Sjáðu í gegnum svikin - fræðslufundur í Hamraborg

Hvernig berum við kennsl á netsvik og hvernig verjum við okkur gegn þeim? Fölsk skilaboð, grunsamleg símtöl og gylliboð á netinu geta virst trúverðug en ýmislegt getur hjálpað okkur að sjá í gegnum blekkingarnar.
Nú þegar stærstu innkaupavikur ársins ganga í garð bjóðum við til fræðslufundar í útibúi Landsbankans í Hamraborg miðvikudaginn 25. nóvember kl. 16.00. Brynja M. Ólafsdóttir, sérfræðingur í Regluvörslu Landsbankans, fjallar um aðferðir netsvikara og gefur hagnýt ráð um varnir gegn þeim.
Léttar veitingar og heitt á könnunni.
Við hlökkum til að sjá ykkur í Hamraborginni!









