Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um að verð­bólga lækki í 5,7% í sept­em­ber

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,08% á milli mánaða í september og að verðbólga lækki úr 6,0% niður í 5,7%. Við eigum von á áframhaldandi lækkun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 4,9% í lok árs.
12. september 2024

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,08% á milli mánaða nú í september og að ársverðbólga lækki úr 6,0% í 5,7%. Húsnæðisliðurinn og útsölulok á fötum og skóm hafa mest áhrif til hækkunar. Til lækkunar að þessu sinni er það matarkarfan, flugfargjöld til útlanda og bensín. Auk þess munu gjaldfrjálsar skólamáltíðir valda því að liðurinn hótel og veitingastaðir lækki nokkuð.

Matarkarfan lækkar annan mánuðinn í röð

Liðurinn matur og drykkjarvara lækkaði um 0,5% á milli mánaða í ágúst, í fyrsta sinn í þrjú ár. Má ætla að þar hafi áhrif nýrrar lágvöruverslunar gert vart við sig. Einnig spilar hugsanlega inn í mikil hækkun á matarkörfunni mánuðinn á undan, í júlí. Verðmælingar okkar benda til þess að matarkarfan hafi svo haldið áfram að lækka nú í september, en við gerum ráð fyrir að lækkunin verði aðeins hóflegri en í ágúst, eða 0,2% á milli mánaða (-0,03% áhrif).

Útsölulok á fötum, skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði

Að jafnaði ganga júlíútsölur á fötum og skóm til baka í ágúst og september. Við gerum ráð fyrir að verðlækkunin sem varð í júlí í ár, sem á enn eftir að ganga til baka, skili sér í verðhækkun í september og að föt og skór hækki því um 5,2% (0,19% áhrif). Að sama skapi gerum við ráð fyrir því að sumarútsölur á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. gangi að fullu til baka í september og hækki sá liður um 1,0% (0,05% áhrif). Alls eru áhrif útsöluloka 0,24% til hækkunar á VNV í september samkvæmt okkar spá.

Húsnæðisliðurinn til hækkunar

Við spáum því að reiknuð húsaleiga, sem endurspeglar húsnæðiskostnað húsnæðiseigenda, hækki um 0,6% á milli mánaða (0,12% áhrif) og að „annað vegna húsnæðis“ hækki einnig um 0,6% (0,06% áhrif). Hækkun á „öðru vegna húsnæðis“ skýrist af hækkunum á greiddri húsleigu og hækkunum á hita og rafmagni. Alls eru áhrif húsnæðisliðarins 0,18% til hækkunar á VNV í september.

Flugfargjöld til útlanda og bensínverð lækka

Almennt er nokkuð skýr árstíðarsveiflu á flugfargjöldum til útlanda. Þau eru hæst í júlí, lækka með haustinu og hækka svo aftur fyrir jól og páska. Við spáum því að flugfargjöld lækki um tæp 10,5% á milli mánaða (-0,24% áhrif) nú í september. Gangi spáin eftir verður um 3% dýrara að fljúga til útlanda í september í ár en í fyrra. Samkvæmt verðkönnun okkar hefur verð á bensíni og díselolíu lækkað um 1,8% á milli mánaða (-0,06% áhrif). Við gerum síðan ráð fyrir smávægilegum hækkunum á verði nýrra bíla, þrátt fyrir minni eftirspurn, vegna þess að gengið hefur veikst. Alls hefur liðurinn ferðir og flutningar því 0,27% áhrif til lækkunar á vísitölunni í september.

