Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Hag­sjá: Þró­un fast­eigna­við­skipta mjög mis­mun­andi í stærri bæj­um

Mikill munur var á þróun fasteignaviðskipta í stærstu bæjum landsins á milli fyrri árshelminga 2013 og 2018. Fjölgun viðskipta hefur verið langmest í Árborg, eða nær þreföldun. Þar á eftir koma Mosfellsbær og Garðabær og síðan Reykjanesbær og Akranes þar á eftir. Seltjarnarnes er lægst með um 12% aukningu, enda er þar um nær fullbyggt sveitarfélag að ræða. Stóru bæirnir þrír á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavík, Kópavogur og Hafnarfjörður eru á svipuðum stað með tiltölulega litla fjölgun viðskipta miðað við hina bæina.
12. júlí 2018

Samantekt

Viðskipti með fasteignir á höfuðborgarsvæðinu voru eilítið færri í júní en var í maí. Sé litið á fjölda viðskipta fyrri helming ársins í ár voru þau tæplega 2% fleiri en var á sama tíma í fyrra. Í lengra samhengi má sjá að fjölda viðskipta á höfuðborgarsvæðinu fækkaði í fyrsta skipti í langan tíma á milli ára í fyrra. Viðskiptin á öllu árinu 2017 voru álíka mörg og á árinu 2015. Fækkunin hélt áfram fyrstu mánuði ársins 2018 en síðustu mánuðir hafa breytt þeirri mynd nokkuð.

Sé litið á þróun fasteignaviðskipta í stærri bæjum frá árinu 2013 má sjá að fjöldi viðskipta hefur alls staðar aukist, en þó með mjög mismunandi hætti. Hér er þróunin skoðuð með vísitöluformi til þess að einfalda samanburð. Viðskiptin á 2. ársfjórðungi í ár eru alls staðar a.m.k. tvöfalt fleiri en var í upphafi ársins 2013. Mesta aukningin hefur verið í Árborg þar sem fjöldi viðskipta hefur meira en fjórfaldast og á Akranesi hafa þau næstum fjórfaldast. Í þessu sambandi ber að hafa í huga að þarna er einungis um samanburð að ræða milli tveggja tímapunkta og þróunin á öllu tímabilinu hefur verið mismunandi eins og má sjá á mynd.

Af bæjunum utan höfuðborgasvæðisins var breytingin í Árborg mest og svo var hún einna minnst á Akureyri. Í samanburði við þessa tvo bæi sýnir  þróunin á höfuðborgarsvæðinu mun minni breytingu milli þessara tímabila. Þegar fjöldi viðskipta hefur rúmlega fjórfaldast í Árborg og 2,5 faldast á Akureyri er „einungis“ um 50% aukningu að ræða á höfuðborgarsvæðinu. Enn ber að ítreka að hér er einungis um samanburð að ræða milli tveggja tímapunkta. Upphaf tímabilsins er valið hér í ljósi þess að Þjóðskrá hefur einungis birt talnaefni um suma bæina frá þeim tíma.

Af sveitarfélögunum sex á höfuðborgarsvæðinu hefur fjöldi viðskipta aukist mest í Mosfellsbæ og Garðabæ á þessu tímabili og minnst í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Reykjavík er langstærsta sveitarfélagið á svæðinu og því afmarkast staða þess mikið af því hvað gerist í Reykjavík. Hver viðbótarsala hefur þannig mun minni áhrif í Reykjavík en t.d. í Mosfellsbæ. Aukningin í Mosfellsbæ og Garðabæ hefur orðið mikil á þessu ári og má segja að þessir bæir skeri sig úr vegna nýlegrar aukningar. Aukningin á tímabilinu er 3,5-föld í Mosfellsbæ og tæplega þreföld í Garðabæ. Í hinum bæjunum er aukningin í kringum 50%.

