Nýr og endurbættur netbanki einstaklinga

Nýi netbankinn birtist sjálfkrafa við innskráningu og þar er meðal annars hægt að skoða bæði Vild og tryggingar hjá TM. Netspjallið er nú einnig aðgengilegt í talblöðru neðst í hægra horninu í netbankanum og þar hægt er að fá aðstoð hjá starfsfólki bankans og spjallmenninu Ellí.
Með þessari nýju útgáfu verður viðmót netbankans líkara appinu sem auðveldar viðskiptavinum að nýta þjónustuna á báðum stöðum. Breytingin flýtir jafnframt fyrir innleiðingu nýjunga og á næstunni bætast við fleiri möguleikar sem hingað til hafa aðeins verið í boði í appinu.
Eldri netbankinn áfram í boði
Eldri netbankinn verður áfram aðgengilegur af forsíðu þess nýja. Unnið verður að þróun nýja netbankans og þjónustan aukin þar til hann tekur að fullu við af þeim eldri.
Aðstoð og nánari upplýsingar eru í boði í netspjallinu, í síma 410 4000 og í útibúum bankans. Einnig getur þú sent inn ábendingar.