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir lækka verðbólgumælinguna

Í september koma fram breytingar á gjöldum vegna grunnskóla, þar á meðal gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Við gerum ráð fyrir því að þetta hafi um 0,14% áhrif til lækkunar á vísitölu neysluverðs. Skólamáltíðir eru flokkaðar með mötuneytum sem falla undir liðinn hótel og veitingastaðir og gerum við ráð fyrir því að sá liður lækki um 2,4% á milli mánaða (-0,13% áhrif). Svipuð breyting varð í síðasta mánuði þegar niðurfelling skólagjalda í tveimur háskólum höfðu 0,14% áhrif til lækkunar á VNV. Gangi spá okkar um áhrif gjaldfrjálsra skólamáltíða eftir mun mæling Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs í september vera um 0,28% lægri en ella vegna tilfærslna á því hvort heimilin eða ríki greiða fyrir þjónustu. Hér er um að ræða hjöðnun á verðbólgu vegna tæknilegra atriða, þ.e. á því hver greiðir fyrir þjónustu, fremur en að um minni verðbólguþrýsting sé að ræða.

Spá um septembermælingu VNV

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 14,8% -0,2% -0,03%
Áfengi og tóbak 2,4% 0,1% 0,00%
Föt og skór 3,8% 5,2% 0,19%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,7% 0,6% 0,06%
Reiknuð húsaleiga 19,7% 0,6% 0,12%
Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. 5,6% 1,0% 0,05%
Heilsa 4,0% 0,2% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 3,8% 0,2% 0,01%
- Kaup ökutækja 6,7% 0,2% 0,01%
- Bensín og díselolía 3,2% -1,8% -0,06%
- Flugfargjöld til útlanda 2,0% -10,5% -0,24%
Póstur og sími 1,6% 0,0% 0,00%
Tómstundir og menning 9,9% 0,6% 0,06%
Menntun 0,9% 0,9% 0,01%
Hótel og veitingastaðir 5,3% -2,4% 0,13%
Aðrar vörur og þjónusta 6,6% 0,3% 0,02%
Alls 100,0%   0,08%

Spáum undir 5% verðbólgu fyrir áramót

Samkvæmt skammtímaspá okkar mun vísitala neysluverðs hækka um 0,23% í október, standa óbreytt  í nóvember og hækka um 0,32% í desember. Gangi spáin eftir verður verðbólga 5,3% í október og 4,9% í nóvember og desember. Spáin er aðeins lægri en síðasta spá sem við birtum í kjölfar þess að Hagstofan birti ágústmælingu vísitölu neysluverðs. Munurinn skýrist aðallega af því að verðmælingar okkar á bensíni og á mat og drykkjarvörum voru nokkuð lægri en við áttum von á. Á móti erum við að gera ráð fyrir aðeins veikari gengi.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Hagfræðideildar Landsbankans hf. (hagfraedideild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Hagfræðideild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.
Vikubyrjun
28. sept. 2026
Vikubyrjun 28. september 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.
21. sept. 2026
Nær jafnmargir ferðamenn þrátt fyrir minna flug
Þrátt fyrir minna flugframboð til og frá landinu hefur ferðamönnum aðeins fækkað um 1%, það sem af er ári. Tengifarþegum hefur aftur á móti fækkað og Íslendingar hafa farið í færri utanlandsferðir í ár en í fyrra. Nýlegar kortaveltutölur benda til þess að neysla ferðamanna hafi tekið við sér yfir sumarið og að áhrif sólmyrkvans hafi fremur birst í aukinni neyslu en fjölgun gesta.
Vikubyrjun
21. sept. 2026
Vikubyrjun 21. september 2026
Greiðslukortavelta heimilanna dróst saman um 1,2% á milli ára í ágúst, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Íbúðaverð hækkaði lítillega í ágúst, en leiguverð lækkaði eftir að hafa hækkað sex mánuði í röð. 
18. sept. 2026
Kortavelta heimilanna dróst saman í ágúst
Kortavelta Íslendinga, að teknu tilliti til verðlags og gengis, dróst saman í ágúst og samdrátturinn hefur ekki mælst meiri síðan á síðari hluta árs 2023. Innanlands eyddu Íslendingar minna en á sama tíma í fyrra og vöxturinn í neyslu erlendis var minni en á síðustu mánuðum.