Verð á fjöl­býli hækk­aði tölu­vert í fe­brú­ar en sér­býli lækk­aði

Íbúðaverð náði aftur svipuðum hækkunartakti í febrúar og var undir lok síðasta árs eftir rólegan janúarmánuð. Hækkunin í febrúar var 0,6% miðað við 0,1% í janúar. Þessari hækkun var misskipt þar sem verð á fjölbýli hækkaði um 0,9% en verð á sérbýli lækkaði um 0,7%. 12 mánaða hækkun íbúðaverð mælist nú 7,3% og er óbreytt frá því í janúar. Árshækkun fjölbýlis var 7,2% í febrúar og jókst úr 6,8% í janúar. Árshækkun sérbýlis var 6,3% í febrúar og lækkaði úr 7,8% í janúar.
Fasteignir
17. mars 2021 - Hagfræðideild

Íbúðaverð náði aftur svipuðum hækkunartakti í febrúar og var undir lok síðasta árs eftir rólegan janúarmánuð. Hækkunin í febrúar var 0,6% miðað við 0,1% í janúar. Þessari hækkun var misskipt þar sem verð á fjölbýli hækkaði um 0,9% en verð á sérbýli lækkaði um 0,7%. Þetta er annar mánuðurinn í röð sem verð á sérbýli lækkar.

Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali um 0,6% milli janúar og febrúar. Verð á fjölbýli hækkaði um 0,9% og verð á sérbýli lækkaði um 0,7%. 12 mánaða hækkun íbúðaverð mælist nú 7,3% og er óbreytt frá því í janúar. Árshækkun fjölbýlis var 7,2% í febrúar og jókst úr 6,8% í janúar. Árshækkun sérbýlis var 6,3% í febrúar og lækkaði úr 7,8% í janúar.

Almennt verðlag án húsnæðiskostnaðar hækkaði um 0,8% milli mánaða í janúar og lækkaði raunverð íbúða því um 0,1%. Allt frá upphafi árs 2018 hafa raunverðshækkanir verið hóflegar, eða að jafnaði 0,2% milli mánaða. 12 mánaða hækkun raunverðs mælist nú 2,7% og hækkar frá fyrri mánuði. Frá því í mars hefur árshækkun raunverðs mælst undir meðaltalinu frá 2015. Er það til marks um stöðuga þróun þar sem íbúðaverð þróast í samræmi við verðlag annarra vara.

Allt frá árinu 2017 hefur verið meiri spenna í viðskiptum með sérbýli en fjölbýli sé miðað við hversu stórt hlutfall eigna selst yfir ásettu verði. Þessi munur var einna mestur á árunu 2017 og 2018 þegar tiltölulega mikil ró var yfir markaðnum með fjölbýli. Frá árslokum 2019 hefur sífellt hærra hlutfall sérbýliseigna selst yfir ásettu verði, stökk úr u.þ.b. 10% eigna upp í 27-28%. Sama þróun fór af stað varðandi fjölbýlið, en hún hófst þó ekki fyrr en um mitt ár 2020 og þar var stökkið mun minna. Í janúar 2021 seldust 21% eigna í fjölbýli yfir ásettu verði sé miðað við meðaltal þriggja síðustu mánaða, en 26% eigna í sérbýli. Nú hefur verð á sérbýli lækkað tvo mánuði í röð þannig að þessi staða kann að vera að breytast.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Verð á fjölbýli hækkaði töluvert í febrúar en sérbýli lækkaði

Þú gætir einnig haft áhuga á
Fataverslun
10. júlí 2024
Spáum að verðbólga aukist lítillega og verði 5,9% í júlí 
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október. 
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Paprika
24. júní 2024
Vikubyrjun 24. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% í maí og vísitala leiguverðs um 3,2% samkvæmt gögnum sem bárust í síðustu viku. Englandsbanki hélt vöxtum óbreyttum á meðan svissneski seðlabankinn lækkaði vexti um 0,25 prósentustig. Eftirtektarverðasta innlenda hagtalan sem birtist í þessari viku er eflaust vísitala neysluverðs sem Hagstofan birtir á fimmtudaginn.
Fjölbýlishús
19. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs á hraðri uppleið
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Nafnverð íbúða er 8,4% hærra en á sama tíma í fyrra og raunverð íbúða er 4% hærra. Undirritaðir kaupsamningar um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu voru 150% fleiri í maí á þessu ári en í maí í fyrra.  
Krani með stiga
18. júní 2024
Vikubyrjun 18. júní 2024
Í síðustu viku fengum við tölur um atvinnuleysi, fjölda ferðamanna og greiðslukortaveltu hér á landi í maí. Seðlabanki Bandaríkjanna hélt vöxtum óbreyttum. Síðar í dag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur