Spáum 4,1% verðbólgu í september

Verðbólga mældist undir væntingum í ágúst, eða 3,8% ̶ við spáðum 4,0%. Verðbólga hefur haldist á þröngu bili á síðustu mánuðum og gangi spá okkar eftir verður september áttundi mánuðurinn í röð með verðbólgu á bilinu 3,8% til 4,2%. Raunar teljum við að verðbólga verði á því bili út þetta ár og mælist 3,9% í árslok. Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki hóflega í september, um 0,07%, en hækkunin myndi duga til þess að ársverðbólga færi úr 3,8% í 4,1%. Það skýrist af óvenju mikilli lækkun vísitölunnar í september í fyrra þegar máltíðir í grunnskólum voru gerðar gjaldfrjálsar. Flugfargjöld lækka eins og venjulega í september og munu hafa mest áhrif til lækkunar á milli mánaða. Á móti gerum við ráð fyrir að útsölulok á fötum og skóm gangi alveg til baka í september og muni hafa mest áhrif til hækkunar á vísitölunni í mánuðinum. Hagstofan birtir septembermælingu vísitölu neysluverðs þann 25. september nk.
Verð á mjólkurafurðum leiðir hækkanir á matvöru
Verð á mat og drykkjarvörum hefur hækkað umfram almennt verðlag síðasta árið, en í júlí og ágúst hægði verulega á hækkun matvöru þegar verð á matarkörfunni hækkaði um 0,01% og 0,06%. Leiðandi vísitala verðlagseftirlits ASÍ hefur hækkað um 0,06% það sem af er september. Síðustu mánuði hefur verðlagseftirlitið mælt minni hækkun á milli mánaða en Hagstofan. Við gerum nú ráð fyrir að matarkarfan hækki um 0,35% í september. Verðlagsnefnd búvara birti nýlega ákvörðun um 1,33% hækkun á heildsöluverði mjólkur og mjólkurvara. Ákvörðunin tók gildi 8. september, í verðsöfnunarviku Hagstofunnar, þannig að hækkunin kemur inn í mælingar fyrir mánuðinn.
Spáum aðeins minni hækkunum á reiknaðri húsaleigu
Spáin gerir ráð fyrir að reiknuð húsaleiga hækki um 0,5% á milli mánaða næstu mánuði. Erfitt hefur reynst að spá fyrir um sveiflur á milli einstaka mánaða en liðurinn sveiflast samt á þrengra bili en áður. Undanfarna mánuði hefur rólegri taktur á fasteignamarkaði skilað minni hækkunum á reiknaðri húsaleigu. Við gerum einnig ráð fyrir að vísitölutenging leigusamninga hafi minni áhrif til hækkunar allra næstu mánuði. Við gerum ráð fyrir að liðurinn „annað vegna húsnæðis“ hækki um 0,4% og að alls verði áhrif húsnæðiskostnaðar 0,14 prósentustig til hækkunar á vísitölunni.
Sumarútsölur ganga alveg til baka
Eftir faraldurinn hafa sumarútsölur verið nokkuð dræmari en fyrir faraldur. Mæling Hagstofunnar fyrir júlí sl. sýndi 4,9% verðlækkun á milli mánaða, slökustu sumarútsölur frá því á Covid-árinu 2020. Við gerðum ráð fyrir að útsölurnar myndu ganga til baka í tveimur jafnstórum skrefum í ágúst og september. Útsölurnar gengu þó töluvert minna til baka í ágúst en við gerðum ráð fyrir, þar sem liðurinn hækkaði aðeins um tæplega 0,7%. Við gerum ráð fyrir að útsölurnar gangi alveg til baka í september og liðurinn hækki því um 4,2%.
Flugfargjöld lækka í september og bensínverð lækkar áfram
Það sem af er ári hefur verð á flugfargjöldum til útlanda verið að meðaltali nokkuð svipað og í fyrra. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu þó skarpt í júní og júlí og voru þá tæplega 5% hærri en í júlí í fyrra. Á móti lækkuðu svo flugfargjöld í ágúst töluvert og þá var aftur orðið ódýrara að fljúga en á sama tíma í fyrra. Flugfargjöld lækka alla jafna bæði í ágúst og september og við spáum því að flugfargjöld til útlanda lækki um 14,2% á milli mánaða í september sem þýðir að flugmiðar verði um 2% dýrari en í fyrra.
Samkvæmt verðmælingu okkar lækkar bensín um 0,4% á milli mánaða í september, aðeins minna en við gerðum ráð fyrir í síðustu spá.
Spá um þróun VNV í ágúst 2025
Undirliður | Vægi í VNV | Breyting (spá) | Áhrif (spá) |
Matur og drykkjarvara | 15,5% | 0,4% | 0,05% |
Áfengi og tóbak | 2,5% | 0,1% | 0,00% |
Föt og skór | 3,7% | 4,2% | 0,15% |
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu | 9,5% | 0,4% | 0,04% |
Reiknuð húsaleiga | 20,3% | 0,5% | 0,10% |
Húsgögn og heimilisbúnaður | 4,7% | 0,7% | 0,03% |
Heilsa | 4,1% | 0,1% | 0,00% |
Ferðir og flutningar (annað) | 3,9% | 0,1% | 0,00% |
- Kaup ökutækja | 6,1% | 0,0% | 0,00% |
- Bensín og díselolía | 3,5% | -0,4% | -0,01% |
- Flugfargjöld til útlanda | 2,2% | -14,1% | -0,36% |
Póstur og sími | 1,6% | -0,1% | 0,00% |
Tómstundir og menning | 10,8% | 0,6% | 0,06% |
Menntun | 0,9% | 0,9% | 0,01% |
Hótel og veitingastaðir | 5,4% | -0,5% | -0,03% |
Aðrar vörur og þjónusta | 5,2% | 0,3% | 0,01% |
Alls | 100,0% | 0,07% |
Verðbólga verði 3,9% í árslok
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,07% í september og um 0,30% í október, lækki síðan um 0,09% í nóvember og hækki svo um 0,37% í desember. Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 4,1% í september og október og 3,9% í bæði nóvember og desember. Spáin er aðeins hærri en síðasta spá, sem við birtum daginn sem Hagstofan birti verðbólgutölur í ágúst. Breytingin skýrist helst af nýlegri ákvörðun verðlagsnefndar búvara, sem tók gildi nú í verðsöfnunarvikunni.
Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.
Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.









