26. júní 2019
Samantekt
Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,38% milli mánaða og mælist 12 mánaða verðbólga nú 3,3% samanborið við 3,6% í maí. VNV án húsnæðis hækkaði um 0,37% milli mánaða og mælist 3,0% verðbólga á þann mælikvarða samanborið við 3,1% í maí. Niðurstaðan var í samræmi við væntingar, en opinberar spár lágu á bilinu +0,3% til +0,4%. Við höfðum spáð +0,4%.
Lesa Hagsjána í heild
Þú gætir einnig haft áhuga á

19. feb. 2025
Um 122 þúsund ferðamenn komu til landsins í janúar, samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Ferðamenn voru 5,8% færri en á sama tíma í fyrra sem er á skjön við þróun síðustu mánaða, en allt frá því í júlí sl. hefur ferðamönnum fjölgað á milli ára. Þótt ferðamönnum hafi fækkað í janúar hélt kortavelta þeirra áfram að aukast.

18. feb. 2025
Enn eru merki um að landsmenn hafi svigrúm til neyslu þrátt fyrir langvarandi hávaxtastig. Kortavelta eykst með hverjum mánuðinum, utanlandsferðir í janúar hafa aldrei verið jafnmargar og í ár og samt virðast yfirdráttarlán ekki hafa færst í aukana. Á sama tíma hefur slaknað þó nokkuð á spennu á vinnumarkaði, eftirspurn eftir vinnuafli hefur dvínað og atvinnuleysi tók stökk í janúar þegar það fór yfir 4%.

17. feb. 2025
Erlendum ferðamönnum í janúar fækkaði um 5,8% á milli ára samkvæmt talningu Ferðamálastofu sem birt var í síðustu viku. Einnig fóru fram verðmælingar Hagstofunnar vegna vísitölu neysluverðs í febrúar og spáum við því að verðbólga hjaðni niður í 4,3%. Í þessari viku fáum við kortaveltutölur frá Seðlabankanum, vísitölur íbúða- og leiguverðs frá HMS auk þess sem fundargerð peningastefnunefndar verður birt.

13. feb. 2025
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,98% á milli mánaða í febrúar og að verðbólga hjaðni úr 4,6% í 4,3%. Við búumst við áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 3,7% í maí.

10. feb. 2025
Peningastefnunefnd lækkaði vexti um 0,5 prósentustig í síðustu viku. Í þessari viku koma tölur um skráð atvinnuleysi og fjölda brottfara frá Leifsstöð auk þess sem Hagstofan framkvæmir verðkannanir vegna vísitölu neysluverðs. Uppgjörstímabilið í Kauphöllinni er síðan enn í fullum gangi.

3. feb. 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

3. feb. 2025
Halli af vöruviðskiptum jókst í fyrra, en ekki með sama hraða og síðustu tvö ár þar á undan. Að það hægi á aukningunni gæti verið merki um að jafnvægi sé að aukast í hagkerfinu, en á móti kemur að innflutningsverðmæti hafa aldrei verið meiri sem gæti verið merki um aukin umsvif.

3. feb. 2025
Verðbólga lækkaði á milli mánaða í janúar, úr 4,8% í 4,6%. Við eigum von á að Seðlabankinn lækki vexti um 0,5 prósentustig á miðvikudaginn. Fyrstu uppgjör fyrir árið 2024 komu í síðustu viku, en uppgjörstímabilið heldur áfram í þessari viku.

30. jan. 2025
Við spáum 0,5 prósentustiga vaxtalækkun í næstu viku. Verðbólga mældist 4,6% í janúar. Hún hjaðnaði í takt við spá okkar og hefur þokast niður um 0,5 prósentustig frá síðustu vaxtaákvörðun. Hægt hefur á íbúðaverðshækkunum og verðbólguvæntingar virðast stöðugri en áður. Laun hafa hækkað mun minna en áður og vinnumarkaður hefur leitað í eðlilegra horf.

30. jan. 2025
Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,27% á milli mánaða í janúar, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar því úr 4,8% í 4,6%. Við eigum enn von á að verðbólga hjaðni næstu mánuði og verði 3,9% í apríl.