Sé reynt að draga úr áhrifum sveiflna í minni bæjum má líta á breytinguna milli fyrri árshelmings 2013 og fyrri árshelmings 2018. Niðurstaðan sýnir að munurinn á milli þessara stærstu bæja landsins er mikill. Fjölgun viðskipta hefur verið langmest í Árborg, eða nær þreföldun. Þar á eftir koma Mosfellsbær og Garðabær og síðan Reykjanesbær og Akranes þar á eftir. Seltjarnarnes er lægst með um 12% aukningu, enda er þar um nær fullbyggt sveitarfélag að ræða. Stóru bæirnir þrír á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavík, Kópavogur og Hafnarfjörður eru á svipuðum stað með tiltölulega litla fjölgun viðskipta miðað við hina bæina.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Þróun fasteignaviðskipta mjög mismunandi í stærri bæjum (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
Flutningaskip við Vestmannaeyjar
7. maí 2025
Stór hluti íslensks vöruútflutnings til Bandaríkjanna undanþeginn tollum
Ætla má að um þriðjungur íslenskra vara sem fluttar eru frá Íslandi til Bandaríkjanna sé undanþeginn þeim tollum sem nú eru í gildi, til dæmis lyf og flestar lækningavörur. Óvissa um framvindu mála í alþjóðaviðskiptum getur samt ein og sér leitt til þess að fyrirtæki halda að sér höndum og ráðast síður í nýjar fjárfestingar. Á síðasta ári fór um 12% af vöruútflutningi Íslands til Bandaríkjanna.
Dollarar og Evrur
5. maí 2025
Vikubyrjun 5. maí 2025
Í apríl jókst verðbólga úr 3,8% í 4,2%, nokkuð umfram okkar spá um 4,0% verðbólgu. Velta samkvæmt VSK-skýrslum jókst á milli ára í flestum atvinnugreinum á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Á fyrsta ársfjórðungi mældist hagvöxtur á evrusvæðinu en samdráttur í Bandaríkjunum. Í þessari viku er vaxtaákvörðun í Bandaríkjunum og einnig í Bretlandi.
2. maí 2025
Mánaðamót 2. maí 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Fasteignir
2. maí 2025
Leiguverð á hraðari uppleið en kaupverð undanfarið
Ör fólksfjölgun og hækkun húsnæðisverðs hefur aukið eftirspurn eftir leiguíbúðum. Stærstur hluti Airbnb-íbúða er nú leigður út af leigusölum með fleiri en tvær íbúðir í útleigu. Frumvarp um hert skilyrði um skammtímaleigu hefur verið sett í samráðsgátt. Hömlur á skammtímaleigu gætu aukið framboð leiguíbúða og jafnvel söluframboð. 
29. apríl 2025
Verðbólga yfir væntingum og mælist 4,2%
Verðbólga mældist 4,2% í apríl og hækkaði úr 3,8% frá því í mars. Verðbólga var umfram okkar spá, einkum vegna þess að reiknuð húsaleiga og verð á matvörum hækkaði meira en við bjuggumst við.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
28. apríl 2025
Versnandi efnahagshorfur í heiminum að mati AGS
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) birti nýja efnahagsspá um páskana. Hagvaxtarhorfur í heiminum hafa verið færðar niður og AGS telur að spenna í alþjóðaviðskiptum og veruleg óvissa komi til með að draga úr umsvifum í heimshagkerfinu.
USD
28. apríl 2025
Vikubyrjun 28. apríl 2025
Hagstofan birtir verðbólgutölur fyrir aprílmánuð á morgun og við búumst við að verðbólga hækki tímabundið upp í 4%. Í vikunni fáum við fyrstu uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung og fyrsta mat á hagvexti í Bandaríkjunum og á evrusvæðinu á fyrsta ársfjórðungi.
Íbúðir
23. apríl 2025
Horfur á hófstilltum hækkunum á íbúðaverði
Við teljum horfur á tiltölulega hófstilltum verðhækkunum á íbúðamarkaði næstu árin, 5,9% hækkun á þessu ári, 4,8% hækkun á næsta ári og 6,4% hækkun árið 2027. Til samanburðar hefur íbúðaverð hækkað um 9% á ári að jafnaði frá aldamótum, og að meðaltali um 13% á ári frá árinu 2021. 
Greiðsla
22. apríl 2025
Vikubyrjun 22. apríl 2025
Leiguverð hefur hækkað um 11,3% á síðustu tólf mánuðum, þó nokkuð meira en íbúðaverð sem hefur hækkað um 8% á sama tímabili. Hækkanir á íbúða- og leigumarkaði eru þó nokkuð umfram almennar verðhækkanir í landinu, en verðbólga mældist 3,8% í mars. Áfram er kraftur í innlendri neyslu, greiðslukortavelta heimila hefur aukist statt og stöðugt síðustu mánuði og var 1,8% meiri í mars síðastliðnum en í mars í fyrra.  
Gönguleið
16. apríl 2025
Óljósar horfur í ferðaþjónustu vegna sviptinga í alþjóðasamskiptum
Sviptingar í alþjóðaviðskiptum gætu haft margvísleg áhrif á ferðaþjónustu hér á landi. Tollar gætu rýrt kaupmátt Bandaríkjamanna og haft áhrif á komur þeirra hingað til lands. Auk þess eru merki um að áhugi Evrópubúa á að heimsækja Bandaríkin fari dvínandi, sem gæti haft áhrif hingað heim, enda hafa Evrópubúar gjarnan komið við á Íslandi á leið sinni vestur um haf. Í nýrri hagspá gerum við ráð fyrir samdrætti í ferðaþjónustu á þessu ári, en að hún taki aftur við sér á næstu tveimur árum.