28. nóvember 2018
Samantekt
Krónan hefur haldið áfram að veikjast það sem af er nóvember. Í lok dags 27. nóvember stóð evran í 141,5 og hafði hækkað um 2,8% frá upphafi mánaðar. Bandaríkjadalur stóð í 125,3 og hafði hækkað um 3,0% í nóvember. Seðlabankinn greip eitt sinn inn í á markaði í nóvember, en 14. nóvember seldi hann 6 m.evra. Þetta er þriðja inngrip bankans síðan krónan hóf að veikjast um mánaðamótin ágúst/september.
Lesa Hagsjána í heild
Þú gætir einnig haft áhuga á
4. nóv. 2024
Íbúðafjárfesting hefur færst í aukana, starfsfólki fjölgar sífellt í byggingarstarfsemi, velta í greininni hefur aukist síðustu árin og innflutningur á byggingarefni er í hæstu hæðum. Íbúðauppbygging virðist nokkuð kröftug, enda er þörfin brýn - kjarnafjölskyldum hefur fjölgað mun hraðar en íbúðum síðustu ár.
4. nóv. 2024
Verðbólga lækkaði úr 5,4% niður í 5,1% í október, í samræmi við væntingar. Samhliða birtingu VNV tilkynnti Hagstofan að fyrirhugað kílómetragjald yrði tekið inn í vísitöluna. Í þessari viku birtir Vinnumálastofnum skráð atvinnuleysi í október, kosið verður um nýjan forseta í Bandaríkjunum, Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki tilkynna um vaxtaákvarðanir og uppgjörstímabilið í Kauphöllinni er áfram í fullum gangi.
1. nóv. 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
30. okt. 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,28% á milli mánaða í október og verðbólga lækkar því úr 5,4% í 5,1%. Verð á mat og drykkjarvörum og flugfargjöld til útlanda höfðu mest áhrif til hækkunar. Reiknuð leiga hækkaði mjög lítið á milli mánaða. Kílómetragjald á bensín- og olíubíla verður með í verðmælingum Hagstofunnar.
28. okt. 2024
Í vikunni birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir októbermánuð. Þessar verðbólgutölur verða þær síðustu fyrir næstu vaxtaákvörðun sem verður tilkynnt þann 20. nóvember nk. Í síðustu viku birti Hagstofan veltu skv. VSK-skýrslum, niðurstöður úr vinnumarkaðsrannsókn og launavísitölu. Þá er uppgjörstímabilið í kauphöllinni áfram í fullum gangi.
23. okt. 2024
Velta í hagkerfinu jókst um 2,1% á milli ára í júlí og ágúst að raunvirði, samkvæmt virðisaukaskattskýrslum. Svo mikið hefur veltan ekki aukist frá því á VSK-tímabilinu janúar-febrúar árið 2023, þegar hagkerfið var enn að rétta úr kútnum eftir covid-samdráttinn.
22. okt. 2024
Hafrannsóknarstofnun leggur til að ekki verði gefinn út loðnukvóti fyrir veiðitímabilið 2024/2025. Ráðgjöfin verður uppfærð í janúar, þegar nýjar mælingar fara fram og því er ekki útséð um loðnuveiðar á næsta ári. Fyndist loðna í nægilegu magni hefði það töluverð áhrif á hagvöxt á næsta ári. Loðna hefur verið veidd hér á landi frá árinu 1962 og aðeins þrisvar orðið algjör loðnubrestur, árin 2019, 2020 og nú síðast í ár.
21. okt. 2024
Í síðustu viku birtum við hagspá til ársins 2027. Vísitala íbúðaverðs og vísitala leiguverðs lækkuðu á milli mánaða í september og greiðslukortavelta heimilanna dróst saman á milli ára innanlands en jókst erlendis. Seðlabankinn birti fundargerð peningastefnunefndar og voru allir nefndarmenn sammála um að lækka vexti. Nokkur fyrirtæki birta uppgjör í þessari viku.
15. okt. 2024
Hagspá Landsbankans til ársins 2027 var kynnt á morgunfundi í Silfurbergi Hörpu þriðjudaginn 15. október 2024 en auk þess var fjallað um stöðu og horfur á alþjóðlegum mörkuðum og í áhugaverðum pallborðsumræðum ræddu forstjórar fjögurra útflutningsfyrirtækja um tækifæri og áskoranir í útflutningi.
15. okt. 2024
Greiningardeild Landsbankans spáir því að hagkerfið standi nánast í stað á milli ára í ár og að landsframleiðsla dragist saman um 0,1%. Bakslag í útflutningsgreinum setti svip sinn á fyrri hluta árs, loðnubrestur og hægari vöxtur ferðaþjónustu ollu samdrætti á sama tíma og háir vextir hafa kælt eftirspurnina sem engu að síður mælist nokkuð kröftug.