3. nóvember 2022
Eitt útboð sértryggðra skuldabréfa var haldið í október.
Þann 11. október hélt Landsbankinn útboð þar sem bankinn seldi bréf í flokknum LBANK CB 25 að fjárhæð 500 m.kr. á kröfunni 6,47% og LBANK CB 27 að fjárhæð 520 m.kr. á kröfunni 6,46%.
Hvorki Arion banki né Íslandsbanki héldu útboð í október.
Í mánuðinum undirritaði Íslandsbanki samninga um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum.
Lesa Hagsjána í heild
Þú gætir einnig haft áhuga á
30. okt. 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,28% á milli mánaða í október og verðbólga lækkar því úr 5,4% í 5,1%. Verð á mat og drykkjarvörum og flugfargjöld til útlanda höfðu mest áhrif til hækkunar. Reiknuð leiga hækkaði mjög lítið á milli mánaða. Kílómetragjald á bensín- og olíubíla verður með í verðmælingum Hagstofunnar.
28. okt. 2024
Í vikunni birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir októbermánuð. Þessar verðbólgutölur verða þær síðustu fyrir næstu vaxtaákvörðun sem verður tilkynnt þann 20. nóvember nk. Í síðustu viku birti Hagstofan veltu skv. VSK-skýrslum, niðurstöður úr vinnumarkaðsrannsókn og launavísitölu. Þá er uppgjörstímabilið í kauphöllinni áfram í fullum gangi.
23. okt. 2024
Velta í hagkerfinu jókst um 2,1% á milli ára í júlí og ágúst að raunvirði, samkvæmt virðisaukaskattskýrslum. Svo mikið hefur veltan ekki aukist frá því á VSK-tímabilinu janúar-febrúar árið 2023, þegar hagkerfið var enn að rétta úr kútnum eftir covid-samdráttinn.
22. okt. 2024
Hafrannsóknarstofnun leggur til að ekki verði gefinn út loðnukvóti fyrir veiðitímabilið 2024/2025. Ráðgjöfin verður uppfærð í janúar, þegar nýjar mælingar fara fram og því er ekki útséð um loðnuveiðar á næsta ári. Fyndist loðna í nægilegu magni hefði það töluverð áhrif á hagvöxt á næsta ári. Loðna hefur verið veidd hér á landi frá árinu 1962 og aðeins þrisvar orðið algjör loðnubrestur, árin 2019, 2020 og nú síðast í ár.
21. okt. 2024
Í síðustu viku birtum við hagspá til ársins 2027. Vísitala íbúðaverðs og vísitala leiguverðs lækkuðu á milli mánaða í september og greiðslukortavelta heimilanna dróst saman á milli ára innanlands en jókst erlendis. Seðlabankinn birti fundargerð peningastefnunefndar og voru allir nefndarmenn sammála um að lækka vexti. Nokkur fyrirtæki birta uppgjör í þessari viku.
15. okt. 2024
Hagspá Landsbankans til ársins 2027 var kynnt á morgunfundi í Silfurbergi Hörpu þriðjudaginn 15. október 2024 en auk þess var fjallað um stöðu og horfur á alþjóðlegum mörkuðum og í áhugaverðum pallborðsumræðum ræddu forstjórar fjögurra útflutningsfyrirtækja um tækifæri og áskoranir í útflutningi.
15. okt. 2024
Greiningardeild Landsbankans spáir því að hagkerfið standi nánast í stað á milli ára í ár og að landsframleiðsla dragist saman um 0,1%. Bakslag í útflutningsgreinum setti svip sinn á fyrri hluta árs, loðnubrestur og hægari vöxtur ferðaþjónustu ollu samdrætti á sama tíma og háir vextir hafa kælt eftirspurnina sem engu að síður mælist nokkuð kröftug.
14. okt. 2024
Í fyrramálið kynnum við nýja hagspá til ársins 2027 á morgunfundi í Hörpu. HMS birtir í vikunni vísitölu íbúðaverðs, vísitölu leiguverðs og mánaðarskýrslu um húsnæðismarkaðinn. Á miðvikudag birtist svo fundargerð peningastefnunefndar. Í síðustu viku bar hæst að erlendum ferðamönnum fjölgaði aðeins á milli ára í september á sama tíma og atvinnuleysi jókst lítillega.
10. okt. 2024
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,27% á milli mánaða í október og að verðbólga lækki úr 5,4% niður í 5,1%. Við eigum von á áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 4,2% í janúar á næsta ári.
7. okt. 2024
Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði vexti í síðustu viku, í fyrsta sinn í fjögur ár. Stýrivextir eru nú 9% eftir að hafa staðið í 9,25% í meira en ár. Verðbólga á evrusvæðinu er enn á niðurleið og mældist 1,8% í september, undir 2% verðbólgumarkmiði. Verðbólgutölur í Bandaríkjunum verða birtar í þessari viku.