Hag­sjá: Fast­eigna­verð á svip­uðu róli í októ­ber

Samkvæmt tölum Þjóðskrár hefur verð nýrra íbúða hækkað talsvert meira en þeirra eldri á fyrstu 10 mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Nýjar íbúðir hafa hækkað um 5,7% á þessu tímabili en þær eldri um 4%.
21. nóvember 2018

Samantekt

Samkvæmt tölum Þjóðskrár hækkaði fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu um 0,4% milli september og október. Verð á fjölbýli hækkaði um 0,4% og verð á sérbýli lækkaði um 0,6%. Verð á fjölbýli hefur hækkað um 4,1% á síðustu 12 mánuðum og verð á sérbýli um 3,5%. Árshækkun húsnæðisverðs nemur 4,1%.

Veruleg hækkun fasteignaverðs á síðustu misserum hefur orðið samhliða lágri verðbólgu og reyndar var verðbólga án húsnæðis lengi neikvæð, eða allt þar til í maímánuði síðastliðnum. Raunhækkun húsnæðisverðs mæld á föstu verðlagi án húsnæðis hefur því verið mikil, en verulega hefur þó hægt á árshækkuninni síðustu mánuði. Þannig var raunverð fasteigna nú í október um 1,7% hærra en í október 2017. Þar sem verðbólga er enn tiltölulega lág helst raunverð fasteigna stöðugt, þrátt fyrir hóflegar hækkanir. Hækkun raunverðs síðustu 12 mánuði er mun minni en árin þar á undan. Samsvarandi tölur voru 21,7% fyrir 2017 og 14,7% fyrir 2016.

Fjöldi viðskipta með húsnæði á höfuðborgarsvæðinu var nokkuð minni í október en verið hefur allt frá því í apríl á þessu ári. Meðalfjöldi viðskipta síðustu 4 mánuði fram til október var um 650 viðskipti til samanburðar við u.þ.b. 540 viðskipti á sama tíma á síðasta ári og um 610 á árinu 2016. Markaðurinn er því þokkalega líflegur miðað við síðustu ár.

Sala á nýjum íbúðum  hefur aukist mikið að undanförnu. Samkvæmt gögnum Þjóðskrár má sjá að hlutfall nýrra íbúða af viðskiptum var mun hærra á fyrstu 10 mánuðum ársins en á síðasta ári. Á þessu ári hafa tæplega 19% viðskipta með fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu verið með nýjar íbúðir samanborið við rúm 5% í fyrra. Segja má að þessi aukna hlutdeild nýrra íbúða haldi fasteignaverðinu uppi þar sem fermetraverð á þeim nýju var um 17% hærra en á þeim eldri á þessu tímabili. Aukið hlutfall nýrra íbúða af viðskiptum felur að jafnaði í sér að meðalfermetraverð verður hærra en ella.

Þá hefur verð nýrra íbúða hækkað talsvert meira en þeirra eldri á fyrstu 10 mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Nýjar íbúðir hafa hækkað um 5,7% á þessu tímabili en þær eldri um 4%. Þetta felur líka í sér að munur á fermetraverði nýrra og eldri íbúða hefur aukist. Á fyrstu 10 mánuðum ársins 2017 voru nýjar íbúðir 15% dýrari en þær eldri, samanborið við að þær hafa verð 17% dýrari á þessu ári.

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár hefur verð nýrra íbúða hækkað meira en þeirra eldri allt frá því í júlí í sumar og verulega meira í sumum mánaðanna.

Mikil umræða hefur verið um skort á minni íbúðum á markaði. Fyrstu 10 mánuði ársins 2017 voru seldar nýjar íbúðir að jafnaði um 117 m2 samkvæmt tölum Þjóðskrár. Meðalstærð seldra nýrra íbúða er mun minni í ár, eða um 102 m2. Á þessum tíma í fyrra voru nýjar íbúðir að jafnaði um 19% stærri en seldar eldri íbúðir. Í ár hafa nýjar íbúðir verið 3,4% stærri en þær eldri. Það er hins vegar ólíklegt að meðalstærð nýrra íbúða upp á rúmlega 1oo m2 sé nógu stórt skref til þess að svara kröfum.

Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 18,9% milli áranna 2016 og 2017 og var það langmesta hækkun frá árinu 2005. Nú lítur út fyrir að hækkunin milli áranna 2017 og 2018 verði rúmlega 4% sem verður þá minnsta hækkun milli ára allt frá árinu 2010 þegar verðið lækkaði um 3,8% milli ára. Það hefur því orðið grundvallarbreyting á fasteignamarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Fasteignaverð á svipuðu róli í október (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
Fataverslun
10. júlí 2024
Spáum að verðbólga aukist lítillega og verði 5,9% í júlí 
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október. 
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Paprika
24. júní 2024
Vikubyrjun 24. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% í maí og vísitala leiguverðs um 3,2% samkvæmt gögnum sem bárust í síðustu viku. Englandsbanki hélt vöxtum óbreyttum á meðan svissneski seðlabankinn lækkaði vexti um 0,25 prósentustig. Eftirtektarverðasta innlenda hagtalan sem birtist í þessari viku er eflaust vísitala neysluverðs sem Hagstofan birtir á fimmtudaginn.
Fjölbýlishús
19. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs á hraðri uppleið
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Nafnverð íbúða er 8,4% hærra en á sama tíma í fyrra og raunverð íbúða er 4% hærra. Undirritaðir kaupsamningar um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu voru 150% fleiri í maí á þessu ári en í maí í fyrra.  
Krani með stiga
18. júní 2024
Vikubyrjun 18. júní 2024
Í síðustu viku fengum við tölur um atvinnuleysi, fjölda ferðamanna og greiðslukortaveltu hér á landi í maí. Seðlabanki Bandaríkjanna hélt vöxtum óbreyttum. Síðar í dag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur