Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Verð­bólga hjaðn­ar þvert á vænt­ing­ar

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,15% á milli mánaða í ágúst og verðbólga hjaðnaði úr 4,0% í 3,8%. Hjöðnun á milli mánaða kemur ánægjulega á óvart en við spáðum 0,07% hækkun á vísitölunni og óbreyttri verðbólgu. Við gerum nú ráð fyrir að verðbólga verði 3,8% í árslok, að stærstum hluta vegna lægri mælingar nú en við spáðum áður.
Flugvél
28. ágúst 2025

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,15% á milli mánaða og verðbólga hjaðnaði því úr 4,0% í 3,8%. Talan var lægri en við bjuggumst við, en við spáðum 0,07% hækkun á VNV á milli mánaða og óbreyttri verðbólgu. Helsti munurinn á spánni og mælingunni er að flugfargjöld til útlanda lækkuðu meira en við gerðum ráð fyrir og útsölur á fötum og skóm gengu minna til baka en við spáðum. Á móti gengu útsölur á húsgögnum og heimilisbúnaði hraðar til baka en við gerðum ráð fyrir. Verðbólga án húsnæðis minnkaði einnig á milli mánaða, úr 3,0% í 2,8%, og hið sama má segja um árshækkun allra þriggja kjarnavísitalnanna.

Minnkandi framlag þjónustu dregur úr ársverðbólgu

Framlag flestra liða til ársverðbólgu minnkaði á milli mánaða nú í ágúst, að innlendum vörum undanskildum. Framlag flugfargjalda hafði mest áhrif til lækkunar, en framlag annarrar þjónustu dróst einnig töluvert saman.  Breyting á framlagi annarrar þjónustu skýrist að stórum hluta af því að gjaldskrárhækkanir á hitaveitu voru gerðar í júlí í ár, en í ágúst í fyrra. Gjaldskrárhækkanirnar í ágúst í fyrra voru töluverðar og því er framlagið til lækkunar á ársverðbólgu nú í ágúst þó nokkuð. Flugfargjöld til útlanda sveiflast alltaf töluvert mikið á milli mánaða og nú í ágúst lækkaði liðurinn nokkuð meira en í ágúst í fyrra. Framlag innfluttra vara er einnig til lækkunar en það má líklega að mestu þakka sterkara gengi. Framlag innlendra vara eykst þó á milli mánaða, sem má að mestu rekja til matvöruverðs.

Helstu liðir vísitölunnar:

  • Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði lítillega í ágúst, eða um 0,06%. Við spáðum 0,1% hækkun. Framlag matvöru til ársverðbólgu eykst þó vegna þess að í ágúst í fyrra lækkaði matarkarfan um tæplega 0,5%.
  • Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,44% á milli mánaða, nokkuð minna en okkar spá um 0,6% hækkun. Liðurinn sveiflast nú á þrengra bili en áður. Við gerum nú ráð fyrir um 0,5% hækkun að meðaltali næstu mánuði, meðal annars vegna þess að vísitölutenging leigusamninga næstu mánuði ætti að hafa lítil áhrif til hækkunar.
  • Sumarútsölur á fötum og skóm voru nokkuð slakar í ár, en liðurinn lækkaði aðeins um 4,8% í júlí, töluvert minna en að meðaltali síðustu ár. Aftur á móti endurtók það sig nú í ágúst eins og í janúar að útsölurnar gengu töluvert minna til baka en yfirleitt, og föt og skór hækkuðu aðeins um 0,7%, en ekki um 2,5% eins og við höfðum spáð. Við gerum þó ráð fyrir að útsölurnar gangi alveg til baka í september. Þannig hliðrast áhrifin aftur um einn mánuð. 
  • Útsölur á húsgögnum og heimilisbúnaði gengu þó hraðar til baka en við gerðum ráð fyrir og liðurinn hækkaði um 1,2%. Hann lækkaði um 2,2% í júlíútsölunum.
  • Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 12% í ágúst, en til samanburðar lækkuðu þau aðeins um 7% í ágúst í fyrra. Það var því örlítið ódýrara að fljúga til útlanda í ágúst nú en í fyrra, en til samanburðar var það um 5% dýrara í júlí síðastliðnum en í júlí í fyrra. Framlag liðarins er því töluvert til lækkunar í ágúst.

Gerum ráð fyrir minni verðbólgu en í fyrri spá

Í september í fyrra voru máltíðir í grunnskólum gerðar gjaldfrjálsar og nú í september munu þau lækkunaráhrif detta úr ársverðbólgunni. Við gerum ráð fyrir að vísitala neysluverðs verði óbreytt í september, hækki um 0,29% í október, lækki um 0,1% í nóvember og hækki um 0,38% í desember. Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 4,0% í september og október og 3,8% í nóvember og desember. Spáin er aðeins lægri en síðasta spá sem við birtum í verðkönnunarvikunni, eða sem nemur um 0,2 prósentustigum. Mest áhrif hefur lægri mæling á verðbólgunni nú en við höfðum spáð. Við gerum líka ráð fyrir að útsölur á fötum og skóm gangi alveg til baka í næsta mánuði. Spá okkar fyrir reiknaða húsaleigu er nú um 0,5% hækkun á milli mánaða í staðinn fyrir 0,6% hækkun.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.
Vikubyrjun
28. sept. 2026
Vikubyrjun 28. september 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.
21. sept. 2026
Nær jafnmargir ferðamenn þrátt fyrir minna flug
Þrátt fyrir minna flugframboð til og frá landinu hefur ferðamönnum aðeins fækkað um 1%, það sem af er ári. Tengifarþegum hefur aftur á móti fækkað og Íslendingar hafa farið í færri utanlandsferðir í ár en í fyrra. Nýlegar kortaveltutölur benda til þess að neysla ferðamanna hafi tekið við sér yfir sumarið og að áhrif sólmyrkvans hafi fremur birst í aukinni neyslu en fjölgun gesta.
Vikubyrjun
21. sept. 2026
Vikubyrjun 21. september 2026
Greiðslukortavelta heimilanna dróst saman um 1,2% á milli ára í ágúst, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Íbúðaverð hækkaði lítillega í ágúst, en leiguverð lækkaði eftir að hafa hækkað sex mánuði í röð. 
18. sept. 2026
Kortavelta heimilanna dróst saman í ágúst
Kortavelta Íslendinga, að teknu tilliti til verðlags og gengis, dróst saman í ágúst og samdrátturinn hefur ekki mælst meiri síðan á síðari hluta árs 2023. Innanlands eyddu Íslendingar minna en á sama tíma í fyrra og vöxturinn í neyslu erlendis var minni en á síðustu mánuðum.