Opinn kynningarfundur um hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.

Bláa Lónið hf. og Landsbankinn hf. boða til opins kynningarfundar, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 10, í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins og umsókn um töku allra hluta félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Beint vefstreymi verður aðgengilegt á vefsíðu Landsbankans, landsbankinn.is/blaalonid, og á vefsíðu Bláa Lónsins, blaalonidhf.is/fjarfestar.
Fundurinn er ætlaður fjárfestum og almenningi þar sem farið verður yfir fyrirkomulag útboðsins og gefið tækifæri á því að spyrja spurninga. Á fundinum munu Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, og Elvar Þór Karlsson, forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, kynna útboðið og svara spurningum.
- Útboð á hlutafé Bláa Lónsins hefst þriðjudaginn 10. nóvember kl. 10.00 og lýkur kl. 16.00, föstudaginn 13. nóvember.
- Til sölu eru að 150.000.000 hlutir í Bláa Lóninu, þar af 45.000.000 (30%) í áskriftarbók A og 105.000.000 (70%) í áskriftarbók B.
- Tekið verður við áskriftum á bilinu 100.000 kr. til 20.000.000 kr. í áskriftarbók A á genginu 95 kr./hlut.
- Áskriftir yfir 20.000.000 kr. skulu berast í áskriftarbók B.
- Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en 16. nóvember 2026 og að hlutabréfin verði afhent kaupendum eigi síðar en 20. nóvember 2026.
- Gjalddagi og eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins er 18. nóvember 2026.
- Áætlað er að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 20. nóvember 2026.
Hér má finna nánari upplýsingar um útboðið, áskriftarmöguleika og aðra tilhögun ásamt útboðsgögnum.
Auglýsing. Vakin er athygli á því að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu. Fjárfestar eru hvattir til að lesa birta lýsingu félagsins, sem staðfest hefur verið af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, áður en ákvörðun um fjárfestingu er tekin til að skilja til fulls mögulega áhættu og ávinning fjárfestingarinnar. Staðfestingu fjármálaeftirlitsins ber ekki að skilja sem stuðning við útgefandann eða þau verðbréf sem boðin eru eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði.









