Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Hag­sjá: Ferða­menn auka neyslu sína í eig­in gjald­miðli

Styrking krónunnar á síðustu árum þýðir að tekjur af meðalferðamanninum hefur verið að dragast í krónum talið. Árið í fyrra var hins vegar fimmta árið í röð þar sem neysla hvers ferðamanns eykst í erlendri mynt.
30. janúar 2018

Samantekt

Greiðslukortavelta erlendra ferðamanna nam 259 ma.kr. á síðasta ári og jókst um tæpa 28 ma.kr. milli ára, eða um 12%. Til samanburðar nam fjölgun ferðamanna hingað til lands um Leifsstöð 24%. Hver ferðamaður hefur því að meðaltali dregið úr neyslu sinni um 9,8% mælt í krónum. Þar sem krónan styrktist milli ára er ekkert óeðlilegt að ferðamenn hafi dregið úr neyslu sinni í krónum ef gert er ráð fyrir að neysla ferðamanna mæld í þeirra eigin gjaldmiðli taki litlum breytingum yfir tíma. Sé neyslan sett á fast gengi sést að neyslan jókst um 25,4% sem er eilítið meira en sem nemur fjölgun ferðamanna. Á þennan mælikvarða jókst neysla meðalferðamannsins því um 0,9% milli ára, mælt í erlendri mynt.

Mesti samdrátturinn í úttektum á reiðufé

Af stærstu kostnaðarliðunum var mesti samdrátturinn í úttektum á reiðufé, sem nam 23,3%. Næstmesti samdrátturinn lá í opinberum gjöldum en þau drógust saman um 16,5% milli ára. Þriðji mesti samdrátturinn var í menningar-, afþreyingar- og tómstundastarfsemi (3,5%) og fjórði mesti samdrátturinn var í verslun (3,1%). Neysla á öðrum liðum jókst milli ára. Mesta aukningin var í bensíni, viðgerðum og viðhaldi bifreiða (8,4%). Næstmesta aukningin var í gistiþjónustu, eða 7,4%. Aukning annarra liða var minni.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Ferðamenn auka neyslu sína í eigin gjaldmiðli (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
2. mars 2026
Mánaðamót 2. mars 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
2. mars 2026
Vikubyrjun 2. mars 2026
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar var hagvöxtur á síðasta ári 1,3%, en 0,6% samdráttur mældist á fjórða ársfjórðungi. Verðbólga hélst óbreytt á milli mánaða í febrúar og mælist 5,2%. Velta skv. VSK-skýrslum dróst saman á tímabilinu nóv-des í öllum þremur stóru útflutningsgeirunum.
27. feb. 2026
Hagvöxtur í fyrra drifinn áfram af einkaneyslu
Landsframleiðsla jókst um 1,3% á milli ára að raunvirði í fyrra, en dróst saman um 0,6% á fjórða ársfjórðungi. Einkaneysla var mjög sterk bæði á árinu í heild og á fjórða ársfjórðungi. Fjármunamyndun og innflutningur litaðist af uppbyggingu á gagnaverum, sem var þó nokkur á fyrri hluta árs, en minnkaði á þriðja ársfjórðungi og var lítil á þeim fjórða.
26. feb. 2026
Undirliggjandi þrýstingur eykst þrátt fyrir óbreytta verðbólgu
Verðbólga stóð í stað í febrúar og mælist áfram 5,2%. Vísitala neysluverðs hækkaði töluvert meira í febrúar en við spáðum. Mesta frávik frá okkar spá er vegna flugfargjalda til útlanda sem hækkuðu töluvert, en flestir liðir hækkuðu aðeins meira en við spáðum. Reiknuð húsaleiga hækkaði þó minna og Hagstofan leiðrétti verðmælingar á eldsneyti í janúar sem kemur til lækkunar nú, en hefði átt að þýða minni verðbólga í janúar.
Fasteignir
24. feb. 2026
Íbúðaverð tók stökk í janúar en raunverð íbúða lækkar áfram
Hækkun vísitölu íbúðaverðs á milli mánaða í janúar hefur ekki verið meiri síðan í byrjun árs 2024. Á síðustu mánuðum hefur þó dregið talsvert úr verðhækkunum á íbúðamarkaði og raunverð hefur lækkað á milli ára þrjá mánuði í röð. Við gerum ráð fyrir raunverðslækkunum á milli ára á allra næstu mánuðum, þó nafnverðslækkanir séu ólíklegri.
Þjóðvegur
23. feb. 2026
Vikubyrjun 23. febrúar 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst alls um 5,4% á milli ára í janúar. Mánaðarbreyting vísitölu íbúðaverðs hefur ekki verið jafn mikil síðan í febrúar 2024, en hækkunin í janúar var drifin áfram af verðhækkunum á sérbýli. Vísitala leiguverðs lækkaði annan mánuðinn í röð.
16. feb. 2026
Vikubyrjun 16. febrúar 2026
Erlendum ferðamönnum fækkaði um 1,8% á milli ára í janúar. Skráð atvinnuleysi hækkaði um 0,7 prósentustig frá fyrra ári og mælist nú 4,2%. Lausum störfum í Bandaríkjunum fjölgaði umfram væntingar.
Litríkir bolir á fataslá
12. feb. 2026
Spáum 4,9% verðbólgu í febrúar
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,64% á milli mánaða í febrúar. Gangi spáin eftir mun verðbólga hjaðna úr 5,2% í 4,9%. Útsölulok munu hafa mest áhrif til hækkunar í febrúar, gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að verðbólga hjaðni smám saman næstu mánuði og mælist 4,4% í maí.
Fiskveiðinet
11. feb. 2026
Útflutningur til Bandaríkjanna stendur í stað – loðnan kemur á góðum tíma
Töluverður vöxtur var í útflutningsverðmætum flestra vöruútflutningsgreina á fyrri hluta síðasta árs en heldur fór að halla undan fæti á seinni hluta ársins, eftir röð áfalla sem snertu útflutningsgreinar. Auknar loðnuheimildir koma því á besta tíma. Þrátt fyrir aukin verðmæti vöruútflutnings í fyrra stóð vöruútflutningur til Bandaríkjanna í stað.
Vöruhótel
9. feb. 2026
Vikubyrjun 9. febrúar 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum í síðustu viku. Einnig héldu Seðlabanki Evrópu og Englandsbanki vöxtum óbreyttum. Í næstu viku fáum við ferðamannatölur og skráð atvinnuleysi í janúar. Einnig munu nokkur félög birta uppgjör.