Laun á op­in­bera mark­aðn­um hafa hækkað tölu­vert meira en á þeim al­menna

Í október höfðu laun á opinbera markaðnum hækkað um 9,3% á einu ári meðan þau hækkuðu um 6,3% á almenna markaðnum. Það bil sem myndaðist á milli launaþróunar á almenna markaðnum og þeim opinbera á árinu 2019 hefur nú verið brúað að fullu.
28. janúar 2021 - Hagfræðideild

Í október höfðu laun á opinbera markaðnum hækkað um 9,3% á einu ári meðan þau hækkuðu um 6,3% á almenna markaðnum. Laun hjá ríkinu hækkuðu um 8,1% og laun hjá sveitarfélögunum um 10,6%.

Á árinu 2019 myndaðist óvenju mikið bil á milli launaþróunar á almenna markaðnum og þeim opinbera, aðallega vegna þess að samningar á opinbera markaðnum voru gerðir seint. Þetta bil hefur nú verið brúað að fullu og höfðu launin í október hækkað meira á opinbera markaðnum en á þeim almenna sé miðað við upphaf ársins 2015. Laun á almenna markaðnum höfðu hækkað um 50,1% á þessum tíma, en um 50,9% á þeim opinbera. Annars er reyndin sú að laun á þessum tveimur mörkuðum breytast með mjög svipuðum hætti yfir lengri tímabil.

Sé litið á þróun launavísitölunnar eftir starfsstéttum kemur í ljós að laun verkafólks hafa hækkað áberandi mest frá október 2019 til október 2020, um 8,7%. Segja má að sú niðurstaða sé í anda þeirra kjarasamninga sem gerðir hafa verið á síðustu tveimur árum þar sem launahækkanir eru í formi krónutöluhækkana þannig að hækkunin verður hlutfallslega mest þar sem launin eru lægst.

Hvað atvinnugreinar varðar var minnsta launahækkunin í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 4,6%, sem bendir til þess að spenna í þeirri grein hafi minnkað á árinu.

Tölurnar um sundurliðun launavísitölunnar eru jafnan tveimur mánuðum seinna á ferðinni en heildarvísitalan. Launavísitalan hækkaði um 0,7-0,8% í september og október, en hefur hækkað minna síðustu tvo mánuði. Í janúar hækkuðu laun á öllum vinnumarkaðnum um 24 þúsund krónur á mánuði fyrir lægstu laun og 15.750 krónur fyrir hærri laun. Launavísitalan mun taka stökk upp á við vegna þeirra breytinga.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Laun á opinbera markaðnum hafa hækkað töluvert meira en á þeim almenna

Þú gætir einnig haft áhuga á
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Paprika
24. júní 2024
Vikubyrjun 24. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% í maí og vísitala leiguverðs um 3,2% samkvæmt gögnum sem bárust í síðustu viku. Englandsbanki hélt vöxtum óbreyttum á meðan svissneski seðlabankinn lækkaði vexti um 0,25 prósentustig. Eftirtektarverðasta innlenda hagtalan sem birtist í þessari viku er eflaust vísitala neysluverðs sem Hagstofan birtir á fimmtudaginn.
Fjölbýlishús
19. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs á hraðri uppleið
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Nafnverð íbúða er 8,4% hærra en á sama tíma í fyrra og raunverð íbúða er 4% hærra. Undirritaðir kaupsamningar um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu voru 150% fleiri í maí á þessu ári en í maí í fyrra.  
Krani með stiga
18. júní 2024
Vikubyrjun 18. júní 2024
Í síðustu viku fengum við tölur um atvinnuleysi, fjölda ferðamanna og greiðslukortaveltu hér á landi í maí. Seðlabanki Bandaríkjanna hélt vöxtum óbreyttum. Síðar í dag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs.
Strönd
14. júní 2024
Óvæntur kraftur í kortaveltu í maí
Kortavelta íslenskra heimila jókst á milli ára í maí, bæði innanlands og erlendis. Síðustu mánuði hefur kortavelta nær alltaf dregist saman á milli ára en eykst nú meira en hún hefur gert frá því í janúar 2023. Þessi aukna kortavelta vekur athygli í þrálátu hávaxtastigi og samdrætti í hagkerfinu á fyrsta ársfjórðungi.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur