Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 4,2% verð­bólgu í októ­ber

Við spáum því að verðbólga aukist lítillega í október, úr 4,1% í 4,2%. Mest áhrif til hækkunar á vísitölunni hafa flugfargjöld til útlanda, reiknuð húsaleiga og matarkarfan. Gangi spáin eftir verður október níundi mánuðurinn í röð þar sem verðbólga er á bilinu 3,8% til 4,2%. Við teljum að verðbólga verði áfram á þessu bili næstu mánuði.
Flugvél
16. október 2025

Fátt kom á óvart í verðbólgutölum septembermánaðar og verðbólga jókst úr 3,8% í 4,1%, eins og við höfðum spáð. Hækkun á verðbólgu í september skýrist að mestu af grunnáhrifum, en áhrif gjaldfrjálsra skólamáltíða frá því í september í fyrra duttu út úr mælingu á ársverðbólgunni. Við spáum því að vísitalan hækki um 0,39% á milli mánaða nú í október og að ársverðbólgan hækki úr 4,1% í 4,2%. Mest áhrif til hækkunar á vísitölunni í þetta sinn hafa flugfargjöld til útlanda, reiknuð húsaleiga og matarkarfan.

Líklega dýrara að fljúga til og frá landinu eftir fall Play

Búast má við lítillega hærri flugfargjöldum til og frá Íslandi eftir að Play hætti starfsemi. Þrjú tæknileg atriði í útreikningi flugfargjalda ættu þó að verða til þess að hækkun gjalda hafi ekki jafnmikil áhrif á vísitöluna og ætla mætti í fyrstu.

  • Telja má nær öruggt að Hagstofan taki flugfargjöld með Play alfarið út úr verðkönnunarkörfunni og til að meta verðbreytingar ber Hagstofan flugfargjöld með Play í fortíðinni ekki saman við flugfargjöld með öðrum flugfélögum í október. Þannig koma aðeins fram áhrif á vísitöluna ef flugmiðar með öðrum flugfélögum hækka í verði við það að Play detti út af markaðnum.
  • Almennt gildir að verðmæling á þjónustu kemur inn í vísitölu neysluverðs þegar þjónustan er veitt en ekki þegar hún er keypt. Í hvert skipti sem Hagstofan metur flugfargjöld mælir hún gjöldin tvær vikur fram í tímann, fjórar vikur fram í tímann og átta vikur fram í tímann. Flugfargjöld tvær vikur fram í tímann koma inn í vísitöluna í þeim mánuði sem mælingin er framkvæmd, flugfargjöld fjórar vikur fram í tímann koma inn í vísitöluna mánuði síðar og mælingin átta vikur fram í tímann kemur inn í vísitöluna tveimur mánuðum síðar. Inn í vísitölu neysluverðs í október koma því mælingar á flugfargjöldum í október sem voru gerðar í ágúst, september og október. Þetta þýðir að mat á flugfargjöldum hjá öðrum flugfélögum en Play núna í október hefur að miklu leyti nú þegar farið fram og rekstrarstöðvun Play breytir þeim ekki.
  • Hagstofan er líkleg til að taka út útlaga í verðmælingum. Ætla má að þau flugsæti annarra flugfélaga sem snarhækkuðu í verði um leið og Play féll verði tekin út úr mælingunni.

Við spáum því að flugfargjöld til útlanda hækki um 8,2% í október, aðeins meira en í fyrra. Gangi spáin eftir verða flugfargjöld til útlanda um 2% hærri en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt verðmælingu okkar er bensín síðan óbreytt á milli mánaða.

Matarkarfan hækkar á milli mánaða

Á fyrri helmingi ársins hækkaði matarkarfan nokkuð meira en almennt verðlag hér á landi en í júlí og ágúst tók að draga verulega úr hækkunartaktinum. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði svo nokkuð hressilega í september, um 0,39%. Hækkunin skýrðist af hækkun á heildsöluverði mjólkur og mjólkurafurða vegna ákvörðunar verðlagsnefndar búvara sem tók gildi í byrjun verðkönnunarvikunnar. Vörukarfa verðlagseftirlits ASÍ hefur hækkað um 0,19% á milli mánaða það sem af er októbermánuði, en sú karfa hefur átt það til að hækka minna en vörukarfa Hagstofunnar. Við spáum því að matur og drykkjarvara hækki um 0,3% á milli mánaða í október.

Spáum aðeins minni hækkunum á reiknaðri húsaleigu

Í spánni gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga hækki um 0,5% á milli mánaða næstu mánuði. Erfitt hefur reynst að spá fyrir um sveiflur á milli mánaða en liðurinn sveiflast samt á þrengra bili en áður. Þótt vísitala íbúðaverðs hækki sífellt minna hefur áfram reynst kraftur í leiguverði með tilkomu breyttrar aðferðafræði Hagstofunnar hefur leiguverð mun frekar áhrif á vísitölu neysluverðs heldur en kaupverð. Við gerum ráð fyrir að liðurinn „annað vegna húsnæðis“ hækki um 0,2% í október og að alls verði áhrif húsnæðiskostnaðar 0,11 prósentustig til hækkunar á vísitölunni.

Spá um þróun VNV í ágúst 2025

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,5% 0,3% 0,05%
Áfengi og tóbak 2,5% -0,1% 0,00%
Föt og skór 3,7% 0,7% 0,03%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,5% 0,2% 0,01%
Reiknuð húsaleiga 20,4% 0,5% 0,10%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,7% -0,1% -0,01%
Heilsa 4,1% 0,2% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 3,8% -0,5% -0,02%
- Kaup ökutækja 6,1% -0,1% 0,00%
- Bensín og díselolía 3,5% 0,0% 0,00%
- Flugfargjöld til útlanda 2,3% 8,2% 0,18%
Póstur og sími 1,6% -0,4% -0,01%
Tómstundir og menning 10,8% 0,3% 0,03%
Menntun 0,9% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,5% 0,2% 0,01%
Aðrar vörur og þjónusta 5,2% 0,3% 0,02%
Alls 100,0%   0,39%

Verðbólga verði 4,0% í janúar

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,39% í október, lækki um 0,02% í nóvember, hækki um 0,40% í desember og lækki um 0,34% í janúar. Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 4,2% í október, 4,1% bæði í nóvember og desember og 4,0% í janúar. Spáin er aðeins hærri en síðasta spá, sem við birtum daginn sem Hagstofan birti verðbólgutölur í september. Breytingin skýrist af því að  við erum að hækka spá okkar um flugfargjöld til útlanda lítillega vegna rekstrarstöðvunar Play, verðkönnun okkar á bensín og díselolíu var hærri en við bjuggumst við og verðkönnun ASÍ á mat var hærri en við höfðum gert ráð fyrir.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.