Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Ár­s­verð­bólg­an kom­in í tveggja stafa tölu

Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,39% milli mánaða í febrúar og ársverðbólgan jókst úr 9,9% í 10,2%. Þetta er mesta verðbólga sem hefur mælst í yfirstandandi verðbólgukúfi, og tveggja stafa verðbólga hefur ekki mælst á Íslandi síðan í september 2009. Verðbólgan var mun meiri en við áttum von á, en við höfðum spáð 9,6% ársverðbólgu í febrúar.
Fataverslun
27. febrúar 2023

Verðbólguþrýstingurinn virðist nú meiri og almennari en við töldum og því uppfærum við nú spá okkar til næstu mánaða. Í stað þess að gera ráð fyrir að verðbólgan verði komin niður í 8,2% í júní eigum við nú von á að þá mælist hún enn 9,2%.

Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,39% milli mánaða í febrúar, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í morgun. Ársverðbólgan jókst úr 9,9% í 10,2%. Þetta er mesta verðbólga sem hefur mælst í yfirstandandi verðbólgukúfi, og tveggja stafa verðbólga hefur ekki mælst hér á landi síðan í september 2009. Verðbólgan var mun meiri en við áttum von á, en við höfðum spáð 0,88% hækkun í febrúar (9,6% ársverðbólgu).

Matarkarfan, föt og skór

Það er áhyggjuefni hversu mikið daglegar neysluvörur almennings hafa hækkað í verði. Þegar litið er til stakra undirliða má sjá að matarkarfan hækkaði um 1,2% (0,3% áhrif), föt og skór hækkuðu um 6,8% (0,21% áhrif), húsgögn, heimilisbúnaður og fl. hækkuðu um 8,7% (0,53% áhrif) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 0,7% (0,01% áhrif).

  • Matarkarfan hækkaði um 1,9% milli mánaða, en við höfðum spáð 1,2% hækkun. Hækkanirnar voru nokkuð almennar, en 4 af 11 undirflokkum hækkuðu um meira en 3,5%. Meðal annars hækkaði grænmeti um 4,1%, ávextir um 3,6%, sykur og sælgæti um 3,7% og gos, vatn og safar um 3,5%.
  • Föt og skór hækkuðu um 6,8%, en sá liður lækkaði um 8,4% milli mánaða á útsölum í janúar. Útsölurnar í janúar ganga yfirleitt til baka í febrúar og mars og virðast nú hafa klárast fyrr en venjulega.  Einnig er líklegt að verð á nýjum vörum sé sett hærra en fyrir útsölur.
  • Liðurinn húsgögn, heimilisbúnaður og fl. hækkaði um 8,7%, en hafði lækkað um 5,5% í janúar. Hækkunin var því nokkuð meiri en nemur útsölulækkuninni í janúar.
  • Reiknuð húsaleiga samanstendur af markaðsverði húsnæðis á landinu öllu ásamt framlagi vaxtabreytinga. Alls hækkaði sá liður um 0,1% milli mánaða (áhrif 0,02%) en við áttum von á 0,54% hækkun. Skýrist munurinn af því að fasteignaverð lækkaði mun meira en við áttum von á; við höfðum spáð 0,1 prósent lækkun en það lækkaði um 0,5%. Mæling Hagstofunnar á höfuðborgarsvæðinu var nokkuð lægri en mæling HMS auk þess sem verð utan höfuðborgarsvæðisins hækkaði minna en við áttum von á. Framlag vaxtabreytinga var svipað og við bjuggumst við.
  • Flugfargjöld til útlanda voru nokkurn veginn óbreytt, en við áttum von á lækkun milli mánaða. Þessi liður á það til að sveiflast mikið milli mánaða og því borgar sig ekki að lesa of mikið í stakar mælingar.

Sex af hverjum tíu undirliðum hafa hækkað um meira en 5%

Enn fjölgar þeim undirliðum sem hafa hækkað í verði langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans (2,5%). Meirihluti undirliða, það er 102 af 169 (60%), hafa hækkað um meira en 5% á síðustu tólf mánuðum. Þar af hafa 59 þeirra (35%) hækkað um meira en 10% á síðustu tólf mánuðum. Til samanburðar höfðu í byrjun árs í fyrra einungis 27% undirliða hækkað um meira en 5%, þar af 6% um meira en 10%. Þrátt fyrir þetta eru það fimm undirliðir (reiknuð húsaleiga, bílar, 95 okt. bensín, flugfargjöld til útlanda og greidd húsaleiga) sem skýra helming (49,6%) af ársverðbólgunni, en þessir fimm undirliðir eru um þriðjungur (32,9%) af vísitölunni.

Samsetning á verðbólgunni heldur áfram að breytast

Samsetning verðbólgunnar breyttist nokkuð milli mánaða. Framlag innfluttra vara án bensíns og framlag þjónustu jókst á meðan framlag húsnæðis minnkaði. Árshækkun allra fjögurra kjarnavísitalnanna jókst milli mánaða. Það sem veldur mestum áhyggjum er að árshækkun kjarnavísitölu 4, það er ársverðbólgan þegar búið er að taka út sveiflukenndustu liðina (búvöru, grænmeti, ávextir, bensín), opinbera þjónustu og reiknaða húsaleigu, hækkaði nokkuð þriðja mánuðinn í röð.

