Ljósin tendruð á Hamborgartrénu 28. nóvember

Ljósin verða tendruð á Hamborgartrénu þann 28. nóvember kl. 17.00 við hátíðlega athöfn á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn þar sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur jólalög við jólatréð.
Að athöfn lokinni býðst gestum að þiggja fiskisúpu í boði Brims í Landsbankanum við Reykjastræti 6. Jólasveinar og harmonikkuleikari skemmta gestum og leika jólalög.
Að viðburðinum standa Faxaflóahafnir, Landsbankinn, Brim, Harpa, Hafnartorg, Sjómannadagsráð, Þýsk-íslenska viðskiptaráðið og Sendiráð Sambandslýðveldisins Þýskalands í Reykjavík.
Dagskrá
- Jólakveðja frá Faxaflóahöfnum
- Sendiherra Þýskalands, Clarissa Duvigneau, tendrar ljósin á Hamborgartrénu
- Jólasveinar sigla inn í gömlu höfnina á Magna, leggja að Miðbakkanum og leiða gesti að fiskisúpukötlunum í Landsbankanum
Íslenskir sjómenn sem lögðu að í Hamborg eftir seinna stríð elduðu fiskisúpu handa svöngum krökkum á meðan verið var að landa úr togurunum þeirra. Sem þakklætisvott hófu hafnaryfirvöld í Hamborg árið 1965 að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar og stendur Hamborgartréð við höfnina yfir hátíðarnar.
Vegna umhverfissjónarmiða er ekki lengur siglt með grenitréð frá Þýskalandi. Í ár kemur tréð úr Bakkakotsskógi í Skorradal og er 13 metra hátt.
Við hlökkum til að sjá ykkur!









