Samantekt
Alls fóru tæp 200 þúsund erlendra ferðamanna um Leifsstöð í október samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia. Til samanburðar voru erlendir ferðamenn 182 þúsund í október í fyrra og er fjölgunin milli ára því 9,7%.
Frá áramótum hafa 2.028 þúsund erlendir ferðamenn farið um Leifsstöð í samanburði við 1.915 á fyrstu tíu mánuðum síðasta árs. Fjölgunin milli ára er því 5,9%, en við gerum ráð fyrir um 6% fjölgun milli ára fyrir árið í heild í nýbirtri þjóðhagsspá okkar.
Lesa Hagsjána í heild
Hagsjá: Erlendum ferðamönnum fjölgaði um tæp 10% í október (PDF)