Hærri verðbólga í spilunum.

Nýjustu tölur benda til þess að verðbólguþrýstingur sé meiri og almennari en við töldum. Í ljósi þess höfum við uppfært verðbólguspá okkar til næstu mánaða. Áður spáðum við því að verðbólgan yrði komin niður í 8,2% í júní en nú spáum við því að hún verði 9,2% í júní.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Hagfræðideildar Landsbankans hf. (hagfraedideild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Hagfræðideild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
1. júlí 2025
Mánaðamót 1. júlí 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Flugvél á flugvelli
30. júní 2025
Vikubyrjun 30. júní 2025
Verðbólga jókst úr 3,8% og mældist 4,2% í júní. Aukin verðbólga skýrist aðallega af auknum þrýstingi á innfluttum vörum en einnig af hækkandi flugfargjöldum og verðhækkun á þjónustu. Þá jókst velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum um 1,5% að raunvirði í mars og apríl.
Paprika
27. júní 2025
Verðbólga umfram væntingar
Verðbólga mældist 4,2% í júní og jókst úr 3,8% frá því í maí. Verðlag hækkaði umfram spár, en við höfðum spáð 3,9% verðbólgu. Aukin verðbólga skýrist aðallega af auknum verðþrýstingi á innfluttum vörum, einkum fötum, skóm og tómstundarvörum, en einnig af hækkandi flugfargjöldum og verðhækkun á þjónustu.
Orlofshús á Íslandi
27. júní 2025
Viðskipti með sumarhús færast aftur í aukana
Sumarhúsum á Íslandi hefur fjölgað um 45% á síðustu 20 árum. Viðskipti með sumarhús færðust verulega í aukana á tímum faraldursins. Fyrst eftir faraldurinn hægðist um en nú virðist aftur hafa glaðnað yfir markaðnum.
Herðubreið
25. júní 2025
Áfram merki um viðnámsþrótt í hagkerfinu
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum jókst um 1,5% að raunvirði í mars og apríl og um 5,2% í janúar og febrúar, samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Veltugögnin bera þess merki að hagkerfið standi vaxtastigið vel af sér sem er í takt við aukinn hagvöxt í byrjun árs. Það sem af er ári hefur velta aukist mest í sölu og viðhaldi á bílum en einnig má greina aukin umsvif í helstu útflutningsgreinunum: álframleiðslu, sjávarútvegi og ferðaþjónustu.
Ferðafólk
23. júní 2025
Færri ferðamenn en meiri ferðaþjónusta?
Færri ferðamenn hafa heimsótt Ísland það sem af er ári en á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir það hefur erlend kortavelta aukist á milli ára og það sama má segja um útflutningstekjur af ferðaþjónustu. Við teljum ýmislegt benda til þess að erlendir ferðamenn hafi verið fleiri síðustu mánuði en talning Ferðamálastofu segir til um.
Íbúðahús
23. júní 2025
Vikubyrjun 23. júní 2025
Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,45% á milli mánaða í maí. Vísitalan lækkaði þar með í fyrsta sinn á þessu ári og ársbreytingin hefur ekki verið jafn lítil frá því í byrjun síðasta árs. Áfram er kraftur í kortaveltu Íslendinga, ekki síst erlendis.
Kortagreiðsla
19. júní 2025
Kortavelta Íslendinga erlendis eykst og veldur auknum greiðslukortahalla
Kortavelta jókst um 6,8% á milli ára í maí að raunvirði þar af jókst hún um 21% erlendis. Það sem af er ári hefur kortavelta aukist um 5,5% frá sama tímabili í fyrra, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Íslendingar hafa aldrei farið í fleiri utanlandsferðir í maímánuði en nú í ár. Greiðslukortajöfnuður var neikvæður um 4,2 ma.kr. sem er töluvert meiri halli en í maí í fyrra.
Hús í Reykjavík
16. júní 2025
Vikubyrjun 16. júní 2025
Í síðustu viku fór fram uppgjör við eigendur HFF-bréfa. Erlendum ferðamönnum fjölgaði aðeins á milli ára í maí og atvinnuleysi jókst á milli ára. Í vikunni fram undan birtir HMS vísitölu íbúðaverðs, vísitölu leiguverðs og mánaðarskýrslu.
12. júní 2025
Spáum 3,9% verðbólgu í júní
Við spáum því að verðbólga aukist lítillega í júní og mælist 3,9%. Verðbólga helst líklega nær óbreytt í sumar en eykst svo aðeins með haustinu, þegar einskiptisliðir vegna skólagjalda og skólamáltíða detta út úr tólf mánaða taktinum. Við gerum áfram ráð fyrir 4,0% verðbólgu í árslok.