Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Ekk­ert lát á hækk­un íbúða­verðs

Íbúðaverð hækkaði um 1,6% milli mánaða í ágúst sem er talsvert meiri hækkun en á fyrri sumarmánuðum. Hækkanir eru komnar fram úr hækkun undirliggjandi þátta og því ósjálfbærar til lengri tíma. Áhrif vaxtahækkana eiga enn eftir að koma fram.
Fasteignir
22. september 2021 - Greiningardeild

Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali um 1,6% milli júlí og ágúst. Fjölbýli hækkaði um 1,5% og sérbýli um 2,1%. Vegin árshækkun mælist nú 16,4% og hækkar um heilt prósentustig frá fyrri mánuði. Árshækkun sérbýlis mælist 20,4% og fjölbýlis 15%.

Tölur júlímánaðar bentu til þess að mögulega væri íbúðamarkaðurinn farinn að róast þar sem hækkunin mældist einungis 0,7% milli mánaða, en það var minnsta hækkunin sem hafði mælst síðan í febrúar. Annað hefur svo komið á daginn þar sem nýjustu tölur benda til þess að enn sé talsverð spenna á íbúðamarkaði.

Almennt verðlag án húsnæðiskostnaðar hækkaði um 0,4% milli mánaða í ágúst og hækkaði raunverð íbúða því um 1,2%. 12 mánaða hækkun raunverðs mælist nú 12,7% og hefur ekki verið meiri síðan í janúar 2018. Frá því í apríl hefur árshækkun raunverðs mælst ofar sambærilegri hækkun á kaupmætti launa. Slíkt gefur til kynna að hækkanir íbúðaverðs séu mögulega orðnar meiri en kaupendahópurinn ræður við, og því ekki sjálfbærar til lengri tíma.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Ekkert lát á hækkun íbúðaverðs

Þú gætir einnig haft áhuga á
11. des. 2025
Spáum 3,9% verðbólgu í desember
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,56% á milli mánaða í desember. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 3,7% í 3,9% í desember. Flugfargjöld til útlanda, reiknuð húsaleiga og lok tilboðsdaga í nóvember verða til hækkunar en bensínverð til lækkunar. Við gerum ráð fyrir að verðbólga verði á bilinu 3,9% til 4,0% næstu mánuði.
8. des. 2025
Vikubyrjun 8. desember 2025
Talsvert minni afgangur mældist af viðskiptum við útlönd á þriðja ársfjórðungi þessa árs en þess síðasta. Í síðustu viku gaf Seðlabankinn út yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og fundargerð peningastefnunefndar. Í þessari viku verða birtar ferðamannatölur og skráð atvinnuleysi fyrir nóvembermánuð.
1. des. 2025
Mánaðamót 1. desember 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
1. des. 2025
Vikubyrjun 1. desember 2025
Óhætt er að segja að verðbólgumælingin í síðustu viku hafi komið á óvart. Verðbólga mældist 3,7% í nóvember og hefur ekki mælst minni í fimm ár. Hagstofan áætlar að landsframleiðsla hafi aukist um 1,2% á þriðja ársfjórðungi. Gistinóttum fjölgaði alls um 1,8% á milli ára í október.
Flutningaskip
28. nóv. 2025
1,2% hagvöxtur á þriðja fjórðungi
Landsframleiðsla jókst um 1,2% á þriðja ársfjórðungi og um 1,5% á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi var drifinn áfram af innlendri eftirspurn og þjóðarútgjöld jukust um heil 4,7%. Áfram er kraftur í einkaneyslu og fjárfestingu, en auknar birgðir hafa einnig sitt að segja. Innflutningur vegur þungt á móti og framlag utanríkisviðskipta er neikvætt, líkt og á síðustu fjórðungum.
Epli
27. nóv. 2025
Verðbólga ekki minni í fimm ár
Verðbólga hjaðnaði úr 4,3% í 3,7% í nóvember og hefur ekki verið minni frá því í desember 2020. Áhrif af afsláttardögum í nóvember komu mun skýrar fram í mælingu Hagstofunnar nú en síðustu ár og flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun meira en við bjuggumst við.
Byggingakrani
24. nóv. 2025
Vikubyrjun 24. nóvember 2025
Seðlabankinn lækkaði vexti í síðustu viku með það fyrir augum að stemma stigu við því aukna peningalega aðhaldi sem hefur hlotist af breyttu lánaframboði í kjölfar vaxtadómsins. Auk þess spáir Seðlabankinn nú auknum slaka í hagkerfinu, minni hagvexti og minni verðbólgu en í síðustu spá. Hagstofan birtir verðbólgumælingu nóvembermánaðar á fimmtudaginn og þjóðhagsreikninga fyrir þriðja ársfjórðung á föstudaginn.
Ferðamenn
21. nóv. 2025
Ferðamenn mun fleiri á þessu ári en því síðasta – en fækkaði í október
Brottfarir erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli voru 6,2% færri í október en í sama mánuði í fyrra og erlend kortavelta dróst þó nokkuð saman. Líklega hefur fall Play sett mark sitt á mánuðinn. Ef horft er yfir árið í heild hefur gangurinn í ferðaþjónustu verið mun meiri á þessu ári en því síðasta.
Seðlabanki
17. nóv. 2025
Vikubyrjun 17. nóvember 2025
Skráð atvinnuleysi var 3,9% í október, 0,5 prósentustigum meira en í sama mánuði í fyrra. Brottförum erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 6,2% í október en utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði um 3%. Peningastefnunefnd kemur saman á miðvikudaginn og við búumst við að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum.
Seðlabanki Íslands
14. nóv. 2025
Spáum óbreyttum vöxtum þrátt fyrir sviptingar í efnahagslífinu
Við spáum því að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga jókst umfram væntingar í október og verðbólgumælingin bar þess merki að undirliggjandi verðþrýstingur hefði aukist. Í ljósi breytts lánaframboðs og óviðbúinna áfalla í útflutningsgeirunum má líkast til búast við mildari tón frá peningastefnunefnd.