Spáum 4,5% verðbólgu í október
Hagstofan birtir septembermælingu vísitölu neysluverðs (VNV) miðvikudaginn 27. október. Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,6% hækkun vísitölunnar milli mánaða. Gangi spáin eftir hækkar verðbólgan úr 4,4% í 4,5%. Verðbólga án húsnæðis hefur gengið nokkuð hratt niður að undanförnu og mældist hún 3,3% í september en hún sló hæst í 4,7% í janúar. Við spáum því að verðbólga án húsnæðiskostnaðar verði 3,4% í október.
14. október 2021 - Hagfræðideild
Við teljum að helstu áhrifaþættir á verðbólguþróunina í september verði reiknuð húsaleiga, bensín og húsgögn og heimilisbúnaður. Allir þessi liðir munu vega til hækkunar á verðlagi.
Spá okkar til næstu þriggja mánaða er að VNV hækki um 0,4% í nóvember, 0,3% í desember en að hún lækki um 0,3% í janúar. Gangi spáin eftir mun verðbólgan verða 4,8% í janúar. Við teljum að verðbólga án húsnæðis verði 3,2% í janúar.
Lesa Hagsjána í heild
Þú gætir einnig haft áhuga á
28. sept. 2023
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,35% milli mánaða í september og við það jókst ársverðbólga úr 7,7% í 8,0%. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun minna en við bjuggumst við en að öðru leyti var mælingin nokkurn veginn í takt við okkar spá. Framlag þjónustu og húsnæðis til ársverðbólgu jókst á hlut annarra liða. Við gerum enn ráð fyrir að verðbólga hjaðni næstu mánuði.
25. sept. 2023
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% milli mánaða í ágúst, samkvæmt gögnum sem HMS birti í síðustu viku. Vísitalan lækkaði þó nokkuð í júní og júlí og hækkunin kom því nokkuð á óvart. Í næstu viku ber hæst birting Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs á fimmtudag.
20. sept. 2023
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,7% milli mánaða í ágúst. Árshækkun vísitölunnar fór úr 0,8% í 2,0%. Undirritaðir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu voru 9,6% færri í júlí en í sama mánuði í fyrra. Vísitalan er hærri en við gerðum ráð fyrir við gerð verðbólguspár fyrir septembermánuð og því færum við hana upp og spáum 7,8% ársverðbólgu í stað 7,7%.
18. sept. 2023
Um 282 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í ágúst. Ef sumarmánuðirnir eru teknir saman hafa aðeins einu sinni komið fleiri ferðamenn að sumri, árið 2018. Samkvæmt nýjustu þjóðhagsreikningum Hagstofunnar jókst þjónustuútflutningur á fyrstu tveimur fjórðungum ársins um 21%, og má rekja allan þann vöxt til ferðaþjónustunnar.
18. sept. 2023
Í síðustu viku komu tölur um brottfarir frá Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og veltu greiðslukorta. Í þessari viku ber hæst vísitala íbúðaverðs, sem kemur á þriðjudag, og yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands, sem gefin verður út á miðvikudaginn.
15. sept. 2023
Nýjar kortaveltutölur bera með sér frekari vísbendingar um að verulega sé að hægja á innlendri eftirspurn. Heildarkortavelta íslenskra heimila dróst saman um 3,4% milli ára í ágúst. Kortavelta Íslendinga innanlands var 4,3% minni en í ágúst í fyrra á föstu verðlagi og hefur nú dregist saman sex mánuði í röð. Erlendis jókst kortavelta Íslendinga um 0,7% á milli ára og kortaveltujöfnuður er jákvæður um 19,2 milljarða.
14. sept. 2023
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,07% milli mánaða í september og að ársverðbólga standi í stað og verði áfram 7,7%. Útsölulok hafa aftur mest áhrif til hækkunar milli mánaða í september samkvæmt spánni. Það sem helst dregur spána niður er árstíðabundin lækkun á flugfargjöldum til útlanda. Við gerum ráð fyrir að verðbólga lækki áfram næstu mánuði og verði 6,6% í desember.
11. sept. 2023
Í síðustu viku birti Seðlabankinn fundargerð peningastefnunefndar. Samkvæmt henni greiddi einn nefndarmaður atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um að hækka vexti um 0,50 prósentustig á síðasta fundi nefndarinnar og hefði heldur kosið að hækka þá um 0,25 prósentustig. Í þessari viku berast gögn yfir fjölda brottfara um Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og kortaveltu.
4. sept. 2023
Meðfylgjandi er mánaðarlegt yfirlit um sértryggð skuldabréf.
4. sept. 2023
Verðbólga jókst úr 7,6% í 7,7% samkvæmt ágústmælingu Hagstofunnar. Hagvöxtur mældist 4,5% á öðrum ársfjórðungi samkvæmt nýjum þjóðhagsreikningum sem Hagstofan birti í vikunni, en hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi mældist 7,1%. Minni vöxtur einkaneyslu skýrir að stórum hluta minni hagvöxt á öðrum ársfjórðungi.