Landsbankinn fylgir Bláa Lóninu á markað

Skráningin markar mikilvæg tímamót í sögu Bláa Lónsins og bætir áhugaverðum fjárfestingarkosti við á íslenskan hlutabréfamarkað. Útboðið fór fram dagana 10.–13. nóvember og bárust tæplega fjögur þúsund áskriftir að andvirði um 15,3 milljarða króna. Í útboðinu seldust nýir hlutir fyrir tæpa 14,3 milljarða króna.
Elvar Þór Karlsson, forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, segir:
„Við erum stolt af því að hafa fylgt Bláa Lóninu í þessu verkefni. Samstarf okkar hefur náð frá ráðgjöf við kaup á Arctic Adventures til hlutafjárútboðs og skráningar á markað. Þar nýtist breiddin í þjónustu bankans og reynsla okkar af stórum verkefnum á þessu sviði. Þetta er jafnframt fyrsta nýskráning í kjölfar almenns frumútboðs á Aðalmarkaði frá árinu 2023 og sterk viðbót við íslenskan hlutabréfamarkað. Bláa Lónið hefur þá áhugaverðu sérstöðu að vera rótgróið félag með áratuga reynslu og sterkt vörumerki, en jafnframt vaxtarfélag með metnaðarfull áform um áframhaldandi uppbyggingu. Að mínu mati eru fá félög með jafn skýra og vel útfærða framtíðarsýn. Við óskum starfsfólki og hluthöfum Bláa Lónsins til hamingju með daginn og þökkum traustið.“
Aðkoma Landsbankans að uppbyggingu Bláa Lónsins nær til fleiri verkefna. Fyrirtækjaráðgjöf bankans veitti félaginu ráðgjöf vegna kaupa á Arctic Adventures og aukinnar fjárfestingar í Norðurböðum, sem tengist starfsemi Jarðbaðanna við Mývatn, Sjóböðunum á Húsavík og Vök við Egilsstaði.
Landsbankinn mun jafnframt sinna viðskiptavakt með hlutabréf Bláa Lónsins ásamt Arion banka. Viðskiptavaktin hefst í dag og felur í sér að bankarnir setja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréfin fyrir eigin reikning á viðskiptadögum í Kauphöllinni.









