Hagsjá: Fasteignaverð á Akureyri – hóflegri hækkanir nú en í síðustu uppsveiflu
Samantekt
Fermetraverð á Akureyri hækkaði um 15,1% milli áranna 2016 og 2017. Frá árinu 2009 hefur fermetraverð hækkað samhliða jafnri fjölgun fasteignaviðskipta.
Mest var hækkunin á Brekkunni og í Innbænum, eða 26,4%, en minnst á Oddeyri, eða 11,2%. Hæsta fermetraverðið mátti finna í Naustahverfi, 346 þús. Næst á eftir kom Giljahverfi með 320 þús. Lægstu fermetraverðin voru á Oddeyri, 220 þús., og í Holta- og Hlíðahverfi, 259 þús.
Munurinn á dýrasta og ódýrasta hverfinu hélt áfram að aukast á árinu. Munurinn nam um 126 þús. á fermetra en hann hefur aukist jafnt og þétt frá 2010 þegar hann var 72 þús.
Breyting á fermetraverði og fjöldi viðskipta á Akureyri
Hóflegri hækkanir hafa verið á fermetraverði á Akureyri í þeirri uppsveiflu sem hefur verið undanfarin ár (2015-2017) en í síðustu uppsveiflu (2004-2006). Milli áranna 2004-2006 var 57,1% hækkun á fermetraverði en milli áranna 2015-2017 var hækkunin 26,5%.
Hóflegri hækkanir hafa verið á fermetraverði á Akureyri í þeirri uppsveiflu sem hefur verið undanfarin ár (2015-2017) en í síðustu uppsveiflu (2004-2006). Hækkanir hafa legið á bilinu 1,6%-15,1% undanfarin 7 ár á meðan hækkanir milli áranna 2004-2005 námu 19,3% og 31,7% 2005-2006. Milli áranna 2004-2006 var 57,1% hækkun á fermetraverði en milli áranna 2015-2017 var hækkunin 26,5%.
Fermetraverð á Akureyri hefur haldið áfram að hækka þrátt fyrir rólegri tíma á höfuðborgarsvæðinu. Mikil uppbygging nýrra íbúða er nú í gangi bæði í Naustahverfi sem og í Innbænum. Þegar þær fasteignir fara á sölu er því von á að meðalfermetraverð á Akureyri hækki enn frekar. Nýjar íbúðir hafa almennt hærra fermetraverð, auk þess sem staðsetning margra nýju íbúðanna er eftirsóknarverð.
Lesa Hagsjána í heild
Hagsjá: Fasteignaverð á Akureyri - hóflegri hækkanir nú en í síðustu uppsveiflu (PDF)