Hag­sjá: Launa­hækk­an­ir veru­lega meiri en í við­skipta­lönd­um

Íslenska launavísitalan, mæld í evrum, hækkaði um 60% frá 2012 til 2016. Á sama tíma hækkuðu laun í helstu viðskiptalöndum okkar að hámarki um 6-8%, voru nær óbreytt í Svíþjóð og lækkuðu um rúm 10% í Noregi.
4. september 2017

Samantekt

Launavísitalan var nær óbreytt milli júní og júlí og hefur alls hækkað um 7,2% frá júlí 2016. Það hefur hægt nær sífellt á hækkunartaktinum frá aprílmánuði í fyrra, þegar árshækkunin náði hámarki í 13,4%. Vegna lítillar verðbólgu heldur kaupmáttur launa áfram að aukast og var meiri en nokkru sinni nú í júlí, eða 5,3% meiri en fyrir ári síðan.

Þó dregið hafi úr launahækkunartakti hafa launahækkanir hér á landi verið mun meiri en í þeim löndum sem við eigum í mestum viðskiptum við. Þegar styrkingu krónunnar á síðustu misserum er bætt við gefur augaleið að samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja gagnvart erlendum hefur rýrnað verulega.

Íslenska launavísitalan, mæld í evrum, hækkaði um 60% frá 2012 til 2016. Á sama tíma hækkuðu laun í helstu viðskiptalöndum okkar að hámarki um 6-8%, voru nær óbreytt í Svíþjóð og lækkuðu um rúm 10% í Noregi. Raungengi krónu miðað við laun hefur alls hækkað um 66,5% yfir tímabilið 2012 fram á fyrsta ársfjórðung þessa árs. Fyrirtæki sem eru í útflutningi, hvort sem það er útflutningur á vöru eða þjónustu, búa því augljóslega við skerta samkeppnisstöðu og mega vart við miklum launahækkunum á næstu misserum ef samkeppnisstaða þeirra á ekki að versna enn meira.

Laun á almenna markaðnum hækkuðu um 7,4% á milli maí 2016 og maí 2017. Á sama tíma hækkuðu laun á opinbera markaðnum alls um 8,4%, 8,4% hjá starfsmönnum ríkisins og 8,3% hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Almenn samningsbundin hækkun um 4,5% varð á almenna markaðnum 1. maí 2017. Sú næsta kemur ekki fyrr en í maí á næsta ári, verði samningum ekki sagt upp.

Launabreytingar í atvinnugreinum milli maí 2016 og maí 2017 voru á bilinu 4,7-8,6%. Hækkunin var mest í flutningum og geymslu, 8,6%, og var einnig yfir 8% í byggingarstarfsemi og verslun. Laun í veitustarfsemi hækkuðu minnst, eða um 4,7%, sem er langtum minna en hækkun launavísitölunnar á sama tímabili. Í febrúar var gildistími núgildandi kjarasamninga framlengdur um eitt ár. Launahækkun upp á 4,5% kom til framkvæmda á almenna markaðnum þann 1. maí og gildi samningurinn áfram munu laun almennt hækka um 3% þann 1. maí 2018.

Töluverður fjöldi samninga er nú laus, aðallega á opinbera markaðnum, og eru viðræður í gangi, t.d. á vettvangi félaga Bandalags háskólamanna og Kennarasambandsins. Niðurstaða þeirra viðræðna mun eflaust ráða miklu um hvort kjarasamningar verði framlengdir í febrúar 2018.

Eins og oft gerist í viðræðum um kjarasamninga hér á landi virðist ekki horft mikið til samkeppnisstöðu og samanburðar við viðskiptalönd okkar. Kröfur nú byggja mestmegnis á samanburði við aðra hópa og þar hafa ákvarðanir kjararáðs um verulegar launahækkanir til alþingismanna og stjórnenda innan ríkisins ekki gert stöðuna einfaldari.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Launahækkanir verulega meiri en í viðskiptalöndum

Þú gætir einnig haft áhuga á
Evrópsk verslunargata
22. júlí 2024
Vikubyrjun 22. júlí 2024
Í síðustu viku birtust gögn sem gáfu til kynna talsverðan kraft á íbúðamarkaði um þessar mundir. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% milli mánaða í júní og vísitala leiguverðs um 2,5%.
Hús í Reykjavík
18. júlí 2024
Spenna á íbúðamarkaði
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í júní. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs jókst úr 8,4% í 9,1% en svo mikil hefur árshækkunin ekki verið síðan í febrúar 2023. Leiguverð hækkaði einnig á milli mánaða í júní, alls um 2,5%. Mikil velta var á íbúðamarkaði í júní og ljóst að íbúðamarkaður hefur tekið verulega við sér.
Gönguleið
15. júlí 2024
Vikubyrjun 15. júlí 2024
Erlendir ferðamenn voru 9% færri í júní á þessu ári en í júní í fyrra. Atvinnuleysi var 3,1% í júní og er áfram lítillega meira en á sama tíma í fyrra.
Fataverslun
10. júlí 2024
Spáum að verðbólga aukist lítillega og verði 5,9% í júlí 
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október. 
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur