst úr 8,4% í 9,1% en svo mikil hefur árshækkunin ekki verið síðan í febrúar 2023. Leiguverð hækkaði einnig á milli mánaða í júní, alls um 2,5%. Mikil velta var á íbúðamarkaði í júní og ljóst að íbúðamarkaður hefur tekið verulega við sér.
Gönguleið
15. júlí 2024
Vikubyrjun 15. júlí 2024
Erlendir ferðamenn voru 9% færri í júní á þessu ári en í júní í fyrra. Atvinnuleysi var 3,1% í júní og er áfram lítillega meira en á sama tíma í fyrra.
Fataverslun
10. júlí 2024
Spáum að verðbólga aukist lítillega og verði 5,9% í júlí 
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október. 
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur