Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn gef­ur út nýja al­menna við­skipta­skil­mála

Landsbankinn hefur gefið út nýja almenna viðskiptaskilmála. Skilmálarnir uppfæra, skýra og sameina fimm helstu skilmála bankans um grunnþætti fjármálaþjónustu, þ.e. skilmála um innlánsreikninga, debetkort, netbanka einstaklinga, netbanka fyrirtækja auk almennra skilmála. Nýju skilmálarnir auðvelda jafnframt stafræn samskipti viðskiptavina við bankann.
11. júní 2018

Landsbankinn hefur gefið út nýja almenna viðskiptaskilmála. Skilmálarnir uppfæra, skýra og sameina fimm helstu skilmála bankans um grunnþætti fjármálaþjónustu, þ.e. skilmála um innlánsreikninga, debetkort, netbanka einstaklinga, netbanka fyrirtækja auk almennra skilmála. Nýju skilmálarnir auðvelda jafnframt stafræn samskipti viðskiptavina við bankann. Þá er í skilmálunum kveðið á um vernd persónuupplýsinga til samræmis við nýja löggjöf um persónuvernd.

Nýju skilmálarnir taka gildi frá 12. júní 2018 gagnvart nýjum viðskiptavinum en frá 12. ágúst 2018 gagnvart núverandi viðskiptavinum. Ákvæði skilmálanna sem falla undir gildissvið laga um greiðsluþjónustu teljast vera rammasamningur um greiðsluþjónustu í skilningi þeirra laga. Skilmálarnir fela í sér breytingar frá eldri skilmálum sem varða ákvæði um rammasamning. Í samræmi við ákvæði laga um greiðsluþjónustu hefur núverandi viðskiptavinur rétt á að tilkynna bankanum um uppsögn rammasamnings fyrir 12. ágúst 2018 ef hann samþykkir ekki breytingarnar. Núverandi viðskiptavinur telst hafa samþykkt breytingarnar tilkynni hann bankanum ekki um annað fyrir 12. ágúst 2018.

Hér er hægt að nálgast nýju skilmálana:

Almennir viðskiptaskilmálar Landsbankans

Nýju skilmálarnir koma í stað eftirfarandi skilmála:

Almennir viðskiptaskilmálar Landsbankans hf.

Almennir skilmálar um stofnun og notkun innlánsreikninga

Viðskiptaskilmálar Landsbankans hf. fyrir debetkort

Viðskiptaskilmálar fyrir netbanka einstaklinga

Viðskiptaskilmálar fyrir netbanka fyrirtækja

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn
26. nóv. 2026
Landsbankinn breytir föstum vöxtum
Landsbankinn lækkar fasta vexti á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum. Breytingarnar eru eftirfarandi:
Jólatré
25. nóv. 2026
Ljósin tendruð á Hamborgartrénu 28. nóvember
Ljósin verða tendruð á Hamborgartrénu þann 28. nóvember kl. 17.00 við hátíðlega athöfn á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn þar sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur jólalög við jólatréð.
20. nóv. 2026
Landsbankinn fylgir Bláa Lóninu á markað
Viðskipti með hlutabréf Bláa Lónsins hófust í dag á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland undir auðkenninu BLUE. Landsbankinn hafði umsjón með skráningu félagsins og annaðist almennt hlutafjárútboð þess ásamt Fossum fjárfestingarbanka.
18. nóv. 2026
Sjáðu í gegnum svikin - fræðslufundur í Hamraborg
Hvernig berum við kennsl á netsvik og hvernig verjum við okkur gegn þeim? Fölsk skilaboð, grunsamleg símtöl og gylliboð á netinu geta virst trúverðug en ýmislegt getur hjálpað okkur að sjá í gegnum blekkingarnar.
16. nóv. 2026
Hugarafl hlýtur 4 milljóna króna styrk
Landsbankinn veitti Hugarafli fjögurra milljóna króna styrk í nafni allra fyrirtækja sem hlutu viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki árið 2026. Líkt og undanfarin ár veitir bankinn styrk til góðs málefnis í nafni fyrirtækjanna. 
13. nóv. 2026
Bláa Lónið hefur lokið hlutafjárútboði
Almennu hlutafjárútboði Bláa Lónsins hf. lauk kl. 16:00 þann 13. nóvember. Alls bárust tæplega 4 þúsund áskriftir að andvirði um 15,3 ma. kr.
10. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið. Þann 5. nóvember 2026 birti Bláa Lónið lýsingu sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsinu. Tekið verður við áskriftum á vef bankans frá kl. 10:00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 til kl. 16:00 föstudaginn 13. nóvember 2026.
10. nóv. 2026
Nýr og endurbættur netbanki einstaklinga
Við höfum gefið út nýjan og endurbættan netbanka einstaklinga. Þar er enn einfaldara og þægilegra fyrir viðskiptavini að fylgjast með fjármálum sínum og sinna bankaerindum.
9. nóv. 2026
Landsbankinn og Brutto einfalda fjármál fyrirtækja
Fyrirtækjaeigendur geta nú sinnt fjármálum og haldið utan um daglegan rekstur á einum stað með Brutto, nýju rekstrarkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
6. nóv. 2026
Opinn kynningarfundur um hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Bláa Lónið hf. og Landsbankinn hf. boða til opins kynningarfundar, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 10, í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins og umsókn um töku allra hluta félